Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 28

Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 28
Björg Hjartardóttir (0 3- 0» > 28 Halla Bogadóttir eða Halla Boga eins og hún er oftast kölluð rekur lítið gullsmíðaverkstæði við Laugaveginn. Eftir að hafa starfað við kennslu í tíu ár skipti hún um starfsferil og fór í gullsmíðanám. Halla hefur unnið við gull- smíði í sex ár og hefur á þeim tíma unnið ötult starf í þágu sinnar iðngreinar, fyrst sem formaður Félags íslenskra gullsmiða og þann 15. mars síðastliðinn var hún kosin í stjórn Samtaka iðnaðarins. Halla er fyrsta konan til að gegna þeirri stöðu. Það er spennandi þegar fólk getur látið drauma sína rætast. Ég hafði alltaf haft þann draum eftir að ég varð fullorðin að læra einhvers konar iðn, hönnun eða eitthvað skapandi starf. Ég var lærður kennari og hafði kennt í 10 ár þegar kunningi minn, sem var gullsmiður, bauð mér nemapláss. Þá var ég 35 ára, komin með heimili og þrjú börn og spurningin var að hrökkva eða stökkva. Eg ákvað að stökkva og var því fertug þegar ég út- skrifaðist sem gullsmiður. Mér hefur fundist vanta virðingu til handa íslenskum gullsmiðum og þá sérstaklega að þeir sjálfir virði sig sem fagmenn Stuttu eftir útskrift var ég kjörin í stjórn Félags íslenskra gullsmiða en það hentar mér mjög vel að vinna að félags- störfum. Annað árið mitt í stjórn varð ég formaður og við það fór ég að starfa innan Samtaka iðnaðarins. Gullsmiðir flokkast í hóp með svokölluðum þjónustugreinum. Innan þeirra eru úrsmiðir, hárgreiðslufólk, ljósmyndarar, tannsmiðir, fataiðn og snyrtifræðingar. Aðal vinnan með sam- tökunum fólst í því að gera þessi félög sýnilegri. Ég áttaði mig fljótlega á því að það er heilmikill kraftur innan Samtaka iðnaðarins og hægt að fá þau til að vinna með sér að ýmsum verkefnum. Sem for- maður félagsins fékk ég samtökin í lið með gullsmiðum til þess að setja af stað samkeppni um hönnun og smíði á vín- flöskutöppum. Sú hugmynd kviknaði af því að oft vantar gjafir handa miðaldra fólki og þá sérstaklega karlmönnum. Við unnum einnig með samtökunum í að kynna okkur menntamál gullsmiða og fór ég til Finnlands í jjeim erindagjörðum. I framhaldi af því komumst við í samband við fólk sem hefur staðið fyrir samkeppni í skartgripasmíði meðal ungra gullsmiða í St. Pétursborg. Með hjálp samtakanna urð- um við þátttakendur í þeirri keppni og fórum ári síðar með skartgripi frá sex ein- staklingum sem sent höfðu inn í keppn- ina. íslensk stúlka, Guðbjörg Kr. Ingvars- dóttir, bar sigur úr býtum og var það mjög uppörvandi fyrir íslenska gullsmiði. Mér hefur fundist vanta virðingu til handa íslenskum gullsmiðum og þá sér-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.