Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 5

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 5
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 3-5 3 Örn Bjarnason Siðamál lækna 1 SIÐFRÆÐI OG SIÐAREGLUR »Felet med flesta laroböcker i medicinsk etik ar att de enbart handlar om medicinsk etik« (1). Þessum kafla er ætlað að verða upphaf rits um siðamál lækna. Sú bók verður án efa með þeim annmörkum, sem Clarence Blomquist lýsir í tilvitnuðum orðum. Hún er skrifuð í því skyni að vekja athygli á nokkrum mikilvægum þáttum siðfræðinnar, sem varða lækna fyrst og fremst. Skrifa mætti langt mál til vamar því, að ráðist er í þetta verk. Látið skal nægja að fullyrða, að þörf er á, að skrifað verði á íslenzku um siðfræði læknisfræðinnar. Verði sá greinaflokkur lesinn, sem nú hefur göngu sína, styrkir það fullyrðinguna. Mælikvarðinn á það verða viðbrögðin: Fái ég gagnrýni og ábendingar um það sem betur má fara, er tilganginum náð. Falli skrifin í þagnargildi, kallar það á, að betur verði gert af öðrum í næstu umferð. SIÐFRÆÐI OG LÍFSSKOÐANIR Hvað er siðfrceði? Því hefir verið svarað þannig, að siðfræði fjalli um það, hvað okkur beri að gera; að með greiningu getum við ákveðið hegðun eða tekið afstöðu, innan þeirra marka, sem við teljum að gildi fyrir siðferðilega réttlætanlegt háttemi. Þessi skilgreining er að vísu í ætt við það, sem haft er eftir Gertrud Stein, að »a rose is a rose is a rose«. Hins vegar verður hún skiljanlegri ef við skiptum siðfræðinni í tvo þætti, þann sem veit að lífsskoðun og hinn, sem veit að greiningu, en allar siðferðilegar spumingar eru ofnar úr báðum þáttunum (2). Siðfræðinni hefir einnig verið lýst (3) sem kerfisbundinni greiningu á því, 1) hvaða athafnir og ákvarðanir eru réttar eða rangar, góðar eða vondar, dyggðugar eða válegar (reglusiðfrœði), 2) hvað átt er við eða tjáð með þessum hugtökum, í því skyni að kanna í hvaða mæli mat á þeim verður eða verður ekki réttlætt með skynsamlegu móti (fi-umsiðfræði) og 3) hvaða sérstakar siðfræðilegar ákvarðanir og lífsstefnur geti orðið að liði við slíkar athafnir og ákvarðanir (hagnýt siðfrœði). En hvað er þá lífsskoðun? Heimspekin hefir hefðbundið leitast við að leggja til skynsamlega réttlætta lífsskoðun. Slík lífsskoðun tengir saman útskýringu á eðli veruleikans og kerfi hugsjóna, sem gefa lífinu inntak og tilgang. Það fyrra gerir okkur kleift að ráða við umhverfi okkar og hið síðara gerir það ómaksins vert. Góð lífsskoðun lýsir heiminum grandvarlega, leggur til innviði skilnings og leiðir til árangursríkra athafna. Hún er gagnleg, skynsamleg og sönn. Hún er hins vegar meira en þetta, vegna þess að góð lífsskoðun tekur mið af tilfinningum, löngunum, þrám og hvötum fólks, svo og af getu þess og takmörkunum. Hún sættir mannlega náttúru og þær staðreyndir sem við mannkyni blasa. Ekki skiptir máli hvort þessi lífsskoðun, sem á ensku nefnist worldview, á þýzku Weltanschauung, er nefnd frumspeki, lífsheimspeki eða bara einfaldlega heimspeki. Það sem máli skiptir, er að hún felur í sér skilgreiningu á samfélagi. Þeir sem deila þessum viðhorfum aðhyllast sömu grunnhugmyndir. Þeir skynja gildi á sama hátt, skilja og meta hluti í stórum dráttum á sama veg og eru þannig hluti sömu menningar. Þessi viðhorf kalla einnig fram kennd um órofa heild: Þeir, sem aðild eiga, rekja hefðir til eldri hugsjóna og afreka og eru sammála um það, í hverju framtíðarúrbætur og framfarir eigi að felast. Sú mikla hagsbót, sem maður getur haft af því, að helga sig þessari lífsskoðun er vizka. Vizkan felst í því að öðlast þekkingu og að hafa hæfni til þess að nota hana vel. Vizkan auðveldar mönnum mat í vitsmunalegum og hagnýtum efnum. Hún
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.