Vera - 01.12.2002, Side 24
\l 5 ARA STEtPLL
fátækt er dýr
Linda hefur ekki efni á að reka bíl en þau
mæðginin vakna klukkan 6 á morgnana og taka
þrjá vagna til þess að komast í leikskólann og
vinnuna úti á Nesi.
efni á að kaupa grænmeti eða fisk í matinn en verð-
ur að láta sér nægja ódýrari mat, eins og t.d. unnar
kjötvörur. „Ég hef þyngst um 10 kíló frá því óg kom
heim og ég held að það sé bara vegna þess að ég
borða ekki nógu hollan mat. Strákurinn fær græn-
meti í leikskólanum og ég verð bara að láta það
nægja.“
Nýlega þurfti Linda að fara með Aaron til sér-
fræðings og fá astmalyf fýrir hann og það kostaði um
8.000 krónur. „Ég fékk 10.000 króna lán hjá vinkonu
minni til þess að lifa fram að mánaðamótum og
núna, 18. nóvember, er það allt sem ég á.“
Á biðlista eftir félagslegri íbúð
Aaron skynjar vel að þau hafa minni fjárráð en marg-
ir aðrir. „Þótt hann sé bara fjögurra ára kvartar hann
stundum yfir því að við eigum engan bíl, eins og for-
eldrar vina hans í leikskólanum," segir Linda. „Þeg-
ar við bjuggum í Bandaríkjunum vorum við í 120 fm
parhúsi og ég gat gert svo miklu meira með honum
en ég get núna. Það var eiginlega ekki fýrr en í ágúst,
þegar við vorum búin að búa hérna í tæpt ár, að hann
var farinn að sætta sig við þetta allt saman.“
Hún bætir því við að hann hafi nýlega verið
greindur sem ofvirkur og að ofvirk börn þoli allar
breytingar mjög illa. Hún segir hegðunarvandamál
hans þó ekki enn hafa haft bein áhrif á fjárhag þeirra
enda sé hann ekki kominn á lyf ennþá. „En kannski
verður það erfiðara þegar hann byrjar í
skóla. Mér er sagt að ofvirk börn slíti föt-
unum sínum yfirleitt fyrr en önnur börn
og sé hættara við að týna dótinu sínu.
Stoppa kannski á leiðinni heim úr skólan-
um til að spila fótbolta og skilja úlpuna
sína eftir á vellinum þegar þau fara heim.“
„Já, ég myndi sko segja að óg væri fátæk,“ segir
Linda ákveðið þegar hún er spurð hvort hún skil-
greini sig á þann hátt. Hún viðurkennir líka að hún
skammist sín fyrir fátæktina. „Ég skammast mín fyr-
ir það og mér finnst mjög erfitt að vinna við skúring-
ar þegar ég veit að ég hef svo margt annað að bjóða.
Það má líka segja að ég sé ennþá húsnæðislaus, en
íbúðirnar í þessu húsi eru yfirleitt ekki leigðar nema
í 6 - 9 mánuði í senn. Ég er búin að vera á biðlista eft-
ir félagslegri íbúð í ár og þarf víst að bíða að minnsta
kosti ár í viðbót. Mór finnst staða mín vera mjög
slæm en mér skilst að hún þurfi að vera enn verri til
þess að óg fái meiri hjálp frá hinu opinbera. Og ég
þekki marga sem eru í sömu sporum og ég, aðallega
konur. Það er ekki bara hjá mér, heldur hjá svo mörg-
um öðrum sem ekkert má út af bregða.“
En hversu lengi er hægt að búa við svona ástand?
„Ég verð auðvitað að þola þetta eins lengi og þörf
krefur. Ég reyni að temja mór jákvætt hugarfar og tek
bara einn dag fyrir í einu. Ég verð að trúa því að þetta
sé aðeins tímabundið ástand og reyni að hugsa eins
og Pollýanna svo ég leggist ekki bara í þunglyndi,
því ég veit að það gerir róðurinn bara ennþá þyngri,"
segir Linda að lokum.
Fátækt á íslandi við upphaf nýrrar aldar
Fátækt á Islandi
m
m'
11
víð upphaf nýrrar aldar
Hin dulda félagsgerð borgarsamfólagsins
A T
0 a
■8 ö-
■© 0
© i
Hin dulda félagsgerð borgarsamfélagsins
Höfundur: Harpa Njáls
Útgefandi: Borgarfræðasetur og Háskólaútgáfan
I þessari bók er fjallað um einkenni og aðstæður fátækra í íslensku nú-
tímaþjóðfólagi. Höfundur nálgast viðfangsefnið frá mörgum sjónarhorn-
um, með lýsingum á opinberum talnagögnum, kenningum um velferð og
fátækt og með viðtölum við fólk sem býr í fátækt. Þá útfærir höfundur mat
á lágmarks framfærslukostnaði sem sýnir hvað þarf lil að komast af í ís-
lensku borgarumhverfi. Niðurstaða þess mats er borin saman við þær iág-
marksupphæðir sem almannatryggingar og félagsþjónusta sveitarfélaga
veita og er sýnt að talsvert vantar uppá til að fólk geti lifað því lífi sem
stjórnvöld þó telja æskilegt lágmark. Fólk í sumum þjóðfélagshópum er
oft dæmt til að lifa viö fátækt án auðveldra útgönguleiða. Þessi greining
gefur athyglisverða sýn inn í fátæktaraðstæður á Islandi og hvernig vel-
ferðarríkið bregst fólki í einstökum þjóðfélagshópum.
Borgarfræðaseii