Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 37

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 37
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 115 var hann fimm ár. Að gefnu tilefni ljet jeg Strömberg samt vita, að Ieyndarmáli hans væri eigi borgið og að Storm væri lifandi. Reyndi hann þá að komast eftir, hvar hann væri nið- ur kominn, en alt varð árangúrslaust. Fyrir ári kom Storm aftur til Stokkhólms. Hann var enn þunglyndari en áður og bað um að fá að starfa hjá mjer. Að stuttum tíma liðnum veiktist hann og var fluttur á sjúkra- hús, og er hann kom þaðan, var hann sokk- inn niður í trúarvingl. Nokkrir »hinna 'neil- öguc, sem Stína telst til, festu hendur í hári hans; af því leiddi, að hann eyddi öilum tóm- stundum til Iesturs og dvaldi löngum hjá Stínu. Mig fór að gruna, að Strömberg hefði hönd í bagga með, og væri farinn að halda, að Sjö- kvist og Storm væri sami maðurinn. Síðustu undanfarnar vikur hefi jeg því gætt Sjökvists vandiega og hindrað það, að hann færi út, af því að jeg var hræddur um, að hann, vesling- ingurinn, sem eigi er álitinn með öllum mjalla, lenti í einhverri hættu. Jeg sje nú, að ótti minn hefir eigi verið ástæðulaus, og til þess að eigi hendi ógæfa, álít jeg rjettast að vita, hvort Sjökvist hefir komið til Stínu, og síðan ætla jeg að fara til Strömbergs og spyrja hann, hvað af Sjökvist sje orðið. Reyndu að komast eftir, hvort Ahrnell er hingað kominn. Efsvo er, mun Strömberg áreiðanlega knýja Gerðu til að heita sjer eiginorði með því að hóta að ljósta upp um föður hennar. Rað skal eigi verða, Karl, og við skulum eigast við um það, Strömberg og jeg. Rað, sem á ríður er, að ná í Ahrnell og koma honum sem skjótast burt hvað sem það kostar til þess að firra Gerðu vandræðum.* Ljettivagninn nam staðar frammi fyrir smá- hýsi í Svartastræti. Níels fór inn í húsið og kom litlu síðar aftur og mælti: sRað fór að getu minni. Sjökvist hefir verið hjerna og er farinn með Stínu, sem sagði, að hún væri viss um að verða rík. Konan sagði mjer auk þess frá, að Stína hefði í gær talað um glæpamann, sem hún hefði náð í, og ætti hann nú að sæta refsingu. Jeg fer því til Strömbergs.« ■ Níels steig aftur upp í vagninn og ók heim til Strömbergs. Framtíð konu þeirrar, sem Karl elskaði af heilum hug, var í veði. Allar hugsanir um endurfundasæluna lutu í lægra haldi og honum bjó að eins ein ósk í huga: að geta bægt ó- gæfu hennar á braut. Karl hafði ákveðið, hvernig hann ætlaði að haga rannsóknum sínum eftir Ahrnell og knýja hann tii að fara burt úr Svíþjóð. í þeim tilgangi gekk hann um borð í þýska eimskipið, sem siðast hafði komið. Mestur hluti skipshafnarinnar var kominn á land. Hann gat eigi fengið neinar fregnir í svipinn og var að fara, þá er ein þjónustu- mærin kom upp úr farþegarúminu með yfir- höfn á handleggnum. »Persson!«’hrópaði hún og ljettapiltur hrað- aði sjer til hennar. »Burstaðu þessa yfirhöfn og farðu svo raeð hana niður til Englendingsins, því að jeg er að fara í land.« »Er Englendingur hjer á skipi?« spurði Karl. »Já, leiðindamaður, sem dvelur niðri í káetu, því að hann ætlar að fara aftur til Stettin á miðvikudaginn. Pað er mesti þrákálfur, og bak- ar okkur mikil óþægindi, og örðugleika, sjer í lagi, þar eð hann kann eigi stakt orð í sænsku.« f »Hvað heitir hann?« spurði Karl. sBernharð, svo stendur á ferðakistu hans.« Hjartað tók að slá hraðar í brjósti Karls er hann heyrði nafn þetta; það minti hann á heimilisfangið á brjefi, sem Gerða hafði beðið hann að fara með á pósthúsið. »Æt!i hann hafi í hyggju að fara í !and?« spurði Karl. »Áreiðanlega. Pess vegna hefir hann látið bursta þrjá mismunandi frakka, og eg er sann- færður um að hann kemur með hinn fjórða, i 15*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.