Vera - 01.10.2002, Blaðsíða 5
mynd: Þórdís
Askrifandinn
VERA á mikið undir áskrifendum sínum komið, það er
hópurinn sem heldur lífi í blaðinu og jafnt og þétt bætast
nýir og yngri áskrifendur í hóp hinna eldri. í þessum nýja
þætti verður áskrifandi valin(n) af handahófi og kynnt
fyrir lesendum, um leið og hún verður innt álits á blaðinu.
Nafh: Ragnheiður Þóra Kolbeins
Aldur: 36 ára
Starf: Leikskólakennari
Áhugamál: Ferðalög um hálendi íslands og jökla
Hve lengi áskrifandi: Síðan 1994
Hvernig finnst þér Vera? Fínt blað sem hefur tekið
jákvæðum breytingum.
Fjallgöngukona
og vinnur með börn
..Ég er aðstoðarleikskólastjóri í Sólborg sem er leikskóli á veg-
um Reykjavíkurborgar og starfar samkvæmt heildtækri skóla-
stefnu. Stefnan gengur út á að mæta þörfum fatlaðra og ófatl-
aðra barna í sameiginlegu umhverfi. Við erum staðsett í Hlíða-
hverfinu Fossvogsmegin. Okkur hefur gengið vel að fá fag-
menntað fólk og við vinnum saman í teymi, leikskólakennarar,
þroskaþjálfar, ásamt fólki með aðra háskólamenntun og starfs-
fólk Eflingar. Mér finnst starfið mjög skemmtilegt og í raun er
það líka áhugamál mitt," segir Ragnheiður um starf sitt.
„Mitt helsta áhugamál er ferðalög um hálendi íslands árið
um kring. Vetrarferðirnar eru ekki síður spennandi og ég ferð-
ast mest með félögum mínum, gangandi eða á eigin jeppum.
Við förum út úr bænum flestar helgar og í sumar gekk ég á
Hvannadalshnjúk. Það fannst mér stórkostlegt afrek." segir
Ragnheiður um hitt áhugamálið sitt og bætir við að hún stundi
líka badminton með hressum kvennahópi og leggi áherslu á að
eyða tíma með vinum og fjölskyldu.
Öðruvísi blað
„Ég kynntist Veru hjá vinkonu minni sem ég leigði með
og þegar við hættum að leigja saman ákvað ég að gerast
áskrifandi svo óg gæti haldið áfram að lesa blaðið. Mér
finnst margar áhugaverðar greinar í blaðinu og líkar vel
hvernig tekið er á ýmsum málefnum, þótt ég sé ekkert
alltaf sammála. Vera sker sig úr öðrum blöðum sem
alltaf eru að fjalla um einstaklinga og einkalíf þeirra. Ég
tek blaðið alltaf með mér í vinnuna þegar ég er búin að
lesa það og sumar samstarfskonur mínar hafa á orði að
ég komi alltaf með „öðruvísi" blöð. Mörgum finnst að
blaðið sjáist ekki nógu víða, sé svolítið falið.
Vera er eina blaðið sem fjallar um kvennabaráttu og
því vil ég styðja það. Ég hef verið áskrifandi að öðrurn
blöðum og þegar ég tók síðast til í heimilisbókhaldinu
sagði ég öðru blaði upp en hélt Veru einni eftir. Það sýn-
ir að óg er ánægð og vil fylgjast með áfram. Mér finnst já-
kvætt hvernig blaðinu hefur tekist að víkka sig út, sýna
breidd í stað þess að fjalla bara um lokuð kvennabar-
áttumál. Mér finnst gaman að lesa um það sem Bríeturn-
ar eru að pæla og tek eftir því að rnargir fylgjast vel með
dálknum plús og mínus. Það er haft á orði að betra sé að
passa sig svo maður fái ekki mínus í Veru!"