Vera


Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 69

Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 69
f emínískt uppeldi Guðrún M. Guðmundsdóttir Pedófílísk tíska Mér hefur lengi þótt áhugavert að fylgjast með hversu áhrifagjörn ég er þegar kemur að tískustraumum. Hvernig mér getur skyndilega liðið illa í buxum sem mér þótti hreint afbragð nokkrum vikum fyrr og hvernig skyrta í búðarglugga verður allt í einu svakalega flott sem mér þótti hálfasnaleg fyrir stuttu síðan. Tískufyrirbærið virðist móta og þróa hvað mér finnst smart hverju sinni, eða m.ö.o. minn „sjálfstæða" fatasmekk. Mig grunar að hliðstæð mótunarferli eigi sér stað þegar ég mynda mínar „einstaklingsbundnu" skoðanir al- mennt. Hugmyndirnar sem eru á kreiki í samfélaginu eru misvaldamiklar og hafa því missterk álirif á mótun mína. Því tel ég að ríkjandi (valdamiklar) hugmyndir og mainstream tískustraumar séu áþekk fyrirbæri og mjög árangursrík þegar kemur að minni eigin mótun sem og annarra samfélagsþegna. En hvað gerist ef ríkjandi skoð- anir og tískustraumar taka höndum saman og taka mjög undarlega stefnu? Á að lúffa fyrir tískustraumum? Eg gerði mér fyrst grein fyrir hinum nýju ríkjandi samfé- lagsnormum þegar kona sem ég ber mikla virðingu fyrir velti því fyrir sér hvort óg kúgaði 12 ára dóttur mína með því að banna henni að ganga í g-strengs nærbuxum. I staðinn fyrir að lúffa fyrir ríkjandi tískustraumum komst ég að þeirri niðurstöðu að eitthvað væri verulega bogið við ríkjandi norm sem kyngera litlar stelpur og vilja troða jíeim í kynferðislega ögrandi og óþægilegar g- strengsnærbuxur. Sérstaklega þar sem mér sýnist tísku- straumarnir í þessu tilfelli hafa það eitt að markmiði að skaffa réttlætingu fyrir áróðri pedófíla (barnaníðinga) um að lítil börn vilji, eigi, geti og megi vera kynverur. Er ekki einkennilegt að sýn pedófíla á börn sem kynverur samræmist, að því er virðist, boðskaps tískuheimsins? Er tími pedófílsins kominn? Eg get ekki betur séð en að hin pedófílíska tískustefna hafi læðst inn í mitt nánasta umhverfi. Ég frótti til dæm- is af því að litlar 7 ára stelpur nágrannanna höfðu samið lag sem hljómaði eitthvað á þessa leið: „I am hot, 1 arn sexy and I am just a little baby ...la la la." Annað og jafniramt skýrara dæmi um kyngervingu stidkna heyrði ég í formi brandara sem dóttir mín bauðst hróðug til að segja mér og stjúppabba sínum. Hann fjall- aði um litla stelpu sem benti á tippi pabba síns og spurði í sakleysi hvað þetta væri. Pabbinn sagði að þetta væri slangan hans, hún benti þá á hárin í kring og hann svar- aði að þau væru hreiður slöngunnar. Að lokum spurði hún hvað eistun á honum væru en pabbinn svaraði glett- inn í bragði að þau væru leikföng slöngunnar. Morgun- inn eftir vaknaði pabhinn aumur í tippinu við það að dóttir hans leit á hann furðu lostin og sagði: „Ég var bara að strjúka slöngunni og þá spýtti hún á mig." Að lokum nefni ég sögu sem vinkona dóttur minnar sagði um atvik þar sem fimmtugur karlmaður hafði verið „að reyna á fullu" við 12 ára bekkjarsystur hennar. Af þessum dæmum má sjá að stelpur virðast upplifa sig á einhvern hátt sem kyn- verur og ég velti fyrir mór hvort þróunin komi til með að snú- ast við eða hvort við getum sætt okkur við að tími pedófílsins só kominn!? Stofnaðir 1939 PRÓFANÁM - FRÍSTUNDANÁM ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA - STARFSNÁM Öldungadeild á grunn- og framhaldsskólastigi. Fjölbreytt tungumálanám. Verklegar greinar og myndlistarnámskeið. Námsaðstoð fyrir skólafólk. Sérkennsla í lestri og skrift. Islenska fyrir útlendinga. Starfsnám. Upplýsingar í síma 551 2992 Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Mjódd Netfang: nfr@namsflokkar.is Heimasíða: http://www.namsflokkar.is SVO LENGILÆRIR SEM LIFIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.