Vera - 01.12.2002, Page 42
mjög hefðbundin, t.d. í messuforminu. Hugs-
aðu þér hvernig það er fyrir konu að sitja
messu og hlusta mörgum sinnum á: „Guð,
faðir, sonur og heilagur andi.“ Mary Daly seg-
ir að við eigum að breyta þessu og segja: Guð
sem skapar, frelsar og helgar. Fjöldi kvenna
hefur sagt skilið við kristnina vegna nei-
kvæðu textanna í Biblíunni. Við í Kvenna-
kirkjunni viðurkennum tilvist neikvæðu text-
anna, en metum mest hina jákvæðu og góðu
texta í Biblíunni, bæði þá sem beinast að báð-
um kynjum og þeim sem tala sérstaklega um
konur. Við teflum þeim á móti neikvæðu
textunum."
Kirkjan hefur hjálpað til með að kúga
konur vegna þess að samkvæmt einhverjum
textum Biblíunnar er hin dyggðuga eiginkona
undirgefin og lætur alit yfir sig ganga. Hin
góða kristna kona þegir. Þetta er áberandi í
kvennaguðfræði. Að það sé ekki hin æðsta
kristna dyggð, að láta traðka á sér.
„Kvennaguðfræðin kenndi kirkjunni að
auðmýkt þurfi ekki að þýða auðmýkingu. Það
þarf að hugsa um þetta og draga þetta fram.
Við þurfum að rýna í orð og það er gaman
vegna þess að orð eru svo margbrotin."
Guð talar um sig í kvenkyni
Margir kvennaguðfræðingar geta ekki hugsað sér
karl sem frelsara vegna þess að hann gæti ekki
skilið konur og kjör þeirra. Hann gæti ekki létt af
okkur því oki sem varðar að vera kona. Þú ert ekki
á sama máli?
„Það er staðreynd að Jesús var söguleg persóna
og Jesús var Guð, kristin guðfræði allra alda kennir
það. En Jesús er frelsari vegna þess að hann frels-
aði okkur með boðskap sínum og lífi og dauða og
upprisu. Það sem Iiann sagði um kvenréttindi er
svo mergjað að það tekur okkur alla ævina að skilja
það. Til dæmis stendur í Lúkasi að það sé ekki að-
alatriði í lífi kvenna að vera mæður, heldur að lifa
í fagnaðarerindinu. Sem er þvert á það sem öll
heimsbyggðin taldi! Þetta bylti öllu fyrir konur og
þar með urðu þær predikarar hjá Jesú og í frum-
kristninni. Jesús boðaði konum aldrei undirgefni."
Konur voru með Jesú og í kringum hann, en
hvers vegna voru þær ekki nafngreindar sem læri-
sveinar?
„Það er mjög trúlegt að það hafi verið vegna
söguritunarinnar. Það var bara skrifað um karlana.
Það er til dæmis líklegt að konur hafi verið við síðustu
kvöldmáltíðina og það teljum við í bókinni Vinkonur og
vinir Jesú en það er okkar umorðun á orðinu lærisveinar.
Rétt á eftir eru konur orðnar postular, kirkjan tók sannarlega
við sér og lifði í boðskap Jesú - í stutta stund, og svo fáll
þetta í sama gamla farið.“
Og ekki var nú Lúther til að bæta það?
„Jú, hann bætti það nú samt þessi elska. Hann sagði svo
margt hann Lúther, eins og Biblían, hann skrifaði og skrif-
aði. Margt jákvætt og margt neikvætt. Svo bjó hann náttúr-
lega á lteimili konu sinnar Katrínar sem ól önn fyrir lionum
og gerði honum kleift að vera guðfræðingur. Lúther sagði
líka að allar manneskjur væru í rauninni prestar og ættu
fullkomin mannréttindi. Þetta varð til þess að það spruttu
upp mótmælendasöfnuðir þar sem konur voru í forystu,
Lúther sagöi líka aö allar manneskjur
væru í rauninni prestar og ættu fullkomin
mannréttindi. Þetta varö til þess að það
spruttu upp mótmælendasöfnuðir þar
sem konur voru í forystu, voru í heiðri
hafðar, og prestar og fleira fólk fóru að
mennta dætur sínar.
42