Læknablaðið - 15.01.1990, Blaðsíða 62
Mevacor
MEVACOR (MSD, 870187) R, E TÖFLUR: B 04 A A 24.
Hver tafla inniheldur: Lovastatinum INN 20 mg eða 40
mg.
Eiginleikar: Lóvastatín er ekki virkt, en helsta umbrots-
efnið er hýdroxýsýra, sem blokkar HMG-CoA redúktasa
og dregur þannig úr myndun kólesteróls. Lyfið lækkar
LDL-kóIesteról og þríglýceríða í blóði. Lyfið frásogast
illa, aðgengi er 5-10%. Meira en 95% lyfsins og umbrots-
efna þess er próteinbundið í blóði. Hámarksblóðþéttni
næst 3-4 klst. eftir inntöku. Lyfið skilst út sem umbrots-
efni í þvagi og galli.
Ábendingar: Veruleg hækkun kólesteróls í blóði, þegar
sérstakt mataræði hefur ekki borið tilætlaðan árangur.
Frábendingar: Skert lifrarstarfsemi. Ofnæmi fyrir lyf-
inu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfið ætti ekki að gefa
konum á barneignaaldri nema þær noti örugga getnaðar-
vörn.
Athugið: Vanda þarf sérstaklega notkun lyfsins og val á
sjúklingum vegna hugsanlegra aukaverkana. Mælt er með
því að lifrarenzým séu mæld fyrir meðferð og á 4-6 vikna
fresti fyrstu 12 mánuði meðferðar, en síðan reglulega (sjá
um frábendingar og aukaverkanir lyfsins). Einnig er mælt
með því að sjúklingar fari í augnskoðun fyrir meðferð og
síðan með reglulegu millibili meðan á meðferð stendur
(sjá um frábendingar og aukaverkanir lyfsins). Aukin
tíðni æxla (illkynja og góðkynja) í lifur og lungum hefur
sést við gjöf mjög hárra skammta hjá músum , en ekki hjá
rottum.
Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru óþægindi
frá meltingarfærum, höfuðverkur og útbrot. Hækkun
lifrarenzýma í blóði (einkum ALAT) kemur fyrir hjá 2-
3% sjúklinga. Talið er hugsanlegt að lyfið geti valdið
vöðvabólgu, skemmdum á skyntaugum og dreri á auga.
Milliverkanir: Samtímis notkun ónæmisbælandi lyfja
(immunosuppressiva) eykur verulega hættu á vöðvabólgu
(myositis).
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegir
skammtar eru 20-80 mg á dag, tekið í einu eða tvennu lagi
með mat. Matur eykur aðgengi lyfsins. Ekki er mælt með
stærri dagsskömmtum en 80 mg.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað
börnum.
Pakkningar: Töflur 20 mg: 28 stk. (þynnupakkað);
98 stk. (þynnupakkað).
Töflur 40 mg: 28 stk. (þynnupakkað);
98 stk. (þynnupakkað).
Nánari upplýsingar:
MSD
MERCK
SHARP&
DOHME
Leiðandi fyrirtæki
í þróun nýrra lyfja.
FARMASÍA HF
Pósthólf 5460 ■ 125 Reykjavík
Sími 25933