Ritmennt - 01.01.2005, Qupperneq 49
RITMENNT
Hann veltir því fyrir sér, hvort staðfæringin
sé misskrift eða sett af ásettu ráði. Hann
hyggur, að hið síðarnefnda sé vel hugsan-
legt, þar sem útbreidd verzlun hefur verið
rekin með þessi bréf. Mætti næstum kalla
þau eins konar „endurbætta aflátssölu". Frá
„viðskiptasjónarmiði" getur staðsetning
þeirra skipt máli og vakið áhuga.
Þegar þessum formála himnabréfsins
sleppir, kemur í ljós, að það er að efni til
næstum eins og íslenzku himnabréfin. Þar
er einmitt lögð mest áherzla á verndarmátt
bréfsins, hvort sem það er geymt innan
lclæða á þeim, sem það ber, eða haft hang-
andi innan húss. Samkvæmt bréfinu gat þá
ekkert illt komið fyrir þann, sem það bar,
hvorki slys né dauði né eldsvoði, vatnsskaði
og svo framvegis.
Himnabréf í Færeyjum
Við athugun á ferli himnabréfa um
Norðurlönd eftir prentuðum heimildum,
kom í ljós, að ekkert slíkt bréf var nefnt í
þeim frá Færeyjum. Þótti mér harla ósenni-
legt, að þau hefðu verið með öllu óþelckt
þar í eyjunum. Ég skrifaði þess vegna
Jóhani Hendrik Poulsen, fyrrv. prófessor í
Færeyjum, bréf, þar sem ég spurðist fyrir
um himnabréf í Færeyjum. Hann svaraði
fyrirspurn minni bæði fljótt og vel. Kom
þá í ljós, eins og mig hafði grunað, að þau
hefðu einnig komið þar við sögu.
Jóhan Hendrik segir í bréfi, að það hafi
reyndar gengið lieldur erfiðfega að fá vitn-
eskju um himnabréf í eyjunum. Hafði hann
samt uppi á tveimur bréfum og sendi mér
vélritað afrit af himnabréfi, sem hangir inn-
rammað uppi á vegg á heimili hjónanna
HIMNABRÉF ÖMMU MINNAR
Færeyska himnabréfið á Syðradali í Kallsoy.
Erilcs og Paulinu Eiiasen á Syðradali í
Kallsoy. Þetta eintalc er litmynd eftir frum-
ritinu. Lánuðu þau Jóhani himnabréfið, svo
að hann gæti telcið litmynd af því og sent
mér. Þetta himnabréf er skrautritað og hið
fegursta að allri gerð. Er þetta endurgerð frá
um 1948 af upprunalega bréfinu, að sögn
Jólians.
Hitt Irréfið, sem Jólian sendi mér síðar,
var í húsi frænda hans, Eyðunar Wintlrers
á Slcarvanesi í Sandoy (f. 1922, d. 1988),
en sú jörð er lcomin í eyði. Litljósmynd af
þessu bréfi á Steinbjörn B. Jakobsen skáld
í Þórshöfn. Setti Jóhan Hendrik sig í sam-
band við Steinbjörn, sem lét strax í té
ljósmynd af þessu himnabréfi. Þeirri mynd
fylgdi eftirfarandi umsögn á færeyslcu, sem
sjálfsagt er að birta hér: „Lærarin og fróð-
armaðurin Eyðun Winther (12.3. 1922-12.7.
1988) hevði sett gomlustovu á Slcarvanesi
45