Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 72
Bríet
félag ungra femínista
yfirleitt sammála í aðalatriðum enda ekki málið að
láta mismunandi stjórnmálaskoðanir koma í veg fyr-
ir samstöðu kvenna.
Dagbók Bríetar
í þessu tölublaði Veru bryddum við Bríetur
uppá þeirri nýjung að í stað hugleiðinga ætlum
við að opna upp fyrir ykkur innri heim Bríetar
og kynna fyrir ykkur starfsemi okkar undan-
farna mánuði.
Sumarið byrjaði á nýliðafundi sem þónokkuð margar stelpur
sóttu. Nýliðafundir eru einskonar kynningar- og fræðslufundir
fyrir stelpur sem sýnt hafa áhuga á að ganga í Bríeti. Við höfum
nú haldið þrjá svoleiðis og afrakstur þeirra hefur verið sprauta í
rassinn á Bríeti. Stelpurnar sem gengið hafa tii liðs við Bríeti í
gegnum nýliðafundina og haldið áfram eru kjarni Bríetar núna.
Svo héldum við samdrykkju í stíl Sókratesar með stelpunum
sem sjá um vefritið Tíkina. Það varð mjög áhugaverður og
skemmtilegur fundur, okkur greindi á um margt en vorum samt
í lok ágúst tókum við á móti skandinavískum
femínistum í tilefni ráðstefnu sem við héldum um
jafnréttisrammaáætlun Evrópusambandsins. Þeirra
fyrstu kynni af Islandi var menningarnótt í Reykja-
vík en svo var haldið í vikudvöl og hörkuvinnu aust-
ur í Árnes. Hópar voru myndaðir og var hverjum
hópi ætlað að fara yfir hverja grein. Niðurstöður úr
ráðstefnunni verða birtar bráðlega og fróðlegt verður
að finna fyrir viðbrögðum við þessu uppátæki okkar.
Við hefðum auðvitað ekki getað haldið ráðstefnuna
ef við hefðum ekki fengið styrki frá Evrópusamband-
inu, en einnig Landsvirkjun og Jafnréttisnefnd Kópa-
vogs. Auk þess fengum við styrk frá Reykjavíkurborg
í formi móttöku fyrir okkur í Höfða og þar gátum við
látið virðulega meðal höfðingja-gjafanna og hetjanna
sem við buðum.
I haust höfum við aðallega einbeitt okkur að innri
málum Bríetar, meðal annars með fjársöfnun. Bríet
Bríet mælir með:
_ Púhh:
Bríet mælir á móti:
Svíþjóð;
já við mælum með Svíþjóð, ekki nóg með að þar
sé í tísku að kalla sig femínista (allavega hafa
flestir ráðherrar þar í landi kallað sig femínista),
og fæðingarorlof þar er heldur lengra en hár á
landi, heldur er ný ríkisstjórn Svíjrjóðar jafn
hlaðin konum og köllum. Það köllum við jafn-
rétti
Mæðrastyrksnefnd;
þrátt fyrir Portúgalsferð þá heldur Mæðra-
styrksnefnd úti hjálp í formi matar og lífsnauð-
synja fyrir fólk sem J^arf á því að halda. Fátæku
fólki á Islandi hefur fjölgað og þau þurfa á allri
aðstoð að halda. Við mælum meö Jjví að við öll
sem getum kaupum mat og gefum þeim. Við í
Bríeti ætlum allavega að gera Jjað.
Sam bíóin og Filmundur;
fyrir að upphefja klám og normalísera klámefni með innflutn-
ingi á einni af frægustu klámstjörnum samtímans.
Fréttastofa ríkissjónvarpsins;
Of langt innslag sem virkaði eins og auglýsing með viðtali við
vændiskonu sem gerir út á internetinu. Fréttir RUV misstu
allan trúverðugleika þegar fjallað er um vændi eins og hverja
aðra atvinnugrein án þess að ræða við aðra aðila sem koma
málinu við, eins og Stígamót sem vændiskonan gagnrýndi fyr-
ir að ganga of langt í andspyrnu sinni jafnframt því að segja að
„engum væri ýtt út þetta"! Þegar staðreyndin er sú að um 80%
vændiskvenna hafa verið misnotaðar í æsku eða eru að halda
uppi dópneyslu, eða fá lítil eða engin önnur atvinnutækifæri,
eða hafa verið seldar/rændar frá heimalandi sínu.
Sýn;
Karlrembuauglýsingar á hæsta stigi. Vilja karlar í alvöru halda
uppi þeirri klisju sem er oi'ðin svo vinsæl að þeir séu heimsk-
ir og ekki færir um að sjá um sig sjálfir? Ef konur ráða í alvóru
öllu á heimilinu, eins og reynt er að láta líta út fyrir, þá erum
við vissar um að þær láti kallana sína líka lesa Veru upp til
agna (og þá skilar þessi gagnrýni sér á réttan stað).