Læknablaðið - 15.01.1990, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ
69
1.1. Lækni ber að sjá um það, að öll
læknisfræðileg íhlutun sé gerð á þann hátt,
að virt sé reisn, einkalíf, svo og heimspekileg
og trúarleg viðhorf sjúklingsins.
1.2. Lækni er óheimilt að mismuna sjúklingi,
svo sem vegna kynferðis, kynþáttar, litarháttar,
trúar, stjómmálaskoðunar, þjóðemis,
þjóðfélagsstöðu eða annarra sérkenna hans.
2.1. Læknir getur ekki neitað að gera
aðkallandi læknisfræðilega íhlutun, sem er á
færi hans og nauðsynleg er til þess, að bjarga
lífi sjúklings eða til þess að koma í veg fyrir,
að heilsu hans hraki alvarlega.
2.2. Læknir er í öðmm tilvikum en hermt er
í fyrstu málsgrein, eigi skyldur til að gera
læknisfræðilega íhlutun sem stríðir gegn
samvizku hans.
3.1. Lækni ber að velja þá læknisfræðilegu
íhlutun, sem hann telur bezt hæfa sjúklingi
og veldur ekki ótilhlýðilegri hættu og er þá
höfð hliðsjón af úrræðum læknisfræðinnar og
læknislistarinnar og þeirri aðstöðu sem fyrir
hendi er.
4.1. Læknir má ekki gera eða mæla fyrir
um læknisfræðilega íhlutun, nema að fyrir
liggi samþykki sjúklings, sem fengið er án
nauðungar og að fullnægðri upplýsingaskyldu,
sé sjúklingur til þess fær.
4.2. Sé um minnihátar íhlutun að ræða, má
gera ráð fyrir samþykki sjúklings vegna þess
að hann leitaði læknis. Hins vegar ber að afla
skýlauss og sérgreinds samþykkis sjúklings
fyrir allar læknisfræðilegar íhlutanir, sem fela
í sér áhættu fyrir sjúklinginn eða em honum
viðkvæmar. Þó er gert ráð fyrir því í samykkt
á læknisfræðilegri íhlutun, að í henni felist
samþykkt á öllum öðrum íhlutunum, sem
nauðsynlegar em til þess að íhlutunin takist,
nema þær íhlutanir feli í sér vemlega hættu.
4.3. Sé sjúklingur ófær um að tjá samþykki
sitt vegna heilbrigðisástands hans eða það
sé svo knýjandi að taka ákvörðun, að ekki
náist að gefa viðhlítandi upplýsingar, má
gera læknisfræðilega íhlutun án samþykkis
sjúklings, ef íhlutunin er áríðandi og
nauðsynleg til þess, að bjarga lífi sjúklings
eða til þess að koma í veg fyrir að heilsu hans
hraki alvarlega.
(Lækni ber að jafnaði að upplýsa sjúkling um
ástand, meðferð og horfur. Eigi í hlut bam,
unglingur yngri en 16 ára eða sjúklingur, sem
ekki getur tileinkað sér upplýsingar, skulu
þær veittar foreldri forráðamanni eða nánasta
aðstandanda (2)).
5.1. Lækni ber að fá samþykki forráðamanns
(lögráðamanns), ef sjúklingurinn er
a) undir lögaldri
b) ólögráða af öðmm orsökum og ófær um að
skilja hvað í samþykkinu felst.
5.2. Sé sjúklingur undir lögaldri fær um að
skilja (hvað í samþykkinu felst), skal falast
eftir skoðun hans og hún tekin til greina,
að svo miklu leyti sem hægt er. Sé íhlutun
minniháttar, er samþykki þess, sem undir
lögaldri er, látið nægja. Hægt er í landslögum
að ákveða aldur, sem er lægri en lögaldur
og geti sjúklingur frá þeim tíma gefið gilt
samþykki.
5.3. Sé sjúklingur ólögráða, en yfir lögaldri og
fær um að skilja (hvað í samþykkinu felst),
telst samþykki hans nægjanlegt.
5.4. Læknisfræðilega íhlutun má gera án
jáyrðis forráðamanns (lögráðamanns), ef ekki
er hægt að afla samþykkis, vegna þess að
íhlutunin er áríðandi og nauðsynleg til þess
að bjarga lífi sjúklings eða til þess að koma í
veg fyrir að heilsu hans hraki alvarlega.
5.5. Neiti forráðamaður (lögráðamaður) að
gefa samþykki sitt og sé íhlutunin nauðsynleg
til þess að bjarga lífi sjúklingsins eða til þess
að koma í veg fyrir að heilsu hans hraki
alvarlega, ber lækni að vísa málinu til réttra
yfirvalda til úrskurðar.
6.1. Lækni ber að veita þeim einstaklingi,
sem til hans leitar, nægjanlegar upplýsingar til
þess að gera honum kleift að gefa samþykki,
að fullu meðvita um staðreyndir málsins.
Upplýsingamar verða að vera vel skiljanlegar
og aðlagaðar skilningsgetu og sálrænu
ástandi sjúklings eða annars einstaklings,
sem þær eru veittar. Undir það fellur hversu
alvarlegur sjúkleikinn er, hugsanlegur ábati
og áhætta tengd íhlutun, sem lagt er til að
gerð verði, hugsanlegar valíhlutanir ef við á
og hugsanlegar afleiðingar þess að íhlutun sé
ekki gerð.
7. Lækni ber að gefa sjúklingi á viðeigandi
hátt þær upplýsingar, sem hann býr yfir, ef
sjúklingurinn fer fram á það - annað hvort