Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 32
Kraftaverk í kaffibaun
.:= Kaffi er eitt af því sem markar tíma, fyllir í hann og fleytir áfram. Tíma
| alls konar fólks í ólíkum löndum. Það gefur orku þegar hægt gengur
£ og tilefni til að slaka á eða njóta augnabliks með sjálfri sér og þeim
sem fyrir ber. Fyrirmyndarhúsmóðir fyrri daga hafði ætíð heitt á könn-
| unni, nútímakona getur kippt með sér mjólkurblandi af kaffihúsi, ilm-
o andi í frauðglasi. Auðvitað kann fólk enn að setjast niður saman, yfir
jCl
kaffi, heima eða á kaffistað og þá vantar ekki í Reykjavík. Vera fékk
sér „undirskálarlaust í eldhúsinu" og athugaði málið.
nyndir: Þórdis
Kaffi með mikilli mjólk, kúmenkringlu dýft í, þannig
hófst dagurinn stundum þegar ég var lítil og lífið
einfalt. Öldruð frænka mín fór í morgunslopp og
fyrsta verkið var að hella uppá könnuna. Henni var
ekkert um rafmagnskaffi gefið og vildi ekki sjá það
að súpa úr krús eða hvaða bolla sem var. Stundum
spáði hún í gamni í bolla, þar var hávaxinn maður,
ferðalag, óvæntir atburðir. Enn á ég kaffibollann sem
hún notaði síðustu árin, hvítan með bláu munstri,
en undirskálin er löngu brotin.
Þegar leið á morgun fór frænkan í peysuföt og var
þá bráðum tilbúin að taka á móti gestum sem oft
komu síðdegis. í þeim mörgu og
merkilegu heimsóknum var vita-
skuld boðið uppá nýlagað kaffi og
með því. Kattartungur, það ljúf-
fenga súkkulaði, smákökur með
dásamlegu smjörbragði eða eitt-
hvað bakkelsi annað. Stundum
þegar ég kom heim úr skólanum
lagði reykjarlykt úr herbergi
frænkunnar inn af forstofunni og
þá var vitað mál hver var hjá
henni í kaffi. Sömuleiðis þekkti ég
vissar yfirhafnir, ákveðnar raddir
og vellyktandi. Annars gáði ég,
heilsaði konu sem kannski var
með hatt þótt hún sæti inni, tók
brjóstsykur úr krukku hjá frænk-
unni og fór fram með bollana eða
þá eftir tíu dropum til viðbótar.
Nú er öldin önnur og algeng-
ara en áður að vinkonur og frænk-
ur hittist á kaffihúsum til að
spjalla saman. Fái sér rjúkandi
drykki með útlendum nöfnum úr
vólum sem mása við klið úr saln-
um. Eigendur kaffihúsa hér eru
frekar á því að konur séu opnari
fyrir nýjungum en karlar, þær panti sér til dæmis
bragðbætt mjólkurkaffi, caffe latte með sírópi, en
karlar vilji oftar sterkt og óblandað espresso. Annars
fær fólk af báðum kynjum og á öllum aldri sér oftast
venjulegt kaffi á þessum áningarstöðum, en venju-
legt kaffi er varla lengur venjulegt, hver hefur sinn
hátt á. Mjólkurblöndurnar capuccino og latte koma
næstar í almennum vinsældum á íslenskum kaffi-
húsum.
Elst þeirra er Mokka við Skólavörðustíg, opnað
1958 af hjónunum Guðmundi Baldvinssyni og Guð-
nýju Guðjónsdóttur. Fyrir voru raunar kaffihús með