Læknablaðið - 15.01.1990, Blaðsíða 66
60
LÆKNABLAÐIÐ
hvað heilbrigðisyfirvöld eru að reyna að
gera, er forsenda þess að þeim takist það.
Einkaheilbrigðissamtökin aðstoða við það með
framtaki sínu« (4).
Karl Evang segir enn fremur:
»Samtök áhugamanna um heilbrigðismál
hafa reynzt mjög mikilvæg í Noregi
vegna þess brautryðjendastarfs og þeirrar
tilraunastarfsemi, sem þau hafa staðið fyrir
og gera enn. Oft er auðveldara að koma á
og reyna nýja starfsemi undir vemdarvæng
einkasamtaka, heldur en á vegum ríkisins eða
sveitarfélaga, með sín hæggengu stjómkerfi
og stífu fjárhagsáætlanir. I mörgum tilvikum
hafa heilbrigðisyfirvöld beinlínis leitað til
heilbrigðissamtaka um hjálp, til þess að leita
lausna á vandamálum, sem ekki var hægt að
leysa á þeim tíma, með þeim ráðum sem ríkið
hafði tiltæk. Aftur og aftur hafa samtök af
þessu tagi ein sér eða fleiri saman tekið upp
nýja hugmynd, komið henni í verk, sannfært
almenning og stjómvöld um gildi hennar og
hún fengið slíkt brautargengi, að stjómvöld
hafa tekið þjónustuna inn í heilbrigðiskerfið«
(4).
Karl Evang var framkvæmdastjóri
heilbrigðisþjónustunnar - helsedirektör - í
Noregi í fjóra áratugi og þótti engu minni
sósíalisti en Archibald Cochrane. Evang (5)
skildi vel nauðsyn þess, að fólkið sjálft fengi
að ráða stefnunni í heilbrigðismálunum og
hlúði að starfi áhugamannasamtaka. Því eru
orð hans tilfærð hér, að lýsing hans á vel
við Island í dag. Vaxandi hlutdeild ríkisins í
útgjöldum og aukin miðstýring fjárstreymis
þarfnast þess mótvægis, sem felst í öflugu
starfi félagasamtaka.
Er þá komið að því að kanna stöðu lækna í
kerfinu.
SAMKOMULAG LÆKNA OG
SAMFÉLAGSINS
* Staðfestur er einkaréttur þeirra manna,
sem lokið hafa prófi frá læknadeild
Háskóla Islands og viðbótamámi á
heilbrigðisstofnunum hér á landi til að
stunda lækningar og gangast jafnframt undir
tilteknar skyldur (6). Aðrir geta komið inn
í þetta samkomulag hafi þeir aflað sér sömu
þekkingar og fæmi og sanni kunnáttu í
mæltu og rituðu íslenzku máli (6).
* Allir landsmenn em sjúkratryggðir og skal
læknishjálp greidd samkvæmt samningi við
Tryggingastofnun ríkisins (7).
* Læknar, sem starfa við heilsugæslustöðvar,
skulu taka laun með tvennu móti:
a) Föst laun fyrir gegningarskyldu,
vaktþjónustu, heilsuvemdarstarf og
ráðgjafarþjónustu við heilbrigðiseftirlit og
b) laun samkvæmt samningi stéttarfélags
lækna og Tryggingastofnunar ríkisins fyrir
almenn læknisstörf (8).
* Læknir getur við störf sín notið aðstoðar
annars heilbrigðisstarfsfólks, að svo
iniklu leyti sem slíkt er nauðsynlegt
og forsvaranlegt vegna hæfni þess og
sérkunnáttu. Starfar það þá á ábyrgð læknis
nema önnur lög bjóði annað (6).
* Lækni er heimilt að skorast undan störfum,
sem stangast á við trúarleg eða siðferðileg
viðhorf hans, séu störfin ekki framkvæmd í
lækningaskyni (6).
* Læki ber að sinna störfum sínum af árvekni
og trúmennsku, halda við þekkingu sinni og
fara nákvæmlega eftir henni (6).
* Læknir ber ábyrgð á greiningu og meðferð
þeirra sjúklinga sem til hans leita eða hann
hefur til umsjónar (6).
* Lækni ber að sýna varkámi og
nákvæmni við útgáfu vottorða og annarra
læknayfirlýsinga. Skal hann votta það eitt er
hann veit sönnur á (6).
* Lækni er skylt að láta hinu opinbera í té
vottorð um sjúklinga er hann annast þegar
slíkra vottorða er krafist vegna viðskipta
sjúklinga við hið opinbera (6).
* Lækni ber, sé hann nærstaddur eða sé til
hans leitað, að veita fyrstu nauðsynlega
læknishjálp í skyndilegum sjúkdóms- eða
slysatilfellum nema þeim mun alvarlegri
forföll hamli (6).
* Lækni, sem stundar almennar lækningar,
er skylt, þótt hann sé ekki opinber
starfsmaður, að gegna aðkallandi
sjúkravitjunum í því heilsugæsluumdæmi,
þar sem hann starfar nema þeim mun
alvarlegri forföll hamli (6).
* Lækni ber að gæta fyllstu þagmælsku og
hindra það að óviðkomandi fái upplýsingar
um sjúkdóma og önnur einkamál er hann
kann að komast að sem læknir. Þetta
gildir ekki bjóði lög annað eða sé rökstudd