Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Page 115
NOKKRIR VESTUR-ISLENZKIR LISTAMENN
97
Fine Arts og síðar sem Master of Fine
Arts.
Einnig stundaði hún framhaldsnám
við Cranbrook Academy of Fine Arts og
var þá Jón Magnús Jónsson, bróðir
hennar, kennari hennar í höggmynda-
list. 1 lok skólatímabilsins var haldin
sýning á listaverkum nemendanna og
var málverk eftir Önnu dærnt bezt
þeirra allra.
1 sumarfríum sínum hefir Anna sótt
listanámskeið til ■ þess að fullkomna
sig í ýmsum hliðum listarinnar. Eitt
sumarið stundaði hún algerlega vatns-
litmyndir, og því næst leirkerasmíði
(ceramics). Hefir hún miklar mætur á
þeirri grein listarinnar og hefir aðgang
að brennsluofni í vinnustofu vinkonu
sinnar.
Fyrir tveim árurn fór hún til Guata-
mala, Central America, og var þar í
sex vikur við að mála og kynna sér mál-
aralist. Myndir hennar hafa verið
sýndar hjá Nassau Art League.
Með þeim sem verið hafa kennarar í
fögrum listum ber einnig að telja
Helen Swinburne Lloyd. Hún er dóttir
tónskáldsins Sveinbjörns Sveinbjörns-
sonar og konu hans Eleanor (Christie)
og er fædd í Edinborg á Skotlandi 3.
desember 1892.
Helen útskrifaðist frá “Edinburgh
College of Art” í fögrum listum og tók
kennarapróf 1915. Einnig stundaði
hún framhaldsnám við sömu stofnun
og kendi síðan dráttlist í skólum á
Skotlandi og í Winnipeg eftir að hún
kom til þessa lands 1919.
Árið 1921 gekk hún að*eiga Ralph
E. A. Lloyd, liðsforingja sem þá var ný-
lega korninn heim úr fyrstu heimsstyrj-
öldinni. Stunduðu þau hjón búskap
nálægt Calgary (í Midnapore, Alberta)
þar til maður henar lézt, 1943. Þrjú
uppkominn börn, öll gift, á hún: eina
dóttur og tvo syni sem voru í canadiska
hernum í síðasta stríði.
Helen hefir málað mikið af lands-
lags- og mannamyndum með olíulitum
og vatnslitum og er einnig útlærð í út-
saumi, skrautritun og “Wood-block
printing”. Myndir hennar hafa verið
sýndar hjá “Society of Scottish Artists
í Edinborg og víðar, og hafa margar
þeirra verið seldar á uppboðum sem
haldin eru í sambandi við þessar sýn-
ingar. Fyrir nokkrum árum vann hún
fyrstu verðlaun við ‘Calgary Stamjsede’
sýningu fyrir mynd sína: “Larch and
Beetles”, (wood-block printing).
Efni í myndir sinar sækir hún, oft
í barna æfintýrasögur, eins og t. d.
“Hans Anderson’s Fairy Tales”, og eru
þær myndir sérkennilegar að mörgu
leyti, língerðar í dráttum, og hafa
yndislegan æfintýrablæ. Frá barnæsku
hefir hún haft áhuga fyrir þesskonar
efni, og byrjaði sjálf að skrifa barna-
sögur er hún var aðeins sjö ára. Þéss-
ar sögur á hún enn og eru þær mynd-
skreyttar af Þórði, bróður hennar, sem
er einnig mjög listfengur og hefir mál-
að töluvert þó liann ekki hafi lært mál-
arlist. Hann er og píanisti og tónskáld,
en er útskrifaður sem læknir frá Edin-
borg háskóla. Hann hefir átt við mikla
vanheilsu að stríða síðan hann kom
heim úr fyrri heimsstyrjöldinni.
Á búskaparárum sínum höfðu þau
Lloycl hjónin marga erfiðleika við að
etja, ekki sízt á krepputímunum, og
hefir Helen eflaust haft lítinn tíma eða
næði til jiess að sinna hugðarefnum
sínum, en fjölhæfni hennar og gáfur
gerðu þó vart við sig á ýmsum sviðum.
Hún er skáldmælt vel og ljóð eftir hana
hafa birst í ýmsum blöðum og tímarit-