Vera


Vera - 01.10.2002, Side 55

Vera - 01.10.2002, Side 55
Heilsubók konunnar - alfræðirit um líkama og sál Ómissandi uppflettirit fyrir konur á öllum aldri Heilsubók konunnar bendir á aðferðir til að byggja upp heilbrigða sál í hraustum líkama, bæði eftir hefðbundnum og óhefðbundnum leiðum svo konan megi njóta lífsins sem best, sátt við þær breytingar sem verða á líkamanum frá unga aldri til efri ára. Lýst er mismunandi læknismeð- ferðum og bent á hvaða spurn- ingum má beina til lækna til að fá skýr og gagnleg svör. Einnig er bent á hvernig hægt er að vinna bug á ýmsum kvillum á annan hátt; fjallað um líkams- rækt, svefnvenjur og óhefðbundnar aðferðir svo sem grasalækningar, slökun, blómalyf og böð. Bókin er full af hollráðum fyrir nútímakonur - um hvernig má viðhalda góðri heilsu og hraustlegu útliti alla ævi þrátt fyrir spennu og hraða nútímans. Efnið er skreytt teikningum, töflum og ljósmyndum og yfirfarið af fslenskum sérfræðingum. Heilsubókin er eins konar heimilislæknir konunnar sem gott er að leita til hvenær sem vanda ber að höndum eða löngun vaknar til að byggja sig upp. Bókin geymir víðtækan fróðleik um sálarlíf, tauga- kerfi, hormóna, kynlíf, meðgöngu, mataræði, heilsu- rækt og hollustu, svo fátt eitt sé nefnt, og efnið er sett fram á opinskáan og upplýsandi hátt af viðurkennd- um sérfræðingum í kvenlækningum. Ritstjórinn, Lesley Hickin, er læknir og sérfræðingur í alhliða kvenlækningum. Hún vinnur út frá sjónarhorni rann- sókna sem hafa sannað að líkamar kvenna og karla eru gjörólíkir, bregðast á ólíkan hátt við allri röskun og krefjast mismunandi aðhlynningar. Hún skiúfaði bókina í samvinnu við hóp breskra sérfræðinga á mis- munandi sviðum og fjallað er ítarlega um hvern lík- amshluta og hvers kyns sjúkdóma og álagseinkenni sem herja á konur; allt frá gigt, brjóstakrabbameini, hjartasjúkdómum, streitu og geðrænum truflunum til vandamála tengdum meðgöngu og breytingaskeiði. Líftrygging og sjúkdómatrygging Tryggðu þér og þeim sem standa þér næst örugga fjárhagslega framtíó. samlif Líftrygging Samlífs midar ad því ad afkoma þeirra sem missa ástvin sinn sé fjárhagslega örugg. Tryggingarinnar er sérstaklega þörf í fjölskyldum þar sem fjárhagslegar skuldbindingar eru miklar og börn á unga aldri. Sjúkdómatrygging Samlífs er gott mótspil vid þeim fjárhagslegu áföllum sem sjúkdómar og óvæntar adgerdir geta haft í för med sér. Kynntu þér málið hjá þjónustufulltrúa okkar í næsta útibúi íslandsbanka. ÍSLANDSBANKI Eignastýring I Eignafjármögnun I Fyrirtækjasvid I Markadsvidskipti www.isb.is Vertu med allt á hreinul HVlTA HÚSIÐ / SÍA

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.