Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1990, Page 57

Læknablaðið - 15.01.1990, Page 57
LÆKNABLAÐIÐ 55 lækninganna sé Guð. Þeir sem eru þessa sinnis skiptast síðan í tvo hópa: Trúa sumir því, að læknar séu verkfæri Guðs, sem flytji mönnunum líkn. Aðrir telja að lækningar séu beinlínis merki um trúarbrest (10). Þessi tvöfalda tvíhyggja í kristnum viðhorfum, bæði meðal lærðra og leikra, hefir ávallt verið til staðar í einhverjum mæli. Hún er hliðstæða þess sem rætt var í áttunda kafla um skilgreiningu sjúkdómshugtaksins. Hér er ekki vettvangur til að fjalla um þróun trúarlegra viðhorfa til hlutverks lækna, en látið skal nægja, að minna á, að kristin trú gjörbylti afstöðu samfélagsins til sjúkra manna með boðskap sínum um kærleika - caritas og velgjörð - beneficientia - var ef til vill sú dyggðin, sem kirkjan lagði áherzlu á umfram aðrar. Fyrstu heimildir um löggildingu læknisstarfa eru frá Sikiley á tólftu öld. Samkvæmt konunglegri tilskipun Hrólfs annars skyldu þeir, sem vildu fá leyfi til að stunda lækningar, gangast undir próf hjá embættismönnum konungs. Var þetta gert til þess að enginn þegn ætti á hættu að lenda í höndum reynslulausra manna. Lá við fangelsun og eignaupptaka ef út af var brugðið. Sonarsonur Hrólfs, Friðrik keisari annar, kunngerði árið 1231 Liber Augustalis. Samkvæmt þeim bálki skyldi próf vegna veitingar lækningaleyfis fara fram hjá meisturum læknaskólans í Salemo, en keisarinn eða fulltrúi hans gæfi út leyfið. Aður en menn gátu fengið að gangast undir próf, skyldu þeir leggja stund á almennt nám í þrjú ár, á læknisfræði í fimm ár og starfa í eitt ár undir leiðsögn reynds læknis. Vitnað var til þess skaða og óafturkallanlegs tjóns, sem getur leitt af reynsluleysi lækna og að með þessum ráðstöfunum sjái konungurinn trúum þegnum sínum fyrir betri þjónustu (10). Hefir því snemma verið skjalfest, að stjómendur ríkja telja sig bera ábyrgð á heilbrigði þegna sinna. Gegn veitingu einkaleyfis urðu læknar að vinna ríkinu hollustueið og gengust þar með undir kvaðir af ýmsu tagi: Þeir skyldu vitja sjúklinga sinna tvisvar á dag og óskaði sjúklingur þess, einu sinni á hverju kveldi. Greiðslur fyrir læknishjálp skyldi meðal annars ákvarða með hliðsjón af vegalengd og fátækt fólk átti rétt á ráðgjöf án þess að gjald kæmi fyrir. Læknum var bannað að gera samninga við apótekara eða að reka eigin lyfjabúðir og þeim bar að tilkynna um apótekara, sem kynnu að láta út lyf er ekki hefðu nægilega styrkt. Apótekumm var hins vegar óheimilt að láta úti lyf, án þess að lyfseðill kæmi frá lækni og þeir urðu einnig að vinna trúnaðareið, áður en þeir gátu hafið störf(lO). Það vom hins vegar ekki stjómvöld ein, sem reyndu að koma skipulagi á lækningar og lyfjadreifingu. A elleftu og tólftu öld stofnuðu ýmsar starfsstéttir með sér félög, gildi, conlegia og vom þar á meðal hópar apótekara, lækna og kírúrga. Þessum gildum var ætlað að setja og tryggja staðla fyrir framleiðsluna, þjónustuna, ákvarða gjaldtöku, hafa stjóm á vinnutíma og vinnuskilyrðum, draga úr samkeppni milli félaga, takmarka aðgang að stéttinni og í röðum lækna var reynt að tryggja viðhlítandi meðferð sjúklinga. Læknagildin stóðu vörð um menntun og þjálfun og settu reglur um hegðun lækna. Þau þróuðust síðar yfir í félög stúdenta og kennara og á síðmiðöldum urðu þessi gildi að háskóladeildum - collegia. Ábyrgðin á vali inn í stéttina færðist þannig til læknaskóla og læknadeilda. Þegar þessi viðurkenning var fengin, var kominn á samingur milli samfélagsins og lœknastéttarinnar og hann var síðan innsiglaður með leyfisveitingu stjómvalda, hinu sýnilega tákni þess að samfélagssáttmálinn er í gildi. Þó svo að raunvemlegt einkaleyfi til lækninga hafi líklega ekki komist á fyrri á átjándu og nítjándu öld, sjáum við að þegar hálfu árþúsundi fyrr er komið á samkomulag samfélags (eða stjómvalda fyrir þess hönd) og stéttar, þar sem báðir öðlast nokkuð með því að taka á sig vissar skyldur. ÞRÓUNIN HÉRLENDIS Hafnarháskóli var stofnaður 1478 og eiginleg læknadeild 1539. Um nám og réttindi lækna í Danaveldi segir Vilmundur Jónsson: «Læknisfræðinámið miðaðist eingöngu við meðferð »innvortis« sjúkdóma, því að handlæknisaðgerðir allar heyrðu undir bartskerana, og var á þær litið sem hverja aðra iðngrein; hinir háskólalærðu læknar vildu ekki

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.