Vera - 01.12.2002, Blaðsíða 70
Bækur
Allra-allra besta sagan
af sjóreknu píanóunum
Ástir konu og
fræða
Sigriöur Dúna Kristmundsdóttir
ritstjóri
B J Ö R G
Sagan af sjóreknu
píanóunum
Guörún Eva Mínervudóttir
Bjartur, 2002
Guðrún Eva Mínervudóttir hefur
áður gefið út fimm bækur; Ijóð,
smásögur og skáldsögur. Fyrr á
þessu ári sendi hún frá sér skáld-
söguna Albúm sem mér fannst
vera hennar allrabesta, en eftir að
hafa lesið Söguna af sjóreknu pí-
anóunum finnst mér hún vera sú
allra-allrabesta. Guðrún Eva held-
ur áfram með minnispælingarnar
úr Albúmi, bæði með því að önn-
ur aðalsöguhetjan, Sólveig, segir
hinni aðalsöguhetjunni, Kolbeini,
sögu sína og ættarinnar, en líka
með því að Kolbeinn les endur-
minningar afa síns.
Saga Kolbeins hefst 1949 þeg-
ar flett er ofan af afa hans í morð-
máli og segir sögu afans og ömm-
unar, dóttur þeirra og Helga, eig-
inmanns hennar, sem elur Kol-
bein upp. Stöku sinnum skýtur
Sólveig upp kollinum, en hún er
jafnaldra Kolbeins og er beinlínis
hirt upp af götunni til að syngja
fyrir hann. Pabhi hans tekur söng-
inn upp og sendir henni á segul-
bandi. Kolbeinn er síðan sendur í
sveit til ömmu hennar og afa þar
sem hann uppgötvar ástina.
Löngu síðar þegar hann og Sól-
veig ná saman, segir hún honum
sína ættarsögu og um hana fjallar
seinni hluti bókarinnar.
Mikil tónlist flæðir um bók-
ina, enda er hún tileinkuð Jórunni
Viðar tónskáldi. Ballet hennar
Ólafur liljurós er margrómaður en
Kolbeinn hrífst mjög af honum á
pönkárum sínum(l). Píanókennari
Sólveigar hefur mikil áhrif á líf
hennar og margar aðrar persónur
eru tónlistarfólk.
Annað leiðarstef gegnum sög-
una er sjálf sagan af sjóreknu pí-
anóunum. Afi Kolbeins ætlaði að
græða á tónlistarkennslu dóttur
sinnar með því að selja nemend-
um hennar píanó. Hann fær fyrir-
framgreiðslu ffá níu manns og
kaupir jafnmörg píanó frá útlönd-
um og flytur þau inn. Þegar þau
koma til landsins á hann þó ekki
fyrir innflutningsgjöldunum og
nær aldrei að leysa þau út. Þetta
þykir saga til næsta bæjar og sag-
an af píanóunum verður einskon-
ar þjóðsaga þar sem allir kunna
sína útgáfu.
Það má eiginlega helst segja
um Söguna af sjóreknu píanó-
unum að hún er svo margræð,
hlaðin táknum og vísunum, að
nærri ógerningur sé að skrifa um
hana stutta umfjöllun. Hún er
heimspekileg, fyndin og spenn-
andi. Og fær allra-allra bestu
meðmæli.
Bára Magnúsdóttir
Björg
Verk Bjargar C. Þorláksson
Ritstjóri: Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir
JPV
A síðasta ári kom út tímamótaverk í
íslenskum fræðaheimi, Björg. Ævi-
saga Bjargar C. Þorláksson, eftir Sig-
ríði Dúnu Kristmundsdóttur mann-
fræðing. Sögu Bjargar var tekið fagn-
andi en hún er fyrsta fræðilega ævi-
saga konu, skrifuð með aðferðir
femínískrar ævisagnaritunar að leið-
arljósi.
Nú er komin út ný bók um Björgu,
Björg. Verk Bjargar C. Þorláksson.
Eins og nafnið gefur til kynna eru þar
birt nokkur verk Bjargar ásamt rit-
gerðum um fræði hennar. Ritstjóri er
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og
hún skrifar jafnframt um afskipti
Bjargar af kvenréttindum og ræðir
skrif hennar um þjóðfélagsmál. Helga
Kress gerir grein fyrir þýðingastarfi og
skáldskap Bjargar, Inga Þórsdóttir
næringarfræðinni, Steindór J. Erlings-
son fjallar um bakgrunn lífþróunar-
hugmynda Bjargar, Bryndís Birnir
ræðir um lífeðlisfræðina í doktorsrit-
gerð Bjargar, Annadís Greta Rúdólfs-
dóttir skoðar sálfræðina og loks fjallar
Sigríður Þorgeirsdóttir um heimspeki
Bjargar.
I formála ítrekar Sigríður Dúna
það sem glöggt má sjá í ævisögunni;
fræðin voru ástríða og líf Bjargar. Líta
má á sögu hennar, segir Sigríður,