Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 55
Heilsubók konunnar - alfræðirit um líkama og sál
Ómissandi uppflettirit
fyrir konur á öllum aldri
Heilsubók konunnar bendir á aðferðir til að byggja upp heilbrigða sál í
hraustum líkama, bæði eftir hefðbundnum og óhefðbundnum leiðum
svo konan megi njóta lífsins sem best, sátt við þær breytingar sem
verða á líkamanum frá unga aldri til efri ára.
Lýst er mismunandi læknismeð-
ferðum og bent á hvaða spurn-
ingum má beina til lækna til að
fá skýr og gagnleg svör. Einnig er
bent á hvernig hægt er að vinna
bug á ýmsum kvillum á annan hátt; fjallað um líkams-
rækt, svefnvenjur og óhefðbundnar aðferðir svo sem
grasalækningar, slökun, blómalyf og böð.
Bókin er full af hollráðum fyrir nútímakonur - um
hvernig má viðhalda góðri heilsu og hraustlegu útliti
alla ævi þrátt fyrir spennu og hraða nútímans. Efnið er
skreytt teikningum, töflum og ljósmyndum og yfirfarið
af fslenskum sérfræðingum.
Heilsubókin er eins konar heimilislæknir konunnar
sem gott er að leita til hvenær sem vanda ber að höndum
eða löngun vaknar til að byggja sig upp.
Bókin geymir víðtækan fróðleik um sálarlíf, tauga-
kerfi, hormóna, kynlíf, meðgöngu, mataræði, heilsu-
rækt og hollustu, svo fátt eitt sé nefnt, og efnið er sett
fram á opinskáan og upplýsandi hátt af viðurkennd-
um sérfræðingum í kvenlækningum. Ritstjórinn,
Lesley Hickin, er læknir og sérfræðingur í alhliða
kvenlækningum. Hún vinnur út frá sjónarhorni rann-
sókna sem hafa sannað að líkamar kvenna og karla
eru gjörólíkir, bregðast á ólíkan hátt við allri röskun
og krefjast mismunandi aðhlynningar. Hún skiúfaði
bókina í samvinnu við hóp breskra sérfræðinga á mis-
munandi sviðum og fjallað er ítarlega um hvern lík-
amshluta og hvers kyns sjúkdóma og álagseinkenni
sem herja á konur; allt frá gigt, brjóstakrabbameini,
hjartasjúkdómum, streitu og geðrænum truflunum til
vandamála tengdum meðgöngu og breytingaskeiði.
Líftrygging og
sjúkdómatrygging
Tryggðu þér og þeim sem standa þér
næst örugga fjárhagslega framtíó.
samlif
Líftrygging Samlífs midar ad því ad afkoma þeirra sem
missa ástvin sinn sé fjárhagslega örugg. Tryggingarinnar
er sérstaklega þörf í fjölskyldum þar sem fjárhagslegar
skuldbindingar eru miklar og börn á unga aldri.
Sjúkdómatrygging Samlífs er gott mótspil vid þeim
fjárhagslegu áföllum sem sjúkdómar og óvæntar adgerdir
geta haft í för med sér.
Kynntu þér málið hjá
þjónustufulltrúa okkar
í næsta útibúi íslandsbanka.
ÍSLANDSBANKI
Eignastýring I Eignafjármögnun I Fyrirtækjasvid I Markadsvidskipti
www.isb.is
Vertu med allt á hreinul
HVlTA HÚSIÐ / SÍA