Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 71
Eitt af meginatriðum norrænnar sam-
starfsáætlunar um jafnréttismál er
samþætting kynja- og jafnréttissjón-
armiða í alla starfsemi Norrænu ráð-
herranefndarinnar. Markmiðið er að á
hverju starfssviði sé öxluð ábyrgð á
auknu jafnrétti kynjanna. Þetta felur í
sér ábyrgð á að skilgreina og fram-
kvæma raunveruleg og sértæk mark-
mið um jafnrétti kynjanna innan hvers
málaflokks.
Áfram er þó lögð áhersla á að varðveita samstarfs-
sviðið um jafnréttismál. Hlutverk þess er að taka
frumkvæði og afla sérfræðiþekkingar sem gagnast
samþættingarstarfinu og þróa hefðbundna jafnréttis-
málastefnu á meðan hennar er enn þörf en þess er
vænst að samþætting jafnréttissjónarmiða stuðli að
auknu jafnrétti kynjanna.
Við samþættingu kynja- og jafnróttissjónarmiða
hjá Norrænu ráðherranefndinni er stuðst við skil-
greiningu Evrópuráðsins en hún hljóðar svo:
Forsenda samþættingar kynja- og jafnréttissjónar-
miða er að öll ferli stefnumörkunar séu metin, bætt,
þróuð og endurskipulögð þannig að málsaðilar taki
mið af kynja- og jafnréttissjónarmiðum á öllum
þjóðfélagssviðum, á öllum stigum ákvarðanatöku og
í allri meðferð mála.
Þegar mál er skoðað frá kynjasjónarhóli felur það í
sér að lýsa aðstæðum karla og kvenna á tilteknu
sviði. Kynjasjónarmið er skilgreint út frá því að kyn-
ferði sé grundvallarstærð í mannlegri tilveru og að
öll tilheyrum við annað hvort karlkyni eða kven-
kyni. Hvoru kyni fylgja sérstakar þarfir, venjur og at-
ferli. Só mál skoðað út frá jafnréttissjónarmiði er
markmiðið að kanna hvort kjör og tækifæri karla og
kvenna séu jöfn á tilteknu sviði. Þegar athugað er
hvort kynjajafnrótti ríki er mikilvægt að vera vak-
andi i'yrir því að formlegt jafnrétti er ekki endilega
það sama og jafnrétti í reynd.
i
Tveir fyrir einn í Bláa lónið
gegn framvísun auglýsingarinnar.
Gildir til 1. desember 2002.
Frítt fyrir börn, 11 ára og yngri,
í fylgd með fullorðnum.
■ ICELAND
I
I
1 lagoon@bluelagoon.is • www.bluelagoon.is • 420 8800