Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 22
100 NYJAli KVÖLDVÖKUR. sem varpaði dimmum skugga á andlit hans og jók enn nieir suðræna litarháttinn. í hnepsl- unni var heiðursmerki. Meðan menn voru að strrafa um Gústavson, gekk hann fram og aftur um þilfarið og reykti vindil sinn, en ’nirti eigi um, þótt allra augu störðu á hann. Pá er hann var búinn rneð vindilinn, settist hanfi á bekk hjá útlendingn- um með heiðursmeirkið. Hinn síðarnefndi fór og bað' skipstjórann að segja eigi nafn sitt, þótt spurt væri eftir því af forvitni. Hann hefði getað sparað sjer þessa fyrir- höfn, því að enginn hirti hót um hann. Karl fjekk eigi að vera í næði lengi, því að Svíarnir komu hver um annan þveran og kyntu sig honum, og brátt höfðu allir landar hans þyrpst í kringum hann og var hann kominn í ýmsar samræður við þá. Þá er kvöld var komið, var Karl, sem var látlaus og miklaðist eigi af frægð sinni, orð- inn dauðleiður á öllum gullhömrunum. Hann gekk fram á skipið, kveikti í viridli, hallaði sjer úi-að öldustokknum og horfði yfir spegil- sljettan sæinn. »Fagurt kvöliá, herra minn,« var mælt við hlið hans á frönsku. Karl sneri sjer við og hörundsdökki útlend- ingurinn stóð hjá honum. »F*að líkist jöfnum og værum svefni, en óró og æsingafull vaka getur farið á eftir.« »Satt er það, en hún getur einnig verið eins róleg og svefnmn. Það er komið undir eðli þess, er sefur og aðstæðunum.* »Maðurinn líkist hafinu; hann er fullur kenja og mislyndis. Hann er eins og hafið að því leyti, að hann sjálfur rænir sig oftast ró og friði sínum; hann ber rót ókyrðarinnar og stormsins í brjósti sjer.« Hægur vindblær gáraði skyndiiega hafflöt-r inn og andvarp leið um géiminn, en hvarf jafnfljótt og það kom. Særinn var aftur tær og lygn. »Vindblær þessi,« mælti útlendingurinn, »líkt- ist, svo að jeg haldi áfram samlíking yðar, fyrstu hræringunum í sál vorri, sem gefa í skyn, að í henni búi öfl, er einhvern tíma tor- tími henni og eftir skilji að eins leifar þeirra fjársjóða, sem vjer eitt sinn áttum.« »Heyra má, að þjer eruð Suðurlandabúi,« mælti Karl og brosti. »Vjer Norðurlandabúar geymum eigi svo ofsakend öfl í barmi. Storm- urinn í brjósti voru getur hrist og lagt að velli ýmsar plöntur í sál vorri, en megnar eigi að tortíma henni. Hann styrkir sálarþrótt vorn og eykur orku andans, svo að vjer öðlumst hugarró og lífsgleði.« »þjer eruð líklega skáld, herra menn,« mælfi útlendingurinn, »en skáldið og rithöfundurinn skilgreinir alt með huganum, en eigi hjartanu. Sh'kir eru eigi færir að dæma um það, hve gereyðandi ástríðurnar geta verið. Sá einn er að eins fær um það, sem hefir lifað, ítrftt og þjáðst í raun og veru.« »Yður skjátlast,* sagði Karl, »jeg er eigi skáld; jeg er verkamaður.* Útlendingurinn brosti með efasemdarsvip. Karl hjelt áfram: »Sæla mín, sorg mfn og alt líf mitt hafa verið tengd starfinu, og jeg held, að stormar ástríðanna muni aldrei reynast þeim manni tor- tímandi, sem helgar sig því. T’eir vekja oss að eins til meðvitundar um það, hvað vjer er- um í raun og veru.« »Lánið mjer vindil yðar,« mælti útlending- urinn og kvefkti í sínum, án þess að svara síðustu athugasemdinni. Pá er hann hafði kveikt í vindlinum, spurði hann: »Hafið þjer nokkurn tíma dvalið í Suður- Evrópu?* »Jeg kem frá Ítalíu, þar sem jeg hefi nú dvalið í þrjú ár.« »Hvernig geðjast yður að ítölum?« »Vel, en jeg tel Norðurlandabúa fremri bæði ítölum og Frökkum. F*jer verðið að fyrirgefa mjer það, því að jeg er sjálfur Svíi.« Útlendingurinn leiddi talið að listum og spurði: »Er margt listamanna meðal Svía?« »Já, niiðað við fólksfjölda eru þeir margir,« svaraði Karl. Haun nefndi nokkra hina ágæt-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.