Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 64
vera
Konur og lög hafa boðið starfsfólki ýmissa mikilvægra stofnana
samfélagsins upp á námskeið þar sem fjallað er um jafnréttis- og
mannréttindamál, því eins og Seodi orðaði það kankvís á svip:
„Þannig munum við breiða út hina 'heilögu ritningu' jafnréttis- og
mannréttindahugsjónarinnar".
um að það var eitthvað rangt við hvernig staða mín
sem kona var skilgreind í samfélaginu - það var eins
og ég tilheyrði annarri dýrategund en karlar. Og svo
þegar ég byrjaði háskólanám í Botsvana þá kynntist
ég feminískum kenningum og ég fann það um leið að
ég dróst að þessari hugmyndafræði. Hugmyndafræð-
inni um jafnrétti. Þessar kenningar gáfu svar við svo
mörgu sem ég hafði alla tíð sett spurningarmerki við.
Þannig var það, ég bara dróst að þessu.“
Minningin um þessi tímamót í lífi hennar er
greinilega sterk en Seodi bætir þó við að á meðan
hún var í námi hafi hún verið mjög metnaðargjarn
lögfræðinemi og hún hafi átt sér þann draum að berj-
ast fyrir réttindum kvenna en ná samt glæstum frama
sem lögfræðingur og hafa það gott.
„En þegar ég svo lauk námi ákvað ég að prófa
fyrst að vinna fyrir frjáls félagasamtök sem berjast
fyrir réttindum kvenna í Botsvana og ég vissi þá strax
að þetta var það sem ég vildi vinna við til æviloka,
hvað sem liði öllum Mercedez Bensum, því þetta gaf
mér svo mikla lífsfyllingu. Svo þegar óg flutti aftur
heim til Malaví þá vann ég fyrstu tvö árin hjá lagafyr-
irtæki því ég fann ekki vinnu sem hentaði mór hjá
þeim frjálsu félagasamtökum sem þá störfuðu í land-
inu. En svo auglýstu samtökin Konur og lög eftir að-
ila til að setja á fót skrifstofu fyrir samtökin í Malaví
og ég þurfti ekki að hugsa mig um tvisvar. Ég fékk
vinnuna sama dag og ég sótti um hana, hætti hjá
lagafyrirtækinu og byrjaði að reka skrifstofuna í húsi
móður minnar þar sem ég bjó þá. Og ég hef aldrei séð
eftir þessari ákvörðun því þessi barátta er minn vett-
vangur," segir Seodi ákveðin.
Það fer að líða að lokum þess tíma sem við höfum
til að spjalla. Viku fyrr hafði ég séð Seodi í malavíska
ríkissjónvarpinu þar sem hún tók við skólastyrk sem
breska sendiráðið í Malaví veitir árlega. Og aðeins
tveimur dögum eftir samtalið okkar hélt hún af stað
til Bretlands þar sem hún ætlar að stunda masters-
nám í kynja-og þróunarfræðum við Sussex háskól-
ann næsta árið. Ég spurði hana að lokum því hún
hafi valið þetta nám og hver framtíðaráform hennar
væru.
„Mig langar til að bæta við þekkingu mína á sviði
félagsvísinda, að dýpka skilning minn á fólagslegum
og efnahagslegum þáttum sem hafa áhrif á stöðu
kvenna í heiminum og auðvitað sérstaklega í mínu
eigin landi því þar ætla ég að gera rannsóknina fyrir
mastersritgerðina. Ég er ekki ennþá komin þangað
sem ég vil vera, ef ég get orðað það þannig. Mér
finnst ég þurfa að öðlast dýpri innsýn í þessi mál og
auka sjálfstraust mitt á þessum sviðum svo ég geti
lagt meira af mörkum í starfi mínu þegar ég kem til
baka. Ég á mér þann draum að koma á fót mínum eig-
in félagasamtökum hérna í Malaví í framtíðinni þar
sem áherslan verður á að bæta menntun kvenna. Þar
er þörfin svo brýn og árangurinn svo sýnilegur því
bara það að geta lesið og skrifað þýðir grundvallar
breytingu í lífi kvenna".
64
einsfélags
Ðregið 24. (fcscmSer 2002
Upplýjingar uiroffpninqsnúmer i
Slmum.S40 1918^^sv.nri) og 540 1900
A wwyr.lrnbt«^app
fPdttta/qi í ímppdmtti
Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við
mikilvægt forvarnastarf
‘Vinningar:
1 Zy 0 íkaufrjáísir vimiinijflr
dð vcrðimrti 18.190.000 kr.
1 Alfa Romeo 156
Verömæti 2.390.000 kr.
1 Bifreið eða greiðsla upp í ibúð
Verðmæti 1.000.000 kr.
14 8 Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun
Verðmæti 100.000 kr.
Ijildi útpetinn* mlöa: I J6.000
Veiitu stuðnirig - vertu með!
‘Dregið 24. desemúer