Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 153

Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 153
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011 153 María steinGríMsdóttir HáskólanuM á akureyri Uppeldi og menntun 20. árgangur 2. hefti 2011 Fjölbreyttar leiðir í námsmati Erna Ingibjörg Pálsdóttir. (2011). Fjölbreyttar leiðir í námsmati: Að meta það sem við viljum að nemendur læri. Reykjavík: IÐNÚ. 213 bls. Á þessu ári kom út hjá bókaútgáfunni IðNÚ bókin Fjölbreyttar leiðir í námsmati: Að meta það sem við viljum að nemendur læri eftir Ernu Ingibjörgu Pálsdóttur, aðstoðarskólastjóra við Álftanesskóla. Bókin ber nafn með rentu og það lýsir vel innihaldi hennar. Námsmat er órjúfanlegur þáttur kennslu og náms. Á undaförnum árum hefur mikil umræða farið fram um þátt námsmats í skólastarfi. Markmið skólastarfs eru fjölþætt og hægt að fara ýmsar leiðir til að ná þeim og því þurfa matsaðferðir einnig að vera fjölbreyttar og endurspegla áherslur í kennslu og þau viðmið sem nemenda- hópnum hafa verið sett. Þetta er undirstrikað í Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 en þar segir: „Námsmat á að vera áreiðanlegt, óhlutdrægt, heiðarlegt og sanngjarnt gagnvart nemendum. Það þýðir að meta þarf alla þætti námsins, þekkingu, leikni og hæfni með hliðsjón af hæfniviðmiðum í aðalnámskrá“ (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2011). Lítið hefur hins vegar verið skrifað á íslensku um námsmat. Lengi vel var bókin Gerð prófa eftir Norman E. Gronlund, í þýðingu Þuríðar J. Kristjánsdóttur, sem gefin var út hér á landi 1970, eina bókin á íslensku sem fjallaði um námsmat (Gronlund, 1970), auk þriggja leiðbeiningabæklinga um námsmat sem skólarannsóknadeild mennta- málaráðuneytis gaf út á árunum 1975–1980. Árið 2008 sendi Þóra Björk Jónsdóttir, ráð- gjafi hjá Skólaskrifstofu Skagafjarðar, frá sér handbók fyrir kennara sem heitir Náms- mat með áherslu á leiðsagnarmat. Í þeirri handbók var fjöldi námsmatsaðferða kynntur. Markmið hennar er að vera hugmyndabanki sem kennarar geti nýtt sér í þróun nýrra námsmatsleiða (Þóra Björk Jónsdóttir, 2008). Bókin var kærkomin og hefur nýst mörgum kennurum vel í starfi. Loks er í doktorsrannsókn Rúnars Sigþórssonar, Mat í þágu náms eða nám í þágu mats, frá 2008 fjallað um námsmat. Þar beinir Rúnar sjón- um sínum að því hversu mikið samræmd próf í náttúrufræði í 10. bekk og íslensku í 7. og 10. bekk setja mark sitt á kennsluhugmyndir, tilhögun kennslu og á nám nem- enda (Rúnar Sigþórsson, 2008). Fjölbreyttar leiðir í námsmati er því tímabær bók sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.