Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Qupperneq 122
104
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
móðinn, að skreyta únítara kirkjuna á
Sherbrook stræti. Starf okkar var einn-
ig nokkuð ólíkt þar eð Fred teiknaði
‘practical signs’, en eg vann meira á
því sviði að mála ‘ornamental signs”.
Snæbjörn giftist árið 1914 Guðrúnu,
dóttur Daniels Sigurðssonar, pósts, sem
þá var nýlega komin frá Islancli. Árið
1926 fór hann frá Winnipeg í annað
sinn, og kona hans með honum. Var
hann nú lengi á leiðinni suður og mál-
aði í ýmsum borgum. “Stærstu auglýs-
ingamálverk mín voru gerð í Santa Fé,
er við vorum á leiðinni til San Diego
þar sem Mrs. Curry systir Guðrúnar
átti heima”, segir Snæbjörn. “Þaðan
fórum við alfarin til Vancouver, 1931.”
Nú eru flest öll leikhús orðin að
kvikmyndahúsum svo ekki er mikið
gert af því að mála leiksviðstjöld. En
Snæbjörn hefir nóg að gera. Hann
hefir skreytt samkomuhús í Vancouver
og mörg hótel, þar á meðal Patricia
hótelið. Á stofuveggi þess málaði hann
margar íslenzkar landslagsmyndir. Sum-
ar af þeim myndum eru tólf fet á lengd
og átta fet á hæð.
Fyrir ungmennafélag í Vancouver
(Icel. Luther League) málaði hann ný-
lega tíu rnyndir af íslenzku landslagi,
sem félagið hefir gefið gamalmenna
heimilinu “Höfn”.
óefað er Snæbjörn eini Vestur-ls-
lendingurinn sem hefir haft það fyrir
ativnnu að mála leiksviðstjöld.
V.
Fjöldi Vestur-íslendinga liefir iðkað
fagrar listir í tómstundum sínum. Af
þeirn var óefað Dr. Ágúst Blöndal mik-
ilvirkastur. Eftir hann munu liggja
meira en hundrað myndir fyrir utan
fjölda af allskonar teikningum. Mál-
verk hans prýða stofuveggi á heimilum
kunningja hans og ættmenna í Winni-
peg og víðar.
Dr. Blöndal var óvenjulega fjölhæfur
og listfengur. Frá bernsku hafði hann
yndi af því að teikna og mála myndir.
Ekki veittist honurn tími né tækifæri
til þess að fara í listaskóla og var hann
því að öllu leyti sjálfmentaður á því
sviði. Bera þó myndir lians vott um
ágæta tæknilega kunnáttu og eru mjög
fullkomnar. að formi, stíl og litavali.
Virtist svo sem alt efni léki í höndum
hans. Hann hefir rnálað landslags-
myndir, og jurta- og blómamyndir með
vatnslitum, olíulitum og duftlitum
(pastels). Blekmyndir (India ink brush-
work) gerði hann af snild og frábærlega
góðar mannamyndir teiknaði hann með
penna eða krít (charcoal). Skopmyndir
hans (caricatures) voru annálaðar fyrir
ágæti þeirra.
Ágúst var fæddur 8. júlí 1889 í Edin-
burg, N. D. Voru foreldrar hans
Björn Blöndal frá Hvammi í Húna-
vatnssýslu, og Björg Halldórsson, (syst-
ir Magnúsar B. Halldórssonar læknis í
Winnipeg). Foreldrar Bjargar voru
Björn Halldórsson og kona hans Hólm-
fríður sem bjuggu að Úlfsstöðum í
Norður Múlasýslu. Frá Norður Dak-
ota fluttu þau Björn og Björg til Port-
land, Oregon, og síðar til Winnipeg,
og þar ólst Ágúst upp. Hann tók lækn-
ispróf við Manitoba háskólann 1913.
og stundaði læknisstörf að Lundar í
fimrn ár. Árið 1915 kvæntist hann
Guðrúnu, dóttur Stefáns Pjeturssonar
og Geirþrúðar Jónsdóttur, sem bjuggu
í Argyle- (Man.) nýlendunni. Ágúst
stundaði framhaldsnám í læknisfræði í
London, Glasgow, Edinburg og París.
Eftir það hafði hann læknisstörf með
höndum í Winnipeg þar til er hann