Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 42

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 42
40 LÆKNABLAÐIÐ sögulegu lýsingu, má segja, að læknamir náðu miklu betri árangri en prestamir:' Þeir fengu smám saman betri aðstöðu og miklu meiri völd og hafa stöðugt víkkað yfirráðasvæði sitt (4). Mikil ávannst, þegar Charcot gerði sefasýkina að nútímafyrirbæri aðgengilegu fyrir lækna, með því einfaldlega að flokka hana sem sjúkdóm. Freud hélt þessu starfi áffam og geðræna sjúkdómshugtakið var enn fært út, þegar geðlæknisfræðin var samþætt forvamarstarfi, félagsþjónustu og meðferð dæmdra manna, samanber myndina. í skýringarmynd Blomquists af vísindunum um manninn, er hægt að skilgreina læknisfræðina (A) þannig, að hún nái yfir eftirtaldar greinar að fullu, að hluta eða alls ekki: Sálarfræði (B), félagsfræði (C), afbrotafræði (D) og trúarbrögð (E). Það hefir víðtækar stjómmálalegar og þjóðhagslegar afleiðingar, hvemig læknisfræðin er skilgreind (4). Hefðu Charcot og Freud til dæmis verið sálfræðingar og ekki læknar, hefði sjúkdómshugtakið væntanlega orðið þrengra og samfélagið starfað á annan hátt í dag. í fjölkynngilækningum var ekki gerður greinarmunur á því geðræna og því líkamlega (4), þó litið væri á orsakir sjúkdóma á tvo vegu: Annars vegar réðu samspil himinhnatta og stjama og svo trúarleg gildi þeim þáttum, sem vom orsök sjúkdóma. Þannig mátti raða einkennum og teiknum saman í meira og minna samhangandi einingar, sem álitið var, að væm til komin af völdum einhvers aðila, svo sem guðs, ills anda eða nomar. Hins vegar var álitið, að önnur fyrirbæri, sem vom allt að því eins átakamikil, svo sem bágindi og tmflun líffærastarfsemi, væru af náttúrulegum orsökum (5). Þessi tvískipting hefir haldizt í aldanna rás og ráðið tveimur gerðum sjúkdómshugtaka. VERUFRÆÐILEGT OG LÍFEÐLISFRÆÐILEGT SJÚKDÓMSHUGTAK Önnur gerðin, sú verufrœðilega, álítur sjúkdóm eitthvað framandi og utan við heilbrigðan mann. Sjúkdómur er þá sérvirkur og hlutlægur vemleiki, aðgreindur frá sjúklingnum sem hýsir hann. Sjúkdómurinn rennur sitt skeið og hefir auðkennandi yfirbragð og meinafræðilegar skemmdir. Þar sem slík viðhorf ríktu, var áherzla lögð á almenn sjúkdómsmerki og skemmdir, sem sjúkt fólk á sameiginleg og þannig fengust fram afmörkuð mynztur og skörp skil milli sjúkdóms og heilbrigði. Þegar menn féllust á slíkt hugtak, lögðu þeir mikið upp úr því, að greina sjúkdómsheildimar og að leita uppi sértæka meðferð til útrýmingar hverjum sjúkdómi. Endanlega hvatti vemfræðilega hugtakið til þess, að menn leituðu uppi orsakir sjúkdómanna, það ýtti undir hugmyndina um óbreytileika þeirra og gerði lítið úr endalausri sundurleitni merkja og skemmda, sem menn fundu hjá sjúklingunum. Hin gerðin hefir verið kölluð lífeðlisfrœðilega hugtakið, vegna þess að þá er einfaldlega litið á sjúkdóminn sem afleiðingu starfstmflunar innan líkama viðkomandi einstaklings. Slíkt viðhorf gerði óskýran muninn á sjúklegu og heilbrigðu ástandi, það lagði áherzlu á, að sjúkleiki hvers sjúklings sé einstakur í sinni röð og það gerði meinafræðilega ferlið innhverft, í stað þess að kenna truflanimar utanaðkomandi orsökum. Við þessar aðstæður var áherzlan lögð á horfur fremur en sjúkdómsgreiningu og á beitingu almennrar meðferðar, sem beindist að starfstruflunum líkamans (5). Enn ein tvískipting afstöðu til sjúkdóma er til og veldur henni gildismat manna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.