Vera - 01.12.2002, Qupperneq 8
Valgerður B. Eggertsdóttir
Undanfamar vikur hefur verkefni sem kallast EGÓ verið í gangi og er markmið
þess að styrkja sjálfsmynd ungs fólks. EGÓ er samstarfsverkefni Landlæknis-
embættisins, Geðræktar, Rauða krossins, Jafningjafræðslunnar og Heilsugæsl-
unnar. Mér lék forvitni á að vita hvaða hugmyndir lægju að baki verkefninu og
mælti mérþví mót við þau Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur og Ragnar Rael.
nu
Ragnar
f VI
y
- «»' V il L j
í. ] iVr® sr- I 4*
A !
1 .
m |
n»
<u
>
8
Ég byrja á því að spyrja þau hvernig þau komi að
verkefninu.
Dóra: „Ég kem að verkefninu í gegnum Geðrækt.
Við vorum búin að vinna að sjálfsmyndarstyrkingu í
samstarfi við Jafningjafræðsluna í allt sumar. Síðan
gerist það að Landlæknisembættið hefur samband
við mig vegna verkefnis sem Ásta Kristjánsdóttir
kom með hugmynd að og embættið ætlar að taka þátt
í. Þar vantaði fræðilega þátttöku sem við höfum
einmitt verið að vinna að undanfarið. Landlæknis-
embættið bað mig því að koma með fræðilega þátt-
inn inn í vinnuhópinn sem er í kringum Egó verkefn-
ið þar sem við í Geðrækt vorum búin að velta mikið
fyrir okkur hugmyndafræðinni, hugtökunum og bak-
grunninum á meðan Ásta var komin með hugmynd-
ir að framsetningunni, útlitinu og kynningunni. Það
má því segja að þetta tvennt hafi smollið saman.“
Þú kemur síðan að þessu í gegnum Jafningja-
fræðsluna er það ekki?
Ragnar: „Já, einmitt ég kem að þessu í gegnum
Jafningjafræðsluna. Við sjáum um kynninguna á
verkefninu í skólum, einnig sjáum við um að kynna
okkur hugmyndir unglinganna og komum þannig
með sjónarhorn þeirra inn í verkefnið."
Mér lék síðan forvitni á að vita hvaða hugmynd-
ir liggi að baki verkefninu og hver væri ástæðan fyr-
ir því að þau ákváðu að ráðast í þetta?
Dóra: „Ég hef þá trú að sjálfsmyndarstyrking sé
breiðasta forvörnin. Við erum ekki að segja fólki
hvað það má gera og hvað það má ekki gera lieldur
erum við að styrkja einstaklinga til að taka ákvarðan-
ir út frá sjálfum sér. Rannsóknir sýna að slæm sjálfs-
mynd er í beinum tengslum við kvíða og stress hjá
unglingum og einnig í tengslum við aðra áhættu-
þætti eins og brottfall úr skóla, ótímabærar þungan-
ir, skuldasúpur, áfengismisnotkun og eiturlyf.
Ásta kemur síðan í gegnum útlitsbransann þar
sem hún sér að útlitskröfurnar fara illa með fólk, eii
það er auðvitað ekki markmiðið með hennar vinnu.
Verkefnið er auðvitað ekki bara um útlitið heldur fer
þetta allan hringinn. Ásta var búin að ganga með
þessa hugmynd mjög lengi og Sólveig Zophanías-
dóttir einnig, sem er framan á Egó blaðinu. Það var
reyndar talað við mjög margar fyrirsætur um að vera
framan á blaðinu en þær sögðu allar nei. Þær eru
búnar að búa sér til ímynd sem er ekki raunveruleg