Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1990, Page 67

Læknablaðið - 15.01.1990, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ 61 ástæða til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar (6). * Læknir verður ekki leiddur fram sem vitni í einkamálum gegn vilja sjúklings nema ætla megi að úrslit málsins velti á vitnisburði hans eða málið sé mikilvægt fyrir málsaðila eða þjóðfélagið, hvort tveggja að mati dómara. I slíkum tilvikum ber læknis að skýra frá öllu sem hann veit og telur að hugsanlega geti haft áhrif á málið. Slíkur vitnisburður skal fara fram fyrir luktum dyrum (6). * Læknir getur þrátt fyrir þessi ákvæði veitt öðrum heilbrigðisstéttum upplýsingar sé um að ræða rannsóknir og meðferð sjúklinga. Sama þagnarskylda gildir fyrir aðrar heilbrigðisstéttir og aðra sem vinna með lækni. Þagnarskylda fellur ekki niður við lát sjúklings. Mæli ríkar ástæður með því, getur læknir látið í té upplýsingar með hliðsjón af vilja hins látna og hagsmunum viðkomandi. Sé læknir í vafa getur hann borið málið undir landlækni. Leiki vafi á nauðsyn afhendingar sjúkragagna eða þyki ástæða til vegna ákvæða laga þessara um þagnarskyldu er lækni heimilt að afhenda landlækni einum sjúkragögn sem trúnaðarmál til frekari fyrirgreiðslu (6). * Læknir er háður eftirliti landlæknis. Ber landlækni að gæta þess að læknir haldi ákvæði læknalaga og önnur ákvæði í heilbrigðislöggjöf landsins. Landlæknir heimtir skýrslur af lækni viðvíkjandi störfum hans að heilbrigðismálum í samræmi við reglur þar að lútandi sem ráðherra setur að fengnum tillögum landlæknis og Læknafélags Islands (6). * Verði læknir í starfi sínu var við mistök eða vanrækslu af hálfu lækna eða annarra heilbrigðisstarfsmanna og ætla má að skaði hljótist af skal hann tilkynna það landlækni. Sama skylda hvílir á öðrum heilbrigðisstéttum og öðrum þeim sem vinna með læknum (6). * Lækni ber að tilkynna landlækni eins fljótt og við verður komið verði hann var við skottulækningar (6). * Lækni er óheimilt að lána nafn sitt ákveðinni lækningastarfsemi nema hún fari að fullu fram á hans ábyrgð samkvæmt ráðleggingum hans og undir eftirliti hans (6). * Lækni er óheimilt að reka lækningastofu eftir 75 ára aldur. Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá þssu ákvæði til eins árs í senn (6). Um þagnarskylduna var nánar rætt í níunda kafla, svo og um takmarkanir á auglýsingum lækna. HVER ERU VIÐURLÖGIN EF VIKIÐ ER AF RÉTTRI LEIÐ? * Lækni, sem brýtur gegn ákvæðum læknalaga, má svipta lækningaleyfi þó að ekki teljist sannað að brotið hafi valdið tjóni sé það þess eðlis að það verði að teljast honum sérstaklega ósamboðið, svo sem ef um er að ræða röng og villandi læknisvottorð eða læknisumsagnir að órannsökuðu máli, lausmælgi um einkamál sem hann hefur komist að sem læknir, alvarlegt hirðuleysi eða ódugnað í störfum sínum eða annað atferli sem fer í bága við læknalög. Sé um að ræða ítrekuð brot eða megi dæma í fangelsi fyrir brot gegn lögum þessum skal svipta lækni lækningaleyfi (6). * Landlækni ber, verði hann þess var að læknir vanrækir skyldur sínar, fer út fyrir verksvið sitt eða brýtur í bága við fyrirmæli heilbrigðislaga landsins, að áminna hann. Aminning skal vera skrifleg og rökstudd. Landlæknir sendir afrit áminningar til heilbrigðisráðherra. Komi áminning ekki að haldi eða sé um að ræða óhæfu í læknisstörfum ber landlækni að skýra ráðherra frá málinu og gera tillögur um hvað gera skuli. Getur þá ráðherra úrskurðað að viðkomandi skuli sviptur lækningaleyfi að fullu eða tímabundið, en skjóta má þeim úrskurði til dómstóla (6). * Það telst óhæfa í læknisstarfi þegar læknir uppfyllir ekki þau skilyrði sem krafist var þegar hann fékk lækningaleyfi, t.d. vegna heilsubrests sem geri hann lítt hæfan, óhæfan eða jafnvel hættulegan við störf vegna vímuefnaneyslu eða vegna þess að hann hafi kynnt sig að alvarlegu hirðuleysi eða ódugnaði í störfum (6). * Telji Lyfjaeftirlit ríksins að rökstudd ástæða sé til eftirlits með ávísunum læknis á ávana- og fíknilyf, skal það tilkynnt landlækni. Getur ráðherra, að tillögu landlæknis, lagt fyrir lækninn að halda skrá yfir ávísanir og tilefni notkunar

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.