Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 48
I 126 NÝJAR KVÖLJDVÖKUR. ♦ Rú kemur þá?« hvíslaðl Sylvía og roðnaði. Karl svaraði að eins með því að þrýsía hðnd hennar. Búið var að leggja á borðið og skreyta það blómum, en gestirnir voru enn eigi komnir. Sylvía stóð við einn gluggann og ljek sjer að blómi, sem hún hafði tekið úr einu blóm- glasinu. Hún hlustaði og roðnaði hvert sinn, sem hún heyrði fótatak í stiganum. Dyrnar opnuðust og Karl stóð á þröskuld- inum. Augu hans voru skær og raunablærinn var alveg horfinn af þeim. Sylvía sagði eigi neitt, en rjetti honum hönd- ina; hann kysti hana þegjandi. Hálfri klukkustund síðar voru allir gestirnir komnir. Mjög var glatt á hjalla við borðið og allir reyndu af fremsta megni að vera við- mótsþýðir og ástúðlegir í hóp þessara afbragðs- manna. »Þar sameinuðust vísindin listinni,* eins og einn ræðumaður komst að orði, þá er minni hjónaefnanna var drukkið. »Með starfi sínu,« bætti Karl við, »hefir Schneider háskólakennari aflað landi sínu frægð- ar. Með starfi sínu er ungfrú Ahrnell orðin prýði ættjarðar, sinnar, og hamingja sú, ■ sem er laun starfseminnar og stritsins, mun eflaust fylgja þeim. Drekkum minni þeirra og allra, sem lifa fyrir starfið.* Þrem vikum síðar fór brúðkaup Gerðu og Richards fram. Ungu hjónin ferðuðust til Ítalíu til þess að njóta þeirrar ánægju, sem ástin, listin og náttúrufegurðin veita. Gerða hafði á brúðkaupsdegi sínum gefið allan föðurarf sinn til að stofna verðlaunasjóð fyrir iðni og starfsemi. Daginn, sem þau fóru úr Stokkhólmi, var myndastofa Schneiders háskólakennara opnuð á ný, og hinn frægi myndhöggvari Karl Gúst- avson tók þar til starfa. í erfðaskrá Schneiders var svo fyrir mælt, að eigi mætti selja hús hans, og að mynda- stofan, vinnustofurnar og bústaður háskólakenn- arans væri fengið í hendur Karíi Gústavsyni til frjálrsa afnota, en enginn annar mátti Ieigja þau eða nota. Veturinn var horfinn og vorið komið til valda, í stað öldungsins hvíthærða, til þess að strá blómum og vonum á veg manna, eins og gjafmilt barn. í vinnustofu og myndastofu Schneiders há- skólakennara var fjör og starfsemi. Það var sem gamli listamaðurinn væri enn orkugjafi sá, sem knýi starfsmennina til iðjusemi og þolgæðis. En maður sá, sem rjeð fyrir verkuin í stað hins látna, stjórnaði þó með öðrum hætti en fyrirrennari hans. Karl Gústavson var eins þýður og hinn hafði verið harður, og fjarri því að vera tortrygginn sem Schneider, en báðir voru þeir listelskir mjög. Það var fagran dag í maí. Klukkan f Klöru- kirkju sló sex og Karl sat enn að vinnu í myndastofu sinni og hafði þó unnið af kappi allan daginn. Hann stóð nú með handleggina krosslagða á brjósti sjer og virti fyrir sjer konuhöfuð, sem hann hafði höggvið í marmara. Höfuð þetta var mjög fagurt; andlitsdrætt- irnir blíðlegir og reglulegir. Svipurinn mikil- nðlegur mjög og var sem lesa mætti þar heila lífssögu. Rósemin, blíðan og alvörublærinn, sem hvíldi yfir andlitinu, virtist vera árangur margrar harðrar baráttu og óbifanlegrar festu, sem loksins hefði Ieitt sálina gegnum boða og blindsker mannlífsins inn í friðarins höfn. Meðan listamaðurinn var að virða fyrir sjer verk sitt, gekk unga stúlkan inn í myndastof- una. Hún gekk fast að honum, en hann varð ekki var návistar hennar. Hún leit einnig á marmaramyndina og angurblítt bros lék um varir hennar. Hún andvarpaði og þetta andvarp vakti Karl af draumum hans. »SyIvía,« mælti hann, leit á hana og rjetti henni höndina. Raunablærinn, sem hvílt hafði á andliti hans, hvarf. »Hvernig líst þjeráMín-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.