Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 137

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 137
ÞINGTÍÐINDI 119 væri gott að fá greinargerð frá þeim hvað þeir hugsa um málið, um ráðstafanir, sem þegar hafa verið gerðar og um hugmyndir sem hinir ýmsu fulltrúar kunna að hafa um mál- ið. Eitt mál, sem komið hefir fram á dagskrá þingsins á hverju ári nokkur undanfarin ár, verður ekki tekið upp þetta ár, því það mál er nú útkljáð. Það er námsstyrkssjóður Agnes- ar Sigurðson. Hún er nú búin að miklu leyti að fullkomna sig og ná því takmarki, sem til var ætlast, og er ekki lengur nemandi, sem leitar styrks. Hún er orðin framúrskarandi góður píanisti, og hefir hlotið ágæta dóma í New York og víðar. Oss er heiður og sómi af að hafa þekt hæfileika hennar og að hafa styrkt hana til framhaldsnáms og hjálpað henni til að ná því stigi í píanóspili, sem hún nú er á. Nú er það mál hvað henni viðvíkur útkljáð. En þar sem að þetta félag er menn- ingarstofnun og hefir áður styrkt listafólk, væri það ekki úr vegi, að athuga möguleika til að veita öðrum ungum hæfileika piltum eða stúlkum styrk til framhaldsnáms, þeim, sem þess þurfa, til að fullkomna sig. Það er fátt sem gæti verið Islendingum meira til heið- urs og sóma en að geta styrkt ungt hæfileika- fólk á einhverju listasviði, og hjálpað þeim til að fullkomna sig, eða að minsta kosti kvatt það til þess. Annað mál, sem verður að öllum líkindum ekki mikið nteira en drepið á, á þessu þingi. er sögumálið, nema ef það væri aðeins til að fa skýringar frá formanni eða skrifara þeirrar nefndar, um gang málsins. Á síðasta þingi bar ritari sögunefndar fram skýrslu um samning milli nefndarinnar og mentamálaráðs á fs- landi. Hann útskýrði það, að mentamálaráðið hefði farið fram á að maður yrði fenginn hér tii að halda verkinu áfram. Milligöngumaður mentamálaráðsins fékk próf. Tryggva Oleson til að taka það verk að sér og er hann nú að draga saman fjórða hefti sögunnar. Þar stend- ur málið, að því er eg bezt veit. En ef að möguleikar eru á, og ef að nefndin hefir ein- hverja skýrslu til að bera fram, þá fær þing- ið hana til afgreiðslu áður en því lýkur. Svo eru tvö mál, sem liggja fyrir og sem til- kynt hafa verið stjórnarnefndinni á löglegan hátt. Annað þessara mála er um breytingu á þingtímanum, sem borið var fram fyrir þing fyrir einu ári. Nefnd verður sett í það mál ef nauðsyn þvkir og tillaga borin fram. Hitt málið er í sambandi við ársgjald meðlima. Skriflegur fyrirvari um það mál var borinn fram á fundi stjórnarnefndar s.l. nóvember- mánuð, þ.e.a.s. með fullum þriggja mánaða fyrirvara eins og lög félagsins krefjast. Það er skoðun framsögumanns, að ársgjaldið sé altof lítið og ætti að vera ekki minna en tveir doll- arar á ári. En nefnd verður einnig sett í það mál og það rætt og afgreitt seinna á þinginu. En nú vil eg fara örfáum orðum um önnur mál, sem unnið hefir verið að á árinu, sum með góðum árangri, og sum sem betur hefði et til vill getað ræzt úr. En hvað sem á vantar að fullkomlega hafi verið gengið frá öllum málum félagsins í hjáverkum frá öðrum störf- um. Nefndarmennirnir allir hafa mörgu öðru að sinna, og mér finst það stundum undra- vert, hve mikið er í raun og veru hægt að lcysa af hendi. En það er aðallega vegna hjálp- ar og aðstoðar inargra góðra manna, sem eru oft ósparir á tíma og kröftum til þess að mál vor fái framgang. Eg hefi í huga hér meðal annars, er eg minnist á útgáfumál, útgáfu Tímaritsins, og ósérhlífni ritstjórans, hr. Gísla Jónssonar í því máli. Tímarit Þjóðræknisfélagsins jafnast á við hin beztu ársrit af líku tagi, sem gefin eru út, bæði að efni og frágangi. Það er með sómu ágætum nú og það hefir ávalt verið á þessum þrjátíu árum, sem það hefir komið út. og vér eigum ritstjóra vorum miklar þakkir skildar fyrir ágætlega og samvizkusamlega unnið verk. Eg vona að félagið fái að njóta hans um margra ára skeið enn. Og svo fyrir auglýsingasöfnun í ritið, á Mrs. P. S. Pálsson sérstakar þakkir, því án hennar og án auglýs- inganna væri það kostnaðarins vegna, oss ó- mögulegt að gefa ritið út. Ársgjald félaga hrykki aldrei til þess. Þess vegna hefir því verið haldið fram, að hækka ætti ársgjald fé- laga, því það er ógjörningur að hugsa sér að íslendingar vilji halda félagi sínu við og starf- rækja það af ölmusugjöfum frá auglýsendum. En það mál verður nánar rætt síðar. Orð fá ekki lýst í hve mikilli þakkarskuld vér erum við kennara íslenzku skólanna, hvort sem er hér í Wpg., eða út um bygðir, þar sem slíkir skólar eru. Það er mikið og ábyrgðarfult starf, og þeim tekst að vinna það aðeins, sem hafa huga og sál við það. Eg hefi ekki full- komnar upplýsingar um starfið út um bygðir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.