Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 43
voru í heiðri hafðar, og prestar og fleira fólk fóru að
mennta dætur sínar.“
Þú segir líka að Guð tali um sig í kvenkyni.
„Það kemur fram í sköpunarsögunni: Guð skap-
aði manneskjuna í sinni mynd, hún skapaði þau karl
og konu. Jesú tekur líka dæmisögur um Guð sem
konu, konu sem bakar og konu sem sópar. Guð er
bæði maður og kona en ég hef ákveðið að tala um
Guð í kvenkyni til þess að rétta hlut kvenna. Ég gæti
alveg sagt: Guð, þú sem ert faðir okkar og móðir, en
ég geri það ekki. Ég segi: Guð, þú sem ert vinkona,
vegna þess að ég tel að það þurfi að gera það núna.
Kannski geri ég það einlrvern tíma að tala um bæði
kynin.“
I bókinni þinni eru ummæli þekktra karlkyns
persóna úr sögunni sem eru neikvæð fyrir konur. Ég
varð mjög reið þegar ég las þetta. En þú? Geturðu
alltaf nýtt reiðina til góðra verka?
„Nei, en ég vildi að ég gæti það. Reiðin er hættu-
legt afl, eins og stendur bæði í Fjallræðunni og Jak-
obsbréfinu. En hún er líka stórkostlegt afl, eins og
sést á því hvernig Jesús beitti henni til að breyta
óréttlætinu í réttlæti. Reiðin er góð og nauðsynleg en
það þarf að finna henni leiðir. I huga mínum ómar
oft setning sem ég veit ekki hvaðan er komin: „Við
skulum alltaf liugsa um það en aldrei tala um það“.
Þetta er um það hvort við getum geymt reiði okkar
og stillt hana þar til tíminn er kominn.“
Hver manneskja ræður sjálfri sér og við getum
haft jólahaldið eins og okkur sýnist. Það eina
sem mér finnst hættulegt í þessu er að sum
okkar hafa ekki efni á því hátiðahaldi sem
hefðin býður.
Höfum jólin á okkar máta
I fjölmiðlum er fyrir jól alltaf hringt í einhverja
presta og þeir látnir býsnast yfir kaupæðinu og því
livað er byrjað að skreyta snemma. Fæ ég ekki eitt-
hvað slíkt frá þér í lokin?
„Nei, aldeilis ekki. Mér finnst jólin stórkostleg
gjöf í skammdeginu. Það mætti byrja að skreyta í
október mín vegna. Vinkona mín er kaupkona á
Skólavörðustígnum. Hennar Jrúð og aðrar búðir
borga skreytinguna sem ég nýt ókeypis," segir Auður
og hlær. „Það er fallegt af kaupmönnunum að taka
þetta á sig en ég geng inní þetta þegar mér hentar.
Hver manneskja ræður sjálfri sér og við getum haft
jólahaldið eins og okkur sýnist. Það eina sem mér
finnst hættulegt í þessu er að sum okkar liafa ekki
efni á því hátíðahaldi sem hefðin býður. Það er erfitt.
En við verðum sameiginlega að mæta þeim kvíða.
Við verðum að finna leið til að við getum öll notið
betri kjara og sum okkar þurfi ekki að fá jólasteikina
gefins."
Kynning
Vertu með allt á hreinu
Greiðsiuþjónusta íslandsbanka er þægiieg þjónusta
fyrir fólk á öllum aldri sem kýs fyrirhafnarlítinn
greiðslumáta og stöðugleika í fjármálum.
Enginn fyrirhöfn
Með því að láta bankann sjá um að greiða reikningana losnar þú
við óþarfa fyrirhöfn. Reikningarnir eru sendir beint í bankann þar
sem gengið er frá greiðslu þeirra.
»: • • ¥ w'i]
i1
Viltu eiga afgang?
Stundum er eins og allir stóru reikningarnir komi í sama mánuðinum, svo erfitt getur
reynst að kljúfa útgjöldin þann mánuðinn, meðan aðrir mánuðir skila ágætis afgangi.
Greiðsluþjónustan miðar að því að jafna sveiflur í útgjöldum heimilisins og tryggja
stöðugleika í fjármálum. Með aðstoð þjónustufulltrúa bankans er gerð greiðsluáætlun
og útgjöld og tekjur næstu 12 mónuði áætluð. Þeim er svo deilt niður í tólf jafnar
mánaðargreiðslur. Mónaðarlega færðu svo sent yfirlit yfir greiðslureikninginn sem
auðveldar þér yfirsýn yfir fjármálin. Reikningarnir eru sendir í bankann þar sem
gengið er frá greiðslu. Mánaðarlega færðu sent yfirlit yfir greiðslureikninginn.
Kostir greiðsluþjónustunnar eru ótvíræðir:
■ Enginn gluggapóstur
■ Engar biðraðir
■ Útgjaldasveiflur jafnaðar
■ Meira öryggi
■ Fyrirhafnarlaust og þægilegt
Timasparnaður
Með greiðsluþjónustu Islandsbanka nýtir jm bæði tíma þinn og fjármuni betur. Þú
hefur góða yfirsýn yfir fjármálin og losnar við áhyggjur af sveiflum í útgjöldum. Vertu
viss um að eiga alltaf afgang og njóttu þess að vera með allt á hreinu á nýju ári.
ÍSLANDSBANKI