Vera - 01.12.2002, Qupperneq 52

Vera - 01.12.2002, Qupperneq 52
kvikmyndir Úlfhildur Dagsdóttir mislurlenslt |é>l Meðan jólin geysa er gott að komast í austurlenska stemningu, slaka vel á og njóta þess að hverfa úr greipum hátíðarinnar inn í annan heim sem veit ekki að jólin eru til. Þegar þið eruð búin að gæða ykkur á þessum kvikmyndum er svo alveg kjörið að líta á nýlegar bækur með austurlensku bragði, Sunnan við mærin, vesturafsól eftir Haruki Murakami, Balzac og kín- versku saumastúlkuna eftir Dai Sijie og Undrun og skjálfta eftir Amélíu Nothomb. Princess Mononoke Hayao Miyazaki 2000 Fyrir umhverfísvænar: Allt austurlenskt og sérstaklega asískt er í mikilli tísku um þess- ar mundir, Hong Kong kvikmyndir, Minningar Geishu og Sushi. Einn af áhrifa- völdunum í þessari asísku uppsveiflu eru japanskar myndasögur, Manga, sem hafa sett mark sitt jafnt á vestrænar myndasögur sem vestrænan fatastíl og nú kvikmyndir. Leikstjóri og handritshöfundur Mononoke, Hayao Miyazaki, er myndasöguhöfundur, en meðal myndasagna hans er hin dásam- lega Nausicaa of the Valley of the Wind. • Líkt og Nausicaa er Princess Mononoke ævintýri með umhverfisverndarboðskap og gerist í forsögulegri fortíð Japan. Náttúran er miskunnarlaust rányrkt og hinn ungi Ashitaka kallar óvart yfir sig bölvun þegar hann drepur verndarvætt skógarins. Hann leggur í leiðang- ur í leit að uppruna bölvunarinnar og hittir fyrir leiðtoga rányrkjaranna Lady Eboshi og fulltrúa náttúrunnar Prinsessu Mononoke sem er fósturdóttir úlfa og er tilbúin að deyja í baráttunni gegn græðgi mannanna. Myndin sameinar kyrrlátt raunsæi og harðan hasarstíl japanskra Samurai mynda og er hrein sjónræn gleði. The Emperor and the Assassin (Jing ke ci qin wang) Kaige Chen 1999 Fyrir dramatískar: Leikstjórinn Kaige Chen er líklegast þekktastur fyrir mynd sína Farvel frilla mín, sem hlaut gullpálmann í Cannes 1993. Hann er einn af þeim fjölmörgu asísku leikstjórum sem sett hafa mark sitt á tíunda áratuginn og helgar sig fyrst og fremst sögulegum tíðar- andamyndum. The Emperor and the Assassin hefur allt það til að bera sem einkenna skal góð- an tíðaranda, glæsilega myndatöku, stór- fengleg svið, splatter og epíska breidd. Og svo auðvitað magnaða sögu, byggða á sannsögulegu efni, sem segir frá fyrsta keisaranum í Kína sem á sér það markmið að sameina hin fjölmörgu kongungsdæmi landsins. Hjákona hans hjálpar honum af mætti og fær til liðs við sig frægan tilræðismann til að sviðsetja falskt tilræði við keisar- ann en hið misheppnaða tilræði á að sanna yfirburði keisarans. Tilræðismaðurinn er að reyna að slíta sig frá sinni blóðugu fortíð meðan keisarinn gerist æ blóðþyrstari og hjákonan finnur að ást hennar er komin í uppnám... Þarf ég að segja meira? 52 Einnig langar mig að benda á myndir Wong Kar-wai en grein um hann (eftir mig) er að finna á www.kistan.is Skríðandi tígur, dreki í leynum Skylduáhorf fyrir allar: Sagan gerist í Kína snemma á 19. öld og segir frá tveim- ur bardagalistamönnum, Li Mu Bai og Yu Shu Lien, og árekstrum þeirra við unga og villta bardagakonu, Jen, sem er þjálfuð af helsta óvini Li, Jade Fox, en hún hafði myrt meistara hans. Li og Yu eru ástfang- in en strangar hefðir og heiðursreglur hafa meinað þeim að eigast. En nú hefur Li á- kveðið að setjast í helgan stein og eyða því sem eftir er af lífinu með Yu. Til þess að innsigla þetta færir hann henni sverð sitt til að setja það í geymslu hjá sameig- inlegum vini þeirra. En ofurhuginn Jen stelur sverðinu og allt springur uppíloft. Bókstaflega uppíloft, því eins og frægt er orðið fara bardagarnir almennt fram uppi í loftinu, á húsþökum og trjátoppum. Bar- dagatæknin er forn útgáfa af Kung-fu, sem á að vera svo mögnuð að þeir sem tækn- ina höndla geta bókstaflega flogið, eins og hetjur vorar gera, með hjálp tölvutækni og víra. Sagan af hinum skríðandi tígri og hulda drekanum er því hvorttveggja í senn ævintýraleg og spennandi bardaga- mynd, og ljúfsárt og hárómantískt drama. Það er svo margt sem gerir þessa mynd eftirtektarverða að mér mun ekki takast að gera því öllu skil. Það er til dæmis magnað að gera bardagalistamynd sem er með konur og kvenhetjur í aðal- hlutverkum. Reyndar tíðkast þessi á- hersla á kvenhetjur í japönskum mynda- sögum, manga, en rnyndin minnir mjög á þá tegund myndasagna. Og þar með er ég komin í hring.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.