Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 155

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 155
ÞINGTIÐINDI 137 Stofnendur kennaraembættis í íslenzkri tungu og íslcnzkum fræðum við Háskóla Manitobafylkis Reglur og Ákvæði Stofnendur skiftast x fjóra flokka. Allir slofnendur, í hvaða flokki sem er, verða að leggja fram ekki minna en eitt þúsund dollara. Fyrsti flokkur Einstaklinga Stofnendur 1 þessum flokki eru allir sem leggja fram per.'.ónulega $1000.00 eða meir. Öll bréfavið- skifti í sambandi við borganir annast skrif- ari Stjóinarnefndar Stofnendanna, Miss Margrét Pétursson, 45 Home St. Winnipeg. Ávísanir borgast til Háskóla Manitobafylkis og eiga að sendast til skrifarans, eða til F. W. Crawford, féhirðis Háskólans. Annar Flokkur Félaga Stofnendur I þessum flokki eru félög svo sem Þjóð raknisfélagið og deildir þess, The Icelandic Canadian Club, og aðrir íslenzkir félagsskap- ir. öll bréfaviðskifti annast sá sem hvert félag kýs til að taka að sér að safna hinni ákveðnu þúsund dollara upphæð og eiga framlög að sendast til hans. Háskólinn gefur kvittanir fyrir öll framlög sem eru $25.00 eða meir. Við- eigandi félög veita kvittanir fyrir gjafir sem eru fyrir neðan $25.00. Þriðji Flokkur Minningar Stofnendur 1 þessum flokki er fólk sem leggur saman krafta og gefur $1000.00 eða meir í nafni ein- hvers, lifandi eða liðins, sem það vill heiðra og mynda þannig stofnanda sem kallast, Minn- inga Stofnandi. Þeir sem á þennan hátt leggja saman sín framlög mega kjósa einn í sínum hóp til þess að taka að sér ábyrgð að safna hinni ákveðnu upphæð og skal hann nefnd- ur Formaður. Ráðstafanir í sambandi við fjársöfnun í þessum flokki annast W. J. Lin- dal, dómari, 788 Wolseley Avenue, Winnipeg. Öll framlög eiga að sendast annaðhvort til hans eða til Formanns viðeigandi stofnheild- ar. Fjórði Flokkur Hóp Stofnendur 1 þessum flokki eru einstaklingar, margir eða fáir, sem til samans gefa $1000.00 eða meir og á þann hátt mynda stofnanda sem kallast Hóp Stofnandi. Til að aðgreina Hóp Stofnendur, einn frá öðrum, skal nefna þá með tölustaf, nafni á byggð eða á einhvern annan hátt. Sá sem tekur að sér ábyrgð að mynda Hóp Stofnanda og safna hinni ákveðnu upphæð skal nefndur Formaður. Ráð- stafanir í sambandi við fjársöfnun í þessum flokki annast Grettir L. Johannsson, konsúll, 910 Palmerston Ave., Winnipeg. öll framlög eiga að sendast annaðhvort til hans eða til Formanns viðeigandi stofnheildar. Allmenn Ákvæði Öll framlög eru fúslega þegin en stjórnar- nefndin mælist til að þeir sem gefa minna en $25.00 sendi upphæðina til einhvers stofnanda eða félagsstofnanda kennarastólsins. Skrautrituð stofnendaskrá yfir lala Stofn- endur verður geymd í skjalasafni Háskólans og afskrift send til Islands og ef til vill víðar. Félög, sem eru stofnendur, ákveða hvað það nái yfir sem þau vilja setja í stofnendaskrána. Stofnendur í þriðja og fjórða flokki skulu skráðir þannig að nafn Stofnandans kemur fyrst, svo nafn Formannsins og þar á eftir nöfn allra f þeirri stofnheild. Framlög eða afborganir af framlögum eiga að borgast fyrir 17. júní 1952. Öll störf eru sjálfboðin og engan kostnað hvort heldur persónulegan eða í sambandi við ráðstafanir í heild sinni, má taka úr fram- lögum til kennaraembættisins. Stjórnarnefnd Stofnendanna 21. febrúar, 1950 Á ársþingi Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi. Herra forseti! Háttvirt Þjóðræknisþing! Það hefur fallið í mitt hlutskifti, að skýra fyrir yður afstöðu Þjóðræknisfélagsins á tveim- ur undanförnu þingum eins og hún birtist í ályktana formi og prentuð var í þingtíðindun- um. Á 29da ársþingi félagsins var eftirfarandi skýrsla þingnefndar í Háskólamálinu sam- þykkt. “1 samræmi við grundvallar atriði stefnu- skrár sinnar um varðveizlu íslenzkra menn- ingarerfða og útbreiðslu þekkingar á þeim, hefir Þjóðræknisfélagið frá því snemma á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.