Ritmennt - 01.01.2005, Side 141

Ritmennt - 01.01.2005, Side 141
RITMENNT ODDUR NORSKI OG NYJA TESTAMENTIIÐ 1540 því að festa komist á embættisrekstur og fjárhag. Hann hélt áfram verki föðurbróð- ur síns að styrkja stöðu biskupsembætt- isins og biskupsstólsins og gera umbæt- ur á stjórnsýslu þess og skattheimtu. Á 15. öld hafði margt farið úrskeiðis með ltirkjuhald og kirkjubændur dregið til sín bæði kirkjutíundina og jarðeignir kirkna. Ólafur tók tíundamálin föstum tökum, skikkaði kirkjubændur að gera upp skuldir sínar við hálfkirkjur og presta þeirra. Auk þess krafðist hann þess að bændur tækju sómasamlega á móti biskupi, þegar hann færi í vísitasíur.28 Þetta má teljast átak í skattamálum og hélt Ólafur - eins og aðrir frændur hans á Hólabiskupsstóli - mjög fram norskum lögum og nýmælum, sem Islendingar töldu sig ekki hafa samþykkt.29 Varð biskupinn náttúrlega ekki vinsæll af bændum fyrir vikið, en Gauti erkibiskup (1475-1510) sendi Norðlendingum áminn- ingarbréf og hvatti þá til hlýðni og skilvísi.30 Bréf þessi má túlka sem vísbendingu vax- andi myndugleik erkibiskupsembættisins í Noregi og vilja til þess að hafa forystumenn hins íslenska samfélags í fremstu röð innan norska stjórnkerfisins. Athygli vekur að bréf úr kansellíi Gauta erkibiskups í Björgvin eru jöfnum höndum samin á misgóðri norrænu eða á dönsku.31 Hefur erlcibiskupinn haft í þjónustu sinni skrifara, sem færir voru á hinar ýmsu tungur, sem talaðar voru í hinu norska ríki. Ólafur biskup tók af festu á sifjaspells- máli Bjarna Ólasonar í Hvassafelli og Rand- íðar, dóttur hans, en það mál slcók íslenskt samfélag á ofanverðri 15. öld.32 Út af því máli urðu slíkar viðsjár með bislcupi og forystumönnum leikmanna að gerður var aðsúgur að bislcupi í lögréttu sumarið 1481 og var hann hrakinn þaðan burt.33 Þetta mál lcorn fyrir dómstól erkibiskupsins í Niðarósi.34 Ólafur lét gera máldaga í Hóla- biskupsdæmi, sem eftir honum eru nefnd- ir.35 Þá má geta þess, að Ólafur Hólabiskup hafði árið 1459 þegið Skagafjörð að léxri frá Kristjáni I Danakonungi og bar honum að standa árlega skil á 100 gyllinum til fulltrúa konungs í Björgvin.36 Ólafur biskup var í líflegu sambandi við 28 DIVI, nr. 415, bls. 465. „Vitum vér nú fáar eður nær öngva alkirkju að iiij marka tíund til liggi, heldur þær fleiri að hafi .ij. mörk eður minna fyrir ýmislega auðn og undandrátt, sem dregst undan kirkjunum bæði fasteignir og lausar." Þá lét Ólafur innheimta osttolla, sem lagst höfðu af. DI VI, nr. 266. 29 DI VI, nr. 415. 30 DI VI, nr. 153, 364, 441. Vísitasíur voru óvinsælar af bændum, því þeir þurftu að hýsa og halda uppi bislcupi og fylgdarliði hans. I vísitasíu í Eyjafirði haustið 1467 kom t.d. til ryskinga og særði Skúli Árnason bislcup á hendi. Hallvarður Ámundsson, tengdamaður Ólafs, varð þá Skúla að bana. DIV, nr. 451. í framhaldi af því varð Ólafur biskup að koma Hallvarði úr landi til Noregs. DI V, nr. 468. 31 DI VI, nr. 360, 361, 364, 365, 366. Fredrik Scheel, Lagmann og skriver, bls. 73. Scheel tekur mjög djúpt í árinni þegar hann scgir: „Norsk var ophort á være officielt skriftsprog alt i medfor av unionen med Danmark 1450." Ymis bréf í Fornbréfasafni mæla gegn svo róttækri skoðun. 32 DIVI, nr. 321, 334, 342, 343. 33 DIVI, nr. 347. 34 DI VI, nr. 365. Jón Halldórsson, „XIX. Hólabiskup Ólafur Rögnvaldsson", JS 69 fol. I—II (án blaðsíðu- tals). 35 DI V, nr. 233-314. 36 DI V, nr. 187. Til er frá árinu 1469 reikningsuppgjör við konungsfulltrúann í Björgvin og geldur Ólafur lionum 15 spýtinga vaðmáls ásamt sköttum að upp- hæð 900 gyllini fyrir síðustu 7 ár. Jón Halldórsson, „XIX. Hólabiskup Ólafur Rögnvaldsson". Spýtingur vaðmáls var 5 voðir. DIV, nr. 175, bls. 189. 137
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.