Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Qupperneq 57

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Qupperneq 57
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 135 hjúkrunarmenn komu, sem gæta hvers orðs og atviks eins og sporhundar og síðan allar þess- ar »vítisvjelar« komu í gang, kemst enginn lifandi sála hvorki út nje inn, svo henni sje ekki veitt athygli. En hvað því viðvíkur að komast inn, þá er það nú ekki svo erfitt, en að komast útt herra, það er nú erfiðara, ha, ha, ha.« »En jeg hjelt, að ekki þyrfti svo mikinn umbúnað til að gæta vitfirringa; þeir eru þó engir fangar.« »Jú, herra, þjer verðið að gæta þess, að við erum í St. James. Hjer eru því nær fimm hundruð meira eða minna vitskertir vesalingar, og þessir karlar og konur verða að hafa um sig strangan vörð. Þjer verðiðlíka að gæta þess, að margt efnað fólk er á meðal þeirra, og stórfje er greitt fyrir það árlega — jú, það kostar fje, að vera heiðarlegur vitfirringur. Pað megið þjer vita, að margur maðurinn mundi, þrátt fyrir alla múra og eftirlitsmenn, reyna að fá hreyfingu í guðs frjálsri náttúrinni, ef spjótsoddarnir væru ekki þarna uppi á.« Þess- um orðum fylgdi aftur hlátur, sem var líkari niðurbældri ákæru, en beinlínis hæðni. »HalIó, gamli skrjóður! hve lengi eigum við að standa utan dyra! »hrópaði hann hátt, um leið og hann kastaði steinörðu á turngluggann, þarsem vörðurinn bjó. Inni rumdi í einhverjum, og rjett á eftir gekk út gamall maður í loðfrakka og spurði hver þar væri. »t*að er jeg, Pillips gamli farandsali! og jeg kem með tóbak til þín á einn skilding pundið, eins og þú hefir svo oft óskað þjer . . . á morgun getur þú reynt það . . . hæ?« »Það var ágætt, Pillips. En hverskonar asna- tetur eru það, sem þú hefir fengið þjer, og hvaða körfuhlaði er þetta?« »Pað geturðu sjeð, þegar birtir, Dick!Ungu folöldin eru annars báðir synir mfnir, og í körfunni hefi jeg vörur mínar. Hjer er líka hefðarmaður, herra O . . ., held jeg, er ekki svo, herra?« »AIveg rjett, herra jPillips, og jeg ætla að heimsækja forstjórann, kæri herra Dick,« bætti jeg við um Ieið og jeg sneri mjer að hon- um. »Þið megið allir koma inn, herrar mínir, svar- aði maðurinn í loðfrakkanum og lauk upp hliðinu. »Þetta var vel mælt, kæri herra læknir,« hvíslaði Pillips. »Enginn veit hvert gagn hann síðar getur haft af fólki; vingarnlegt orð kostar ekki fje og gefur oft góðar rentur . . . Hæ, hó! Opnaðu, Jenkins minn! Það er jeg Pill- ips farandsali!« Jafnskjótt var öðru hliðinu lokið upp og hið sama endurtók sig. Sama er að segja um þriðja hliðið, og loksins vorum við komnir inn fyrir háa múrinn, sem lá umhverfis allan trjágarðinn, sem hingað til hafði snúið að okkur bakhlið- inni. Hjer skildi Pillips sonu sína eftir hjá vagninum, og skipaði þeim að bíða þar, uns hann kæmi til baka, því hann vildi strax fylgja mjer til forstjórans. Við hjeldum nú gegnum trjágarðinn og komum loks að hliði, sem vörð- ur gætti einnig. Þar fengum við að vita, að forstjórinn sat að snæðing með fjölskyldu sinni og nokkrum embættismönnum í garðin- um framan við húsið. Framhliðið var líka læst, og við komum nú inn í vel hirtan blómst- urgarð, með fjölda blómbeða og runna; við heyrðum gaðværar raddir úr einum laufgang- inum. Var það f fólkinu, sem naut kvöldverðar undir berum himni. »Þetta hljómar vel, þegar þess er gætt að við erum í vitfirringahæli,« hugsaði jeg, með- an Pillips gekk til fóksins, til þess að biðja forstjórann að finna mig eitt augnablik. Hann kom strax og gekk þegartilmín; en jeg nefndi nafn mitt og sagði honum I fáum orðum hvern- ig við Pillips hefðum hitst um daginn og hann komið mjer á framfæri. Móttakan var, eins og vinir mínir í London höfðu sagt mjög alúðleg og blátt áfram, eins og venja er meðal Eng- lendinga, þegar þeir eru beðnir að greiða götu einhvérs. Þeir vilja alt gera fyrir menn og kappkosta, að láta dvölina verða sem ánægju- Iegasta. Þéir hrósa sjer ekki alveg að ástæðu- lausu, f þessu falli, af þvf, að vera gestrisnasta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.