Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 83

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 83
VESTUR-ISLENZK LJÓÐSKÁLD 65 Listhneigð Kristjáns og Ijóðræn skáldgáfa hans lýsa sér þó hvergi betur en í náttúrulýsingum lians, sumar- og vorljóðum hans og öðrum árstíða- kvæðum. “Winnipegvatn” er ágætt dæmi þess, hve opið auga skáldið átti fyrir fegurð og litbrigðum umhverfis síns á láði og legi. Kvæðið “Indíána sumarið” er einnig einkar fallegt. En skáldið gat einnig náð í strengi sí'na andblæ haustsins og eggjandi raust vetrarins, eins og kvæði hans um þau efni sýna. Kvæði hans um söguleg efni eru einnig mjög vel ort, og er “Skjöldur- inn” þeirra hvað tilkomumest; hinum kunna atburði úr Egils sögu Skalla- grímssonar, sem þar er tekinn til með- ferðar, eru gerð góð skil. Ádeilu kennir allvíða í kvæðum Kristjáns og missir ekki marks í kvæð- um sem “Minni Heródesar” og “Varg- öld” frá stríðsárunum síðari, og þar kemur eftirminnilega fram frelsis- og féttlætiskennd höfundarins og samúð hans með lítilmagnanum. Vinsæl gam- ankvæði hans, sem bera vitni glettnis- n’kri kímnigáfu hans, eru vel kveðin, víða hnyttilega að orði komist og eigi ósjaldan nokkuð meinlega, þó að roeira kenni þar glettni en græsku. Gott kvæði af því tagi er “Vegur spá- uiannsins”. Tækifæriskvæði Kristjáns eru með sömu einkennum lipurðar, léttleika og smekkvísi í orðavali, sem önnur kvæði hans, samhliða drengilegri vinhlýju í ’íkunr mæli. Eins og vænta mátti um jafn bragfiman mann og hann var, leik- ur ferskeytlan í höndurn hans, jafnt 1 gamni sem alvöru. Andlegu ljóðin eru merkur þáttur * skáldskap hans. Þar renna ljóðræn fegurð og einlægni í tilfinningu, sam- hliða truarvissu, í einn farveg, hvort heldur er í bljúgum bænarmálum eða lofsöngvum til lífsins herra, eins og í “Vorið kemur”. 20. Af hinum mörgu öðrurn vestur- íslenzkum skáldum og ljóðasmiðum, sem gefið hafa út kvæði sín í bókar- formi, eiga eftirfarandi að minnsta kosti skilið stutta umsögn: Sigfús B. Benedictsson (f. 1865), Norðmýlingur að uppruna, er um langt skeið hefir verið búsettur í Mani- toba (lengi í Winnipeg, en á síðari ár- um í Langruth), hefir, auk útgáfu blaða og annarra rita, fengist mikið við ljóðagerð. Meðal annars hefir hann gefið út kvæðasafnið Ljóðmæli (Win- nipeg, 1905), sem er að vísu merkilegra fyrir hinar róttæku og frjálslyndu skoðanir höfundarins (en hann hefir altaf hallast eindregið á þá sveif), frem- ur en fyrir búning ljóðanna og al- mennt skáldskapargildi. Hins er þá jafnframt að geta, að síðan þessi bók hans kom út hefir Sigfús birt í vestur- íslenzkum blöðum og tímaritum rnörg kvæði, frumort og þýdd, stórum betur ort og ljóðrænni, bæði tækifæriskvæði og önnur almennara efnis, eins og “Sól- aruppkoma” (Heimskringlu, 1942), sem lýsir vel hugsjónaást hans og hneigð til íhygli. Bjarni Þorsteinsson (1868-1943) var Austfirðingur að ætt, kom vestur um haf 1903 og stundaði lengstum ljós- myndagerð í Selkirk, Manitoba. Kvæði hans, sem komið höfðu öðru hvoru árurn saman í vestur-íslenzku viku- blöðunum, voru prentuð í úrvali að honum látnum, Kvæði (Winnipeg, 1948), og annaðist Gísli Jónsson útgáf- una. Þar eru Ijóðrænar náttúrulýsing-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.