Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 66

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 66
144 NYJAR KVÖLDVÖKUR. og stökk og köll um hjálp, máttu vita . . . Já, þjer hlægið.! En þjer hefðuð bara sjálfur átt að vera viðstaddur, þá hefðuð þjer vafalaust hlaupið líka.c »Pað held jeg ekki, herra Derby.« »Jú, þjer getið sagt það. Loksins kom hjálp, og okkur hepnaðist loksins með miklum liðstyrk að vinna bug á honum . . , Já, herra, þarna getur inaður sjeð, hvað það heíir að segja, að ráða yfir hlekkjuni og tríssum, yfir steypi- og kerböðum . .. Já, herra, það er hin sanna list.c Nú varð stutt þögn. »Hefir þá enginn nálgast hann með biíðu og einlægni?* spurði jeg. »Pú! hvað ætli það þýddi! Við þurfum líka að vera varkárir, og gefa gætur að köstum hans . . . Eg man annars, að hann í byrjun ætlaði að segja forstjóranum einhverja sögu — ha, ha, ha! Allir vitfirringar hafa sína sögu — en nú þegir hann alveg, og virðist ekki kæra sig um einlægni nokkurs manns. Þvert á móti, ef einhver brýtur upp á slíku, brosir hann aðeins, og á þann hátt, að okkur virðist altaf, eins og hann hafi eitlhvað á bak við eyrað. Nú lifir hann hjer glöðu lífi, Par sem hann (hefir herbergi út af fyrir sig, hefir hann ýms forrjettindi, og hann hefir lag á því, að útvega sjer fleiri og fleiri. Hann hlýtur líka að eiga ríka að, því svo virðist, sem hann geti notað fje til hvers sem er ... Hann hefir nóga peninga og lifir eins og greifi, á sjálfur hest, hefir heilt bókasafn, leikur á hljóðfæri og les allan daginn, þegar hann fær leyfi til þess. Jú, jú, hann lifir hreinasta sællífi.* »En hann er lokaður inni og vitfirtur.c sagði eg fremur við sjálfau mig. »Hm, já! Peir eru hjer fimm hundruð. — Hann hefir annars sínar góðu hliðar, það verð jeg að játa. Hann segir hinum sjúklingunum til, alveg samkvæmt reglum okkar. Hann kennir þeim ekki aðeins að sitja hest, skilmast og glíma, heldur líka í að teikna, lesa og skrifa, og hverju sem þeir annars vilja, því hann er greindur vel. Pess vegna elta þeir hann líka allir, og því fremur sem hann er hjarta- gæskan sjálf. Hann hefir ætíð á höndum vinar- orð til þeirra, og stundum penínga, en það er enn þá betra. — Já, þjer munið sjálfir fá nóg tækifæri, til að komast að raun um þetta.c »Þeita er undarlegur maður.c' sagði jeg, og varð aftur hugsi. »Pjer virðist fullir áhuga fyrir Sidney, herra minn?« sagði aðstoðarlæknirinn alt í einu dá- lítið skrækróma og starði um leið rannsóknar- augum á mig. Jeg varð allhissa á þessu óvænta tilliti; jeg lærði af því, að maður á ekki jafnskjótt að gera ókunnugum manni uppskáar allar tilfinningar sínar, og jeg ákvað með sjálf- um mjer, að jeg framvegis skyldi vera varkár- ari. Er hann hjelt áfram að horfa spyrjandi á mig, neyddist jeg til að svara: Jeg hefi áhuga fyrir öllum, sem að einhverju eða öllu leyti eru rændir vitinu, og meðal þeirra er Sidney. Par sem jeg hefi, gert brjálsemina að námsgrein minni, getur yður ekki furðað á því, að jeg hefi áhuga á henni.c »Þjer hafið alveg á rjettu að standa! og mjer þykir fyrir, að jeg get engar upplýsingar gefið yður; en spyrjið þjer Elliotson sjálfan! ef til vill veit hann meira en honum hefirfundist á- stæða til að segja mjer.c »Pað skal jeg gera við tækifæri,« svaraði jeg kæruleysislega og kveikti í vindli. Hér endaði heimsókn Derbys. Hann fór á burt og skildi mig eftir í sálarástandi, sem jeg gat ekki gert mjer fullkomlega Ijóst, því jeg var fremur reið- ur en meðaumkvunarfullur og sorgbitinn. Og hversvegna var jeg reiður og hverjum? Æ, sá, sem gæti áttað sig á straumhvörfum og sveiflum tilfinninga sinna, hann mundi eig lengur vera sjálfum sjer gáta; en þannig er maðurinn: Jafnframt því, sem hann af drambi sínu og mikillæti, vill ráða löndum og þjóðum, er hann því nær aldrei fær um að dæma sjálf- ið í brjósti sjer, og því síður getur hann dæmt kosti þess og lesíi, sem í dag reka það til göfugra, en á morgun til hlægilegra verka. Fjöldi hugmynda, ýmisleg lagaðra, flugu um heila minn og reyndu að finna þá leið, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.