Vera - 01.12.2002, Side 60

Vera - 01.12.2002, Side 60
EG BIÐST EKKI AFSOKUMAR Á ÞVÍ AÐ BERJAST FYRIR RÉTTIMDUM KVEMMA segir Seodi White lögfræðingur og baráttukona fyrir jafnrétti kynjanna í Malaví í Malaví, eins og mörgum öðrum Afríkulöndum, láta nú frjáls félagasamtök í auknum mæli að sér kveða í baráttunni fyrir lýðræðislegum stjórnarháttum og réttlátara samfélagi, en baráttan fyrir jafnrétti kynj- anna er mikilvægur þáttur þeirrar starfsemi. Samtök sem nefna sig Konur og lög í suðlægri Afríku (Women and Law in Southern Africa) eru meðal þeirra frjálsu félagasamtaka sem eru í forystu þessar- ar baráttu í Malaví. Samtökin eru rannsókna- og bar- áttusamtök sem reka starfsemi í sjö löndum í suð- laegri Afríku en markmið þeirra er að bæta lífskjör kvenna með því að veita lagalega ráðgjöf og með því að kynna fólki jafnréttis- og mannréttindamál. Sam- tökin fjármagna einnig rannsóknir á lagalegri stöðu kvenna og standa fyrir sérstökum aðgerðum sem stuðla eiga að breytingum á lögum sem ganga á rétt fólks vegna kynferðis. Ég mælti mér mót við framkvæmdastjóra samtak- anna í Malaví, Seodi White, til að spjalla um jafnrétt- isbaráttuna, afrískan feminisma og systralag. Ég bað hana að segja mér fyrst frá helstu baráttumálum jafn- réttishreyfingarinnar í Malaví. Seodi White flettir eintaki af Veru ■o TJ i/i XI (0 X c ‘3 to 3 o ■o c >. E CJl o TS +* *o > fU J- 0) > 60 Heimilisofbeldi og menntunarmál kvenna Út frá sjónarhorni minna samtaka er heimilisofbeldi gríðarlega stórt vandmál í Malaví og það sem gerir á- standið enn verra er að mjög sjaldan er talað um þetta málefni. Það var í rauninni ekki fyrr en árið 2000 sem heimilisofbeldi var viðurkennt sem vanda- mál í Malaví eftir að samtökin okkar stóðu fyrir sér- stöku baráttuátaki í landinu sem kallaö var ‘Sextán daga barátta gegn kynbundnu ofbeldi’. Reyndar hafði malavíska ríkisstjórnin viðurkennt árið 1997 að til væri kynbundið ofbeldi en þá var lögð áhersla á mál- efni barna í því sambandi og ekki talað um fullorðn- ar konur. Þannig að þetta er stórt vandamál hér, sér- staklega vegna þagnarinnar sem umlykur það“. Seodi segir að það sé af mörgu að taka þegar fjall- að er um þá mismunun sem konur verða fyrir vegna kynferðis síns. Erfðaréttarmál kvenna og menntun eru önnur mjög stór vandamál í landinu en Seodi segir að menntunarmál kvenna sé langtíma baráttu- mál sem hún hafi áhuga á að leggja meiri áherslu á í framtíðinni. Skortur á tækifærum til náms er reynd- ar vandamál meðal bæði kvenna og karla í Malaví en opinberar prósentutölur sýna hins vegar að mun fleiri konur en karlar skortir alla grunnmenntun. „Þetta á rætur sínar að rekja til þess hvernig hlut- verk og gildi kynjanna eru skilgreind í malavísku samfélagi. Ætlast er til þess af konum að þær gifti sig þegar þær ná ákveðnum aldri og helgi fjölskyldunni tíma sinn en karlar fá oftast einhver tækifæri til að mennta sig“. Giftingaraldur kvenna í Malaví er töluvert lægri en á meðal karla og er þetta talið ein af megin ástæð- unum fyrir því að stór hluti stúlkubarna í landinu ljúka aldrei síðustu bekkjum barnaskóla. Fyrir sam- tök eins og Konur og lög skapar þessi menntunar- skortur líka ákveðið vandamál því erfiðara er að koma þekkingu til fólks sem ekki getur lesið ritað mál. Þeir bæklingar og blöð sem samtökin nota til að kynna starf sitt og þjónustu í landinu nær þannig ekki til stórs hóps kvenna.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.