Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 60
416 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 innar yfirvinnu þótt á sömu stofnunum sé ekki greitt fyrir sannanlega unna yfirvinnu utan vakta. Sumar sérgreinar (eða einstaklingar innan sérgreina) njóta ferliverkagreiðslna, en ekki aðrar og sérgreinar bjóða þar að auki í nrismunandi miklum mæli upp á aukastörf. Þeir sem þurfa að byggja afkomu sína á sjálf- stæðum stofurekstri bera persónulega fjár- hagslega ábyrgð og tap og því eru allar stökk- breytingar í heilbrigðiskerfinu (á því sem lög- fræðingar kalla „ríkjandi ástandi") þeim áhættusamar og geta leitt til persónulegra gjaldþrota. Mikilvægt er því að forystumenn læknasamtakanna og samninganefndir þeirra fari varlega í að semja um skerðingu á rétti lækna til aukastarfa. Reyndar má ætla að kjarasamningsbundin skerðing stæðist ekki stjórnarskrárákvæðið um atvinnufrelsi manna ef á það væri reynt fyrir dómstólum. Réttinum til þess að geta séð sér og sínum farborða með því að selja vinnu sína (atvinnufrelsinu) eru ekki sett takmörk í stjórnarskrá (samanber of- ar). Þar sem stöðufjöldi á stofnunum hins opin- bera er takmarkaður og háður afkomu ríkis- sjóðs, er gríðarlega mikilvægt fyrir lækna að tryggja stéttinni sjálfstæðan starfsvettvang. Sömuleiðis er ljóst að sá starfsvettvangur verð- ur að vera opinn öllum læknum í ljósi atvinnu- frelsisákvæðisins og samkeppnislaga til þess að tryggja stofnsetningarrétt og jafnræði allra að- ila á markaði (samanber úrskurð Samkeppnis- stofnunar 1994 og 1997). Til þess að tryggja læknum og öðrum heilbrigðisstéttum frelsi ut- an opinberra sjúkrastofnana þarf að skoða enn frekar í ljósi samkeppnislaga hvort skilgreina verði starfssvið opinberra heilbrigðisstofnana þröngt. 6. Tillögur nefndarinnar að breytingum innan heilbrigðiskerfísins Læknafélag íslands hefur á löngum tíma þróað stefnu um rekstrarform og fjármögnun heilbrigðisþjónustu. Vinnuhópurinn telur upp- byggingu íslenskrar heilbrigðisþjónustu í gróf- um dráttum vel heppnaða og telur varasamt að fara út í stökkbreytingar, en eftirfarandi eru þættir sem til skoðunar ættu að vera: a. Endurvakning tryggingahugtaksins: Starfshópurinn telur nauðsynlegt að endur- vekja tryggingahugtakið í íslenskri heilbrigðis- og sjúkraþjónustu. Öllum sjúkratryggðum þarf að vera ljóst hlutverk sjúkratryggingar sinnar og hvaða skilgreindur réttur fylgir. Fjármagna verður kerfið með iðgjöldum, sem líklega þurfa að einhverju leyti að vera tekjutengd, en hins vegar er fráleitt að tengja bótagreiðslur úr kerfinu tekjum þannig að þeir sem byggi upp sjóðinn njóti ekki bóta úr honum til jafns við aðra. Skoða þarf rækilega hvort fleiri en einn aðili eigi að keppa um að sjúkratryggja fólk, en hópurinn telur þó að um lágmarks skyldutrygg- ingu þurfi að vera að ræða. Ávinningur af fleiri en einu tryggingafélagi væri meðal annars sam- anburður, sem myndi skýra rétt sjúkra- tryggðra. b. Stjórnunarlegt forræði lækna á vinnu- stöðum: Forræði lækna verður að vera afdrátt- arlaust yfir lækningum. Ella eru þeir seldir undir hagsmuni, sem geta orðið þess valdandi að læknum sé gert ómögulegt að gæta bestu hagsmuna sjúklinga sinna. Sömuleiðis telur starfshópurinn vera ljóst, að launakjör lækna verði best tryggð á vinnustöðum sem læknar eigi eða reki sjálfir. c. Fjármögnun læknisverka og sjúkrahúsa: Skoða þarf hvort í ljósi samkeppnislaga verði að skilgreina starfssvið opinberra heilbrigðis- stofnana þröngt, það er til þess að tryggja lækn- um og öðrum heilbrigðisstéttum frelsi utan op- inberra stofnana. í framhaldi af slíkri skilgrein- ingu telur starfshópurinn æskilegt að sá kostur sé skoðaður vandlega af LI hvort öll lækninga- starfsemi, innan og utan vistunarstofnana skuli vera fjármögnuð í viðvikagreiðsluformi (í sam- ræmi við unnin verk og samkvæmt umsömdum töxtum í líkingu við núverandi samninga lækna við Tryggingastofnun ríkisins). Sé þetta gert er nauðsynlegt að greiðslan komi úr sameiginleg- um tryggingasjóði til að tryggja jafnrétti sjúk- linga til þjónustu óháð búsetu. Þar sem afkoma sjúkrahúsa er tryggð í Lögum um heilbrigðis- þjónustu og sjúkrahúsin sinna öryggis- og kennsluhlutverki á öllum tímum dags er til dæmis ljóst að ekki er unnt að beita sömu aðferðum við ákvörðun verðs eins og notaðar eru við ákvörðun verðs á sjálfstætt reknum læknastofum. Forsendur eru aðrar. Því hlýtur greitt verð til stofnana fyrst og fremst að vera viðmiðun hugsuð til þess að bæta rekstur ein- stakra stofnana. Ávinningur af kerfi þar sem fjármagnið fylgir sjúklingnum kann meðal ann- ars að vera að fjárfestingar séu betur nýttar, með öðrum orðum minni stofnkostnaður, en hugsanlegt væri að á móti kæmi aukinn stjórn- unarkostnaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.