Læknablaðið - 15.01.1990, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
19
Síðari röksemdafœrslan til stuðnings
sálfræðilegri sérdrægni, að til allra frjálsra
gerða sé hvatt af löngunum og menn muni
ávallt bregðast við til þess að fullnægja eigin
óskum, er byggð á rangri notkun orðsins
fullnægja.
Þetta orð getur haft tvœr merkingar:
1. Maður fær fullnægju vegna ánægjunnar af
því, að fá það sem hann sækist eftir. En hér er
sá hængur á, að ekki fara alltaf saman ánægja
og fullnægja.
2. Þannig verður síðari merking orðsins sú,
að við uppfyllum óskir okkar, þegar við fáum
það sem við sækjumst eftir.
Víkjum þá aftur að röksemdafærslunni um
það, að vegna þess að til allra frjálsra gerða sé
hvatt af löngun eftir einhverju, hljóti menn
ávallt að leitast við að fullnægja þessum
óskum. Þetta virðist fela í sér, að það sem
sýndist ósérplægin breytni væri raunverulega
til komin til þess að fullnægja óskum
gerandans. Ef fullnægja væri hér notuð í
seinni merkingunni, segir þessi röksemd okkur
það, að þegar maður fer eftir löngun sinni,
leitast hann við að fá það sem hann óskar
eftir. Sá eigingjami getur fallist á þetta, með
því að benda á, að eitt af því sem maður getur
óskað sér er velgengni annarra. Þessi merking
orðsins styður því ekki sérdægnina. Þegar
sérdrægni er sett fram í fyrstu merkingunni
fer á sama hátt, eins og við höfum þegar séð.
Niðurstaðan verður því sú, að sálfræðileg
sérdrægni er líklega röng.
GAGNRÝNI Á SIÐFRÆÐILEGA
SÉRDRÆGNI
En hvað þá með siðfræðilega sérdrægni, sem
segir, að þegar upp koma árekstrar milli
hagsmuna manns og hagsmuna annarra, á sá
hinn sami rétt á að velja eigin hag?
Fyrsta atriðið sem leggja ber áherzlu á, er
það, að núgildandi siðareglur krefjast þess
ekki af einstaklingum, að þeir fómi ávallt
eigin hag í þágu annarra. Okkur ber ekki
að gefa allt fé okkar til góðgerðarstarfsemi,
ekki einu sinni stóran hluta þess. Við eigum
oft rétt á því að leita persónulegrar ánægju,
jafnvel þótt aðrir gætu haft hag af því, að við
litum til með þeim. Reyndar er það svo, að
hefði maður ekki rétt til þess að huga oftast
að eigin hag, væri ekki hægt að krefjast þess
af öðmm mönnum, að koma stundum fram
við hann af ósérplægni. Það er einmitt vegna
þess að eiginhagsmunir manns em siðferðilega
dýrmætir, að öðrum mönnum ber að virða þá.
Hins vegar kemur upp siðferðilegt
ágreiningsefni, þegar maður getur ekki fengið
eitthvað, sem hann langar í, nema með því að
brjóta einhverja þá reglu, sem krefst þess af
honum, að hann verði öðrum að gagni eða að
hann forðist að valda öðrum skaða. Hafi hann
til dæmis lofað að borga skuld á tilteknum
tíma, þá er honum siðferðilega skylt að standa
við það, jafnvel þó að hann þyrfti sjálfur á
peningunum að halda á þeirri stundu. Jafnvel
þó maður sé að verða seinn fyrir, ber honum
að haga akstri sínum þannig, að hann skaði
ekki fótgangandi vegfarendur, sem tefja för
hans. Þannig krefjast margar siðareglur þess,
að við virðum hag annarra, jafnvel þó að það
feli í sér, að við verðum að fóma okkar eigin
hag. Sá sérdrægni svarar því til, að menn séu
aldrei siðferðilega skyldir að fara eftir þessum
reglum, þegar það er mönnum óhentugt (3).
Til þess að varpa ljósi á þetta ágreiningsefni,
verður að gefa því gaum, að hugtakið
siðferðileg regla hefir að minnsta kosti tvœr
merkingar.
* í fyrsta lagi er siðferðileg regla = regla
um hegðun og þar með hluti af siðareglum
hóps. Þannig er hægt að tala um siðareglur
Islendinga, Inúíta eða Sama. I því felst
ekkert um það, að siðferðilega reglan sé
rétt, hún er aðeins viðtekin regla. Reyndar
getur verið, að sú regla, sem okkur er
sérlega ógeðfelld og fjarri siðferðisvitund
okkar, sé í öðru samfélagi siðferðileg, eins
og henni er beitt.
* I öðm lagi felst í því, þegar við segjum,
að regla sé siðferðileg, að reglan sé rétt og
að við séum siðferðilega skyld að fara eftir
henni.
Noti áhangandi sérdrægnikenningarinnar
hugtakið siðferðileg regla í síðari
merkingunni, er kenningin komin í mótsögn
við sjálfa sig. Það er vegna þess, að með
þessu væri hann að segja, að í hvert sinn, sem
maður er siðferðilega skuldbundinn til að gera
eitthvað öðmm í hag, en þarf jafnframt að
taka af sínu, er hann ekki skuldbundinn til
þess að gera það. Við getum þannig hafnað
þessari útgáfu sérdrægninnar.