Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 49

Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 49
Nýr rektor Tækniháskóla íslands var ráðin í sumar og þar gustar nú af nýjum hugmyndum. Stefanía Katrín Karlsdóttir vill fjölga nemendum til muna, einkum í tæknigreinum, gera skólann sýni- legri eða skapa honum ímynd og breyta fleiru: bæta við náms- greinum til BS-prófs, einfalda yfirstjórn og auka sveigjanleika. Þá er nám til meistaragráðu með tilheyrandi rannsóknastarfi í bígerð í kjölfar lagabreytingar. Stefanía segir í viðtali við Veru að sókn- arfæri séu mikil til kvenna, þær séu enn í afgerandi minnihluta nemenda í tækninámi við skólann. Sjálf hafi hún ekki litið á sig sem sérstaka kvenréttindakonu, menntuð í ýmsum hefðbundnum karlafögum og komin við stjórnvöl á vinnustað sem ennþá sé einskonar karlaveldi. Hún meti fólk út frá hæfni, aldrei kyni, og hafni því að fá tækifæri út á eigið kynferði. menntun kvenna Að slá ekki af mati á sjálfri sér Nemendur við Tækniháskólann eru nú um 670, tíundi hluti þess fjölda sem sækir nám við Háskóla Islands. Enda sérhæfir Tækniháskólinn sig í fögum sem nafnið bendir til, auk rekstrarfræði og almennrar undirbún- ingsdeildar. „Þetta takmarkaða náms- val eða sérhæfing er og verður í aukn- um mæli styrkur skólans, greinar sem vantar fólk til að vinna við,“ segir Stef- anía. „Ég vil fjölga nemendum töluvert á næstu þremur árurn, bæði körlum og konum, en þær hafa hingað til alltof fáar sótt í tæknimenntunina. Með fleiri nemendum nýtist fjármagnið sem við höfum betur, en það að má líka liag- ræða í rekstri skólans og vinnulagi. Ég mun nota svonefnda árangursstjórnun, setja viss markmið og mæla reglulega hvernig gengur að fylgja þeim. Þetta getur átt við um kynningu í fjölmiðl- um, sem rnjög þarf að bæta, fjármál skólans og gæði kennslunnar. Stefanía hofur endurskoðað námsframboðið og mun bæta við brautum, í fyrstu raf- magns- og byggingafræði að BS-gráðu. Hún hyggur jafnframt á gott með mastersnám sem undirbúið verður komandi misseri. Skólinn hafði verið á framhalds- og háskólastigi, en hefur nú lögformlega fengið réttindi sem fullgildur háskóli. Þetta jafngildir breytingu úr „college" í „university" ef miðað er við engilsaxnenskt kerfi. Því fylgir rann- sóknarnám á framhaldsstigi, en þegar eru hagnýtar rannsóknir og verkefni unnar við skólann í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrir- tæki. Tengsl skólans við atvinnulífið eru að mati Stefaníu lykilatriði, hann bjóði hagnýtt nám í takt við tímann, frekar en að líta á sig sem almenna menningarstofnun. Hlutföll kynja við nám í Tækniháskólan- um eru öfug við HI, svo sá samanburður sé aftur gerður, 62% nem- enda í haust eru karlar, en hlutfall HÍ er urn 65% konur. Hér koma tæknifögin enn til álita en því er líkt farið með háskólana tvo, að karl- ar sækja þau í miklum meirihluta. Við Tækniháskólann eru tvö fög kennd sem konur hafa langmest stundað, meinatækni og geislafræði, nemendurnir eru of fáir að sögn Stefaníu og kennslan hlutfallslega dýr. Heilbrigðisfögin eru reyndar háð fjöldatakmörkunum spítala, en Stefanía segir engu að síður þörf á að fjölga þar nemendum. Það gildi ekki síður um tæknigreinarnar, því úr þeim kalli atvinnulífið eftir fólki. Rekstrardeildin sé sú deild sem konur sæki jafnt og karlar. Sé svokölluð frumgreinadeild skoðuð kemur fram mikill munur kynja, langflestir karlar. Stefanía segir að þetta séu gjarna iðnaðarmenn, sem láti meta menntun sína og reynslu og bæti við því sem uppá vantar til stúdentsprófs. Eða fólk með stúdentspróf sem vantar meiri menntun í raungreinum. Til þess að geta svo haldið áfram á liáskólastigi við skól- ann og slíkir nemendur, sem ætli sér lengra, gangi fyrir þegar valið er úr umsóknum. Undanfarið hafi um helmingur haldið áfrarn í sérfög, það hlutfall sé of lágt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.