Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 36

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 36
34 LÆKNABLAÐIÐ Örn Bjarnason Siöamál lækna 7 SÁTTMÁLINN UM HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Of course, we have a right to life, and some would say a right to die, or at least to die in dignity... There is serious debate today over whether there is a right to health care, a right to a minimum standard of living, and a right to a job - even a right to a satisfying job. A number of years ago a right to a vacation with pay was proclaimed, and nowadays rights to clean air and water are demanded (1). INNGANGUR Réttindi eiga sér helgan sess í orðasafni lýðræðisstjóma, en þau em þó ekki óumdeilanleg. I þrjár aldir hefir orðið staðið fyrir tilkall hinna eignalausu til aðgangs að auðlegðinni svo og kröfu þeirra, sem fara með umráð yfir henni um óbreytt ástand. Umræðan hefir snúizt um réttlætingu á slíkum kröfum. Skoðanamunur er um það, hvert sé markmið réttinda, enda ná þau allt frá hlutkenndum eignarrétti til óhlutstæðrar hamingjuleitar. Miðsvæðis milli yztu marka deilnanna um mannleg og borgaraleg réttindi hefir verið víðtækt og almennt samkomulag, sem hefir í lýðræðisríkjum gert mönnum kleift, að koma á sanngjömum lögum og stjómkerfi, til þess að viðhalda réttlæti. RÉTTURINN TIL HEILBRIGÐI OG HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Hugmyndin um að menn fengju réttinn til heilbrigði í vöggugjöf kom fram í frönsku stjómarbyltingunni. Um svipað leyti lagði Thomas Paine til, að komið yrði á tryggingum sem réttindum (er væm þá ekki háðar gjafmildi) og í frönsku stjómarbyltingunni komu einnig fram hugmyndir um rétt til atvinnu og rétt til menntunar. Á nítjándu öld þróuðu sósíalistar þessar hugmyndir og lögðu til félagslegar umbætur, sem ekki einasta snertu friðhelgi einkalífs og eigna, heldur áttu þær að tryggja viðunandi líf, þeim sem þurfandi væm. Síðar urðu þessar tillögur, sem komu úr ýmsum hugmyndafræðilegum áttum, að veruleika, þegar mörg þjóðríki urðu til þess að koma á alþýðutryggingum, atvinnuleysistryggingum og ýmsum velferðaráætlunum. Þannig var að undirlagi Ottos von Bismarck komið á alþýðutryggingum í Þýzkalandi árið 1883. Því fordæmi var fylgt í Austurríki 1888, Ungverjalandi 1891 og Bretlandi 1912, en hérlendis vom fyrstu alþýðutryggingalögin sett árið 1936. Á þessu skeiði bættust við vemd persónulegs sjálfræðis og jákvæð skylda ríkisstjóma til þess að auka þetta sjálfræði. Með Allsherjaryfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi frá 1948 og Alþjóðlega sáttmálanum um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi frá 1966 vom ýmis réttindi staðfest (2, 3). í yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eru þannig nefndur réttur til vinnu, réttur til fæðu, réttur til húsnæðis, réttur til menntunar og réttur til læknisþjónustu. Svonefnd efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi ná til réttarins til vinnu, réttarins til þess að stofna stéttarfélög, réttar til viðunandi launa, réttar til almannatrygginga, réttar til ókeypis menntunar, réttar til fullnægjandi húsnæðis, réttar til heppilegrar fæðu og réttar til heilbrigðisþjónustu. í þeirri upptalningu, sem hér fór á undan, em tvö hugtök, sem þarf að ræða nánar. Verður fyrst fjallað um réttinn til heilbrigði og síðan um réttinn til heilbrigðisþjónustu. Nú á dögum er talað um heilbrigði, eins og væri hún þekkt og mælanleg stærð. í rauninni er þó erfitt að henda reiður á merkingu orðsins. Ef við grípum til latneska kvenkynsorðsins sanitas, merkir það allt í senn heilbrigði, heilbrigða dómgreind og hreinleika og svarar vel til hugmyndanna um
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.