Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 28
106 NYJAR KVÖLDVÖKUR, Allir eru því hamingjusamir. Jeg er samj hræddur um, að þá er jeg var að koma þessum hjúskap í kring, hafi jeg látið leiðast til að fremja það verk, sem veldur yður ef til vill sársauka. Jeg álít það samt skyldu mína, að skýra yður nú frá öllum málavöxtum. Pá er jeg kom til Englands um vorið, skýrði Milly mjer frá því í trúnaði, að hún elskaði yður, en að hún væri hrædd um að þjer elskuðu ungfrú Ahrnell. Hún grátbændi mig um að hjálpa sjer, því að hún gæti eigi án yðar lifað. Jeg hjet að gera það sem í mínu valdi stæði. Yður mundi ætíð hafa verið það óhagkvæmt að kvongast Gerðu Ahrnell. Jeg áleit því, að jeg gerði yður greiða með því að koma henni sem skjótast frá Englandi eftir ósk Millyar. Pá er jeg fór, ritaði jeg tengdaföður mínum og sagði, að jeg hefði í hyggju að biðja hinnar ungu meyjar. Par éð það mundi eigi vinna nóg á ritaði jeg, að eggjan Millyar, annað brjef; þar gat jeg um að brúðkaupsdagur okkar Gerðu væri á kveðinn. Árangurinn af því varð svo hjónaband ykkar eins og Milly liafði ætlast til. Pjer getið því sagt, að þótt hlutdeild mín í brögðum Millyar hafi baUað yður sorg, þá hefir hún samt einnig gert yður ham- ingjusaman, því að auðurinn er hamingja, Nú þarfnist þið Milly eigi, að jeg haldi áfram hlutverki mínu, og leyfi jeg mjer því, að fá yður í hendur brjef þau, sem 'hún hefir ritað mjer. Pjer viljið ef til vill einnig gera svo vel, að skýra tengdaföður minum frá, hvers vegna eigi hefir orðið neitt úr hjúskap okkar Gerðu. En látið hann eigi vita hvaða brögðum dóttir hans hefir beitt til þess að svala ástarþrá sinni. Ef að þjer eruð hugsjúkur út af ungfrú Ahrnell, þá get jeg sagt yður að hún hefir látið huggast. Ungur listamaður Gústavson að nafni, æskuvinur hennar, hefir tekist á hendur að hugga hana. Gústavson er læri- sveinn föður yðar, og jeg heii komist eftir því, að hann ætlar að gera ungu saumamær- ina að listakonu. Hversu það tekst, skal lát- ið ósagt, en víst er um það, að ungfrú Ahr- nell er blómleg, glaðleg og ánægjuleg á svip, Jafnframt og jeg fel yður, að koma því svo fyrir að faðir Millyar verði henni eigi reiður, rita jeg með virðing — vinsamlegast Pjetur Strömberg.* Jeg vil eigi lýsa fyrir þjer þeim áhrifum, sem brjefið hafði á mig. Jeg las brjefin frá konu minni til mágs hennar. Víða var svo vand- lega strykað yfir f þeim, að eigi var unt að lesa, hvað ritað hafði verið. Brjefin ræddu eingöngu um það, með hvaða ráðum Milly vonaði að geta bælt niður ást mína á þjer. Jeg gekk hiklaust inn til konu minnar og fjekk henni brjefin, sem Strömberg hafði sent mjer. Milly varð fyrst vandræðaleg, síðan æst, og spurði, með hvaða brögðum mjer hefði tekist að ná þeim. Ýms orð fóru á milli okk- ar, sem jeg vil eigi hafa eftir, og er Miliy gat eigi varið sig með öðrum hætti, mælti hún í reiði sinni: »Ætla mætti af orðum þínum, að þú hefðir kvæmst mjer af tómri meðaumkvun, Pú mátt eigi hyggja, að jeg líti svo á. Án mín mundir þú aðeins vera óbreyttur starfsmaður, sem faðir minn og bróðir launuðu fyrir að sjá um verksmiðjuna; jeg hefi gert þig að auðugum manni, því máttu eigi gleyma.* Sá einn, sem er drambsamur eins og jeg, getur skilið, hve orð þessi brendu sig inn í hjarta imtt. Mjer varð það þegar í stað ljóst, að jeg hafði leymt því a Miíly var auðug, þá er jeg kvæntist henni. J g hatði því vikið af þeirri þraut, sem jeg þegar á unga aldri hafði markað mjer, sem sje: að komast áfram af eigin ramleik, en eigi fyrir aðstoð annara. Jeg fjekk eigi tækifæri til svara; hún hafði eigi fyr mælt hin hvatvíslegu orð, en fað;r hennar stóð frammi fyrir henni. Gamli maður- inn var harður á svip. — »Hvers vegna, Milly, ávarparðu mann þinn þannig?* spurði hann. Milly varð náföl. Hún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.