Læknablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 2
ARICEPT • PFIZER. TÖFLUR; R. Hvertafla inniheldur: Donepezilum INN, hýdróklóríð,
4,56 mg eða 9,12 mg, samsvarandi Donepezilum INN 5 mg eða 10 mg. Ábendingar
Lyfið er ætlað til einkennameðferðar á allt frá vægum til meðalsvæsins Alzheimers-
sjúkdóms. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir/aldraðir: Upphafsskammtur er 5 mg
einu sinni á dag. Lyfið á að taka inn að kvöldi rétt fyrir svefn. Halda skal 5 mg
skammti óbreyttum í a.m.k. einn mánuð til að unnt sé að meta fyrstu áhrif
meðferðarinnar svo og til að ná stöðugri dónepezílhýdróklóríð þéttni. Þegar klínískt
mat hefur verið lagt á meðferð fyrsta mánuðinn með 5 mg á dag má auka skammt
af dónepezíli í 10 mg einu sinni á dag. Hámarksskammtur sem mælt er með er 10
mg á dag. Þegar lyfjameðferð er hætt dregur smám saman úr þeim gagnlegu
áhrifum sem dónepezíl hafði. Ekkert bendir til versnunar sjúkdómsins sé lyfjameðferð
hætt skyndilega. Börn: Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Lyfið á ekki að
gefa sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir dónepezílhýdróklóríði, píperidínafleiðum
eða öðrum innihaldsefnum lyfjaformsins. Þungun er frábending við notkun Aricept
Svæfingar: Þar sem dónepezíl er kólínesterasahemill mun það að öllum líkindum
auka vöðvaslakandi verkun súkkínýlkólín-lyfja meðan á svæfingu stendur. Hjarta-
og æðakerfi: Vegna lyfjafræðilegrar verkunar kólínesterasahemla geta þeir haft
vagótónísk áhrif á hjartsláttartíðni (t.d. hægum hjartslætti). Líkur á þessari verkun
getur einkum skipt máli fyrir sjúklinga með „sick-sinus" heilkenni eða aðrar
ofanslegils leiðnitruflanir í hjarta eins og t.d. gúl- og gáttarrof. Meltingarfæri: Hja
sjúklingum, sem auknar líkur eru á að fái magasár, skal fylgjast með einkennum
þar um. Þvagfæri: Kólínlík efni (cholinomimetica) geta valdið þvaglátatregðu enda
þótt það hafi ekki komið fram í klínískum rannsóknum með dónepezíl. Miðtaugakerfi:
Krampaköst Nokkrar líkur eru á að kólínlík efni geti valdið krampaköstum (útbreiddum
rykkjakrömpum). Hins vegar geta krampaköst einnig verið afleiðing Alzheimers-
sjúkdómsins. Lungu: Vegna kólínlíkrar verkunar kólínesterasahamla skal gæta
varúðar við notkun þeirra hjá sjúklingum með sögu um astma eða berkjukrampa
(obstructive pulmonary disease). Forðast skal notkun dónepezíls samtímis öðrum
asetýlkólínesterasahemlum eða efnum sem örva eða hamla kólínvirka kerfið.
Nýtt lyf fyrir Alzheimers
- sjúklinga
Milliverkanir: Rannsóknir in vitro hafa sýnt, að cýtókróm P450 ísóenzýmin 3A4 og
2D6, þó í minna mæli, hafa áhrif á umbrot dónepezíls. Rannsóknir á rnilliverkunum,
sem gerðar hafa verið in vitro sýna, að ketókónazól, sem hamlar CYP3A4 og kínidín,
sem hamlar CYP2D6, hindra umbrot dónepezíls. Þau geta því hindrað umbrot
dónepezíls eins og aðrir CYP3A4 hamlar eins og Ld. ítrakónazól og erýtrómýsín og
CYP2D6 hamlar eins og t.d. flúoxetín. Enzýmhvetjandi efni, eins og t.d. rífampisín,
fenýtóín, karbamazepín og etanól, geta lækkað gildi dónepezíls. Jafnframt eru
samverkandi áhrif hugsanleg við samtímis meðhöndlun með efnum
eins og t.d. súkkinýlkólíni, öðrum vöðvaslakandi/-lamandi
efnum, kólínvirkum agónistum eða beta-blokkurum,
Miílfr ^er' t"tnní
til
sem hafa áhrif
á leiðslu hjartans.
Aukaverkanir: Algeng-
ustu aukaverkanirnar
(tíðni £ 5% og tvöfalt al-
gengari en við notkun lyf-
leysu) voru niðurganguL
vöðvakrampar, þreyta,
ógleði, uppköst og svefn-
truflanir. Aðrar algengat
aukaverkanir (tíðni 2 5% 09
> við notkun lyfleysu) voru
höfuðverkur, verkir, óhöpp
(slys), kvef, óþægindi í kviðar-
holi og svimi. Lyfhrif: Dónepezilhýdróklóríð er sérhæfður og afturkræfur
asetýlkólínesterasa hemill, sem er ríkjandi kólínesterasi heilans. Dónepezílhýdróklórið
hefur in vitro meira en 1000 sinnum virkari hömlun á þetta enzým en
bútýrýlkólínesterasa, en það er enzým sem einkum finnst utan miðtaugakerfisins.
Pakkningastærðir og verð (1. sepl 1998): Töflur 5 mg: 28 stk. (þynnupakkað), verð:
11.229 kr„ 98 stk. (þynnupakkað), verð: 33.879 kr. Töflur 10 mg: 28 stk. (þynnupakkað),
verð: 13.423 kr„ 98 stk. (þynnupakkað), verð: 40.861 kr. Lyfið er lyfseðilsskylt og E
merkt í Sérlyfjaskrá. Nánari upplýsingar er að finna í viðauka við Sérlyfjaskrá
Einkaumboð á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2,210 Garðabæ'