Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 76

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 76
70 LÆKNABLAÐIÐ óháð nauðsyn þess að gefa samþykki sitt eða til viðbótar þeim upplýsingum, sem upp eru taldar í sjöttu grein - að læknirinn gefi fullar upplýsingar um heilbrigði hans, nema að slíkt geti valdið sjúklingi verulegum skaða. (Lækni er skylt að afhenda sjúkraskrá, alla eða að hluta, sjúklingi eða forráðamanni ef það þjónar ótvíræðum hagsmunum sjúklings (2)). 8. Hægt er að mæla fyrir um það í landslögum, hvaða lækni beri að gefa þær upplýsingar, sem vitnað er til í sjöttu og sjöundu grein. 9.1. Læknir getur, ef almennu heilbrigðisástandi er ógnað og slíkt leyft í lögum, beitt rannsókn, einangrun og þvingunarmeðferð án samþykkis sjúklings, á þann hátt sem mælt er fyrir í lögum. 9.2. Læknisfræðilega íhlutun, sem nauðsynleg er vegna rannsóknar glæpsamlegs athæfis og læknisfræðilega íhlutun, sem dómstóll fyrirskipar til þess að afla sönnunargagna, má gera án samþykkis sjúklings, þegar ákvæði eru um það í lögum. 10.1. Læknir verður að halda leyndum gagnvart þriðja aðila öllum upplýsingum varðandi sjúklinginn og heilbrigðisástand hans, svo og öðrum upplýsingum varðandi einkamál, sem hann kann að komast að í starfi sínu. Læknir verður að halda slíkum upplýsingum leyndum, jafnvel eftir lát sjúklings. Læknir má hins vegar láta uppi hverjar þær upplýsingar, sem sjúklingurinn hefir veitt honum umboð til að gera uppskátt um, nema landslög banni slíkt. (Samþykki sjúklings, sem orðinn er 16 ára, leysir lækni undan þagnarskyldu. Að öðrum kosti þarf samþykki forráðamanns (21)). 10.2. I landslögum er hægt að mæla fyrir um undanþágur frá leynd á læknisfræðilegum upplýsingum, sérstaklega í þágu réttvísinnar, til þess að koma í veg fyrir glæpsamlegt athæfi, til vemdar bömum, forvamar gegn smitsjúkdómum, svo og ef um atvinnusjúkdóma og meiðsli tengd atvinnu, eða framkvæmd aðstoðar á vegum almannatrygginga og opinberrar framfærslu er að ræða. 10.3. Ákveði læknir að veita sjúklingi ekki fyllstu upplýsingar um heilbrigði hans, getur hann, þegar hagsmunir sjúklings réttlæta það, upplýst þann aðila sem sjúklingurinn hefir bent á, um atriði málsins eða ef sjúklingurinn hefir enga slíka vísbendingu gefið, þá þann aðila sem læknirinn telur bezt til þess fallinn, af þeim sem nákomnastir em sjúklingi. 10.4. Þegar aðrir læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk, sem bundið er þagnarskyldu, á aðild að umsjá sjúklings, getur læknir veitt því þær upplýsingar, sem nauðsynlegar em til þess, að gera þeim kleift að rækja skyldur sínar við sjúklinginn. 11.1. Þessar reglur skulu ekki hafa áhrif á þau sérstöku ákvæði, sem felast í Ráðleggingum ráðherranefndar Evrópuráðsins til aðildarríkjanna varðandi lögvemdun þeirra, sem haldnir em geðtruflunum og vistaðir em sem geðsjúklingar án eigin samþykkis (46). B. Máldagi læknis og sjúklings Með stoð í þeim forsendum, sem felast í staðhæfðum skyldum læknis er gerður eftirfarandi máldagi (47): * Við staðfestum siðferðilega nauðsyn þess, að standa við þau loforð sem við gefum og þær skuldbindingar sem við göngumst undir, þar á meðal skuldbindingar þær sem felast í þessum máldaga. * Við staðfestum siðferðilega nauðsyn þess, að koma hvert fram við annað, sem aðila í siðrænu samfélagi, þar sem við emm frjáls í vali okkar, að því tilskildu að við vanvirðum ekki aðrar siðfræðilegar fmmkröfur. * Við staðfestum siðferðilega nauðsyn þess, að koma heiðarlega fram hvert við annað. * Við staðfestum siðræna nauðsyn þess, að eiga ekki virkan eða vísvitandi þátt í dauða nokkurrar mannveru. * Við staðfestum siðferðilega nauðsyn þess, að stefnt sé að jafnrétti í velgerð við einstaklinga og jafnrétti í aðgangi að heilbrigðisþjónustu, sem skapar öðmm sömu tækifæri og við höfum. * Við staðfestum siðferðilega mikilvægi þess, að við stuðlum að velferð hvers annars og komum fram hvert við annað af virðingu, reisn og samúð. TILVITNANIR 1. Bennet G. Patients and their doctors. London: Bailliére Tindall 1979.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.