Ritmennt - 01.01.2005, Side 100
BIRGIR ÞÓRÐARSON
RITMENNT
séu til á söfnum og jafnvel í einkaeign, en
þau hafa ekki fundist, þrátt fyrir nokkra
eftirgrennslan. í handritunum er kvæða-
bálkurinn ýmist undir heitinu Aldaglaumur
eða íslandsglaumur,- einnig finnst heitið
Aldarháttur. Talsverður munur er á hand-
ritum, hvað varðar röð og fjölda erinda, og
einnig er orðamunur noklcur. Eftir saman-
burð handrita af kvæðinu virðist sem hand-
rit það, sem prentað var eftir á Alcureyri
1856, hafi ekki verið meðal þeirra sem næst
væru frumgerð höfundarins, meðal annars
má nefna að í einu handriti, ÍB 656 8vo,
er kvæðabállcurinn tíu erindum lengri en í
prentuðu gerðinni.
Eitt handritanna, Lbs 1846 8vo, er nær
alveg samhljóða prentuðu útgáfunni og gæti
þess vegna verið það handrit sem prentað
var eftir, en hitt er þó öllu líklegra að þar
sé um að ræða uppskrift af umræddri út-
gáfu.
Aldaglaumur er nokkurs konar í slandssaga
í bundnu máli. Ljóst er, eins og að framan
greinir, að Jakob hefur við gerð kvæðisins
haft tiltælcar heimildir um sögu landsins, og
má víða af orðalagi kvæðisins finna hvað-
an þær heimildir eru komnar sem höfund-
urinn hefur notað. Verða hér tilfærð fáein
dæmi.37
Kvæðið er 66 erindi, það er sú gerð er
prentuð var, og hefst þannig:
1. Hugsast mjer að hreyfa ljóðum,
hýrlyndum til gamans fljóðum,
þó varla til þess virðist fær,
fyrri dögum frá að segja,
forðum sem menn áttu þreyja,
á láði því nú lifum vær.
Þetta er upphaf á almennum formála til les-
arans sem nær yfir fimm erindi, en síðan
hefst íslandssagan með sjötta erindi:
6. Allra fyrst um ísland getur,
enskra bóka fornyrt letur,
byrjaði prestur Beda það.
Um landaskipan lagaði ræðu,
ljóst um heiminn hvernig stæðu,
aftur og fram í ýmsum stað.
7. Eyland lítið eitt þar nefnir,
undir norðurskautið stefnir,
Thyle kallað víst það var.
Engin nátt um sumar sæist,
sól frá vetri og og dagur bægist,
fyrir það nafn svo fáheyrt bar.
Hér er nokkuð ljóst að Jakob hefur haft
Landnámabók við liendina þegar hann ritar
þetta, og slcal þá ósagt látið hvort þar var
um að ræða prentuðu útgáfuna frá Slcálholti
eða þá sem prentuð var í Kaupmannahöfn
1774, eða hvort hann hefur haft aðgang að
einhverri uppslcrift verlcsins.
Til samanburðar er hér tilfærð smálclausa
úr Landnámabólc 1774:
í aldarfars bólc þeirri er Beda prestur heilagur
gjörði er getið eylands þess er Thyle heitir, og í
bólcum er sagt að liggi sex dægra sigling í norður
frá Bretlandi. Þar sagði hann eigi lcoma dag á
vetur og eigi nótt á sumar, þá er dagur er sem
lengstur.
Þá heldur Jalcob áfram og nefnir til sögunnar
Naddoð víking (Naddodd):
8. Naddodd sumir nefna síðar,
noklcurn vílcing geirahríðar,
37 Þar sem vitnað er í kvæðið Aldaglaum er að mestu
farið eftir prentuðu útgáfunni frá Akureyri 1856, en
þó tekið úr handritum það sem þótti upprunalegra.
96