Læknablaðið - 15.06.1997, Síða 97
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
449
hef setið í stjórn ÁTVR. Ég tel
að svo lengi sem tóbaksvörur
halda velli sem almenn neyslu-
vara og sala á þeim leyfð sé rétt-
ara að umboðsaðilar tóbaks-
framleiðenda sjái um bæði inn-
flutning og heildsöludreifingu.
í stað þeirra tekna sem ríkis-
sjóður aflar sér með álagningu
ÁTVR á tóbaksvörur ætti að
mínu áliti að taka upp sérstakt
gjald, tóbaksgjald, sem lagt yrði
á tóbaksvörur í tolli við inn-
flutning þeirra. Jafnframt tel ég
að vinna beri markvisst að laga-
smíði og gerð reglugerða sem
hefðu það að markmiði að tak-
marka fjölda vindlingategunda
á markaði eins og mögulegt er
vegna þeirra viðskiptareglna
sem við Islendingar verðum að
hlíta eftir aðild okkar að mark-
aðssamtökum. Þetta er mögu-
legt meðal annars með setningu
reglna um leyfilegt hámark
tjöruinnihalds og nikótínmagns
í tóbaki.
Stjórn ÁTVR hefur þegar
sett slík ákvæði í innkauparegl-
ur sínar. Pað gerði hún þar sem
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið taldi sig ekki hafa
heimild í gildandi lögum til að
setja reglugerð sem takmarka
myndi innflutning með þessum
hætti. Leyfilegt hámark tjöru
sem vindlingur má gefa frá sér
er nú 15 mg, en verður lækkað í
12 mg frá og með 31. desember
1997. Er þetta gert samkvæmt
tillögu heilbrigðisráðuneytisins
í skjóli tilskipunar Evrópu-
sambandsins er samþykkt var
31. desember 1992. Ég fer ekki
dult með þá skoðun mína að ég
vil að stærri skref verði stigin
strax, auk þess sem leyfilegt
magn nikótíns verði skilgreint
og að frá og með næstu áramót-
um verði leyfilegt magn tjöru og
nikótíns í vindlingum lækkað í
áföngum. Til að vinna að fram-
gangi þessa máls, sem lið í heil-
brigðisstefnu þjóðarinnar, hef-
ur stjórn ÁTVR komið á fram-
færi tillögum um samstarf
stjórnarinnar og heilbrigðis-
ráðuneytisins og er nú beðið
svars frá ráðuneytinu.
Um áhrif slíkrar reglugerðar
sem þarf að hafa lagastoð má.
nefna að helmingur þeirra
vindlingategunda, sem voru til
sölu hérlendis um síðustu ára-
mót, innihélt 13 mg af tjöru eða
meira. Ef markið hefði verið
sett í 7 mg hefðu leyfilegar teg-
undir á markaðnum aðeins orð-
ið tvær. Er þetta skýrt dæmi um
hvaða áhrif setning hlutlægra
jafnræðisreglna getur haft á
fjölda tegunda á markaðnum.
Ég tel brýnt að setja almenn-
ar reglur sem fyrst og horfa til
framtíðar með stiglækkandi
leyfilegum hámarksgildum
tjöru og nikótíns í vindlingum.
Það er eitt fyrsta og jafnframt
mikilvægasta skrefið sem hægt
er að stíga á leið til betra heilsu-
fars með minnkandi tóbaks-
neyslu.
Lokaorð
Ég set hvorki lög né reglu-
gerðir um innflutning eða sölu
tóbaks á Islandi. Það gera
stjórnvöld hverju sinni og meira
að segja munu þau háð alþjóð-
legum viðskipta- og markaðs-
samningum sem ísland er aðili
að. Sú ákvörðun mín að taka
sæti í stjórn ÁTVR byggðist
fyrst og fremst á því að með
stjórnarsetu taldi ég mig öðlast
möguleika á því að hafa afskipti
af og áhrif á stefnumörkun fyrir-
tækisins og geta beitt mér fyrir
því að hún yrði þannig að unnið
yrði að því að lágmarka þá skað-
semi sem hlýst af tóbakssölu og
reykingum. Taldi ég að þannig
gæti ég orðið til nokkurs gagns
og lagt fram þekkingu sem
byggir meðal annars á fyrri
störfum mínum á þessu sviði,
meðal annars í stjórn Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur, en
sem kunnugt er er eitt megin-
verkefni þess félags að vinna að
minnkandi tóbaksneyslu með
almennri fræðslu meðal annars í
skólum, svo og með þátttöku í
tóbaksvörnum þar sem þeim
hefur verið sinnt.
Ásakanir sem fram koma í
minn garð í grein Péturs eru
ósanngjarnar. Hann gefur ótví-
rætt í skyn að ég leiki tveimur
skjöldum. Við stjórnarborð hjá
ÁTVR sinni ég hagsmunum tó-
baksframleiðenda og tóbaks-
sala en bregði mér síðan í hvíta
sloppinn og hlúi að fórnarlömb-
unum. Jafn fjarstæðukennt er
að halda því fram að æskufólk
geti fundið réttlætingu fyrir tó-
baksneyslu í því að læknir sitji í
umræddri stjórn. Fáum er
sennilega betur ljóst en mér þær
hörmulegu afleiðingar sem tó-
baksreykingar geta haft á
heilsufar fólks og ég tel mig
bæði með athöfnum og orðum
hafa sannað einlægni í baráttu
minni gegn tóbaksnotkun.
Vona ég sannarlega, þótt öllum
sé það greinilega enn ekki Ijóst
að vera mín í stjórn ÁTVR hafi
áhrif í þeirri baráttu að minnka
skaðsemi sem af tóbaksneyslu
hlýst, þá muni það koma síðar í
ljós svo ekki verði um villst. Hef
ég hér að framan lýst leiðum
sem ég tel færar í þeirri baráttu.
Sem lið í henni tel ég mikilvægt
að Alþingi samþykki tillögu
stjórnar ÁTVR um að fyrirtæk-
ið hætti innflutningi og dreif-
ingu tóbaksvara. Jafnhliða
slíkri lagasetningu þarf að
tryggja eftirfarandi þætti:
1. Að ákvæði taki gildi um
lágmarksútsöluverð tóbaks og
að viðurlög yrðu við brotum á
þeim.
2. Að sérstakt gjald, tóbaks-
gjald, komi í stað þeirra tekna
sem ríkissjóður hefur nú af
álagningu ÁTVR á tóbaksvör-
ur.
3. Að við ákvörðun tóbaks-
framhald á næstu
blaðsíðu