Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 66
Kynning
Aðal - Tannsmíðastofan
Aðal - Tannsmíðastofan að Hátúni 8 er í eigu írisar Bryndísar Guðnadóttur
tannsmíðameistara og tanntæknis. Hún opnaði stofuna eftir að samþykkt
voru ný lög nr. 109/2000 um starfsréttindi tannsmiða en þar með var tann-
smiðum heimilt að starfa sjálfstætt. Tannsmíðafélag íslands hafði lengi barist
fyrir þessum réttindum en samsvarandi lagabreyting var gerð í Danmörku
árið 1979. íris Bryndís var formaður félagsins í 12 ár og tók virkan þátt í því
að koma starfsréttindum tannsmiða í höfn.
„Áður en lögin voru samþykkt þurftu tannsmiðir að starfa undir handarjaðri tannlækna
en nú er okkur heimilt að starfa sjálfstætt og sinna klínískri vinnu, þ.e. taka mót af góm-
um og vera í beinum tengslum við viðskiptavinina," segir íris Bryndís en bætir við að þeg-
ar á þurfi að halda starfi hún með tannlækni sem hún deilir húsnæði með.
„Tannsmiðir sem hafa fengið klínísk starfsréttindi geta á eigin ábyrgð smíðað
tanngóma og þar með unnið við töku móta og mátun en ef um brýr eða krónur er að ræða
þarf að fara til tannlæknis. Við erum með samskonar samning við Tryggingastofnun og
tannlæknar þannig að nú getur fólk snúið sér beint til okkar ef það þarf að láta smíða góma
eða laga þá. Fólki finnst mikill munur að geta talað beint við tannsmiðinn og það er líka
mikilvægt fyrir okkur að fá að sjá það fólk sem við erum að smíða góma fyrir. Það gerir
okkur auðveldara að líkja eftir upphaflegu tönnunum og uppfylla sórstakir óskir fólks."
rr *
< — *
■' f -H
f -vyapK 'VX: JJT"
Tslý sending af áramótakjólum
Aðeins einn i hverri stærð
Kynntu þér veröið
Garðatorgi 3 | Sími: 565 6680
Opið: 9-18, laugardaga 10-14
Starfsréttindi frá Árósarháskóla
Þegar lögin voru samþykkt fengu sex tannsmiðir starfsrétt-
indi eftir að hafa verið í mánaðartíma við Árósarháskóla
til að sanna sig og fengu að því loknu skírteini frá tann-
smíðadeild skólans og starfsleyfi á íslandi frá iðnaðar-
ráðuneytinu.
„Eg starfaði lengi sem tanntæknir á tannlæknastofu,
m.a. á stofu sem sérhæfði sig í tannholdsaðgerðum og fékk
þar góða reynslu í klínískri vinnu. Síðan vann ég hjá
Reykjavíkurborg, bæði á tannlæknastofum og við að leið-
beina börnum í skólum. Ég lauk tannsmíðanámi 1976 og
starfaði sem tannsmiður á tannlæknastofu frá 1980 og þar
til ég opnaði Aðal - Tannsmíðastofuna," segir íris Bryndís.
Aðal - Tannsmíðastofan flytur inn MAXIL gervitanna-
og munnhreinsiefni sem er nú til í ffestum apótekum. Um
er að ræða hreinsilínu úr náttúrulegum efnum sem vinna
gegn slímhúðarbólgu og sveppasýkingum sem er algengur
vandi hjá fólki með gervitennur. Einnig er í línunni efni
sem losar upp tannstein og litarefni á gervitönnum, krem
við særindum sem er kælandi, deyfandi og græðandi og
tannburstar fyrir tennur og gómstæði. Nánari upplýsingar
fást á www.maxil.net
Aðal - Tannsmíðastofan hefur fengið viðurkenningu
frá Sjálfsbjörgu fyrirgott aðgengi hjólastóla. Síminn er 552
551 og heimasíða vortex.is/irisbg