Læknablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 98
798
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
/
Iðorðasafn lækna 104
Intracranial lesions
Aðalsteinn Jens Loftsson,
lyfjafræðingur, var að taka
saman efni um eiginleika lyfs
og kom þar að heitinu intra-
cranial lesions, en fann ekki
þýðingu sem honum líkaði.
Forliðurinn intra- er kom-
inn úr latínu og samkvæmt Ið-
orðasafni lækna merkir hann
fyrir innan, innan í, inn á við,
inn í, en undirritaður vildi
gjarnan bæta við inni í og í.
Intra má þannig ýmist nota
um staðsetningu eða stefnu og
ýmist með eða án bandstriks. I
þeim mörgu samsetningum,
sem finna má í Iðorðasafninu,
er algengast að vísað sé til
staðsetningar. Farnar eru þrjár
leiðir við íslensku þýðingarn-
ar, í fyrsta lagi er notað inn-
an-, í öðru lagi í og í þriðja
lagi er oft notað eignarfall,
þegar sjálfgefið virðist að fyrir-
bærið, sem vísað er til, sé inni
í öðru. Intravenous- mætti til
dæmis í mismunandi samsetn-
ingum þýða sem innanblá-
æðar-, í bláæð eða bláæðar-.
Höfuðkúpa
Cranium er komið úr grísku
og táknar þar höfuðkúpu eða
hauskúpu, og finnst undirrit-
uðum heitið höfuðkúpa fara
ólíkt betur í virðulegum fræði-
texta. Samkvæmt íslensku
orðsifjabókinni merkir kúpa
skálarlaga ílát; hauskúpa;
hjálmur; e-ð hvolflaga og ætti
því strangt tekið einungis að
ná tii hins kúpta, efri hluta
höfuðsins. Samkvæmt hinni
miklu læknis- og líffræðiorða-
bók Wileys nota sumir líf-
færafræðingar heitið cranium
sem sameiginlegt heiti á höf-
uðbeinunum öllum. Aðrir
undanskilja neðri kjálkann og
enn aðrir greina á milli kúpu-
beina, ossa cranii, og andlits-
beina, ossa faciei. Rétt er
einnig að minna á latneska
heitið neurocranium, sem þýtt
hefur verið sem heilakúpa í
líffæraheitunum, og cavitas
cranii, sem fær þýðinguna
kúpuhol.
Intracranial finnst bæði
sem sjálfstætt uppflettiorð í
Iðorðasafninu, og er þá ein-
göngu tilgreind þýðingin inn-
an hauskúpu, og sem hluti af
ýmsum samsetningum, en þá
eru ýmist tilgreindar þýðing-
arnar innan höfuðkúpu eða
innankúpu-. Rétt er að benda
á að þýðing íðorðasafnsins á
abscessus intracranialis er
óheppileg, höfuðígerð, því að
íslenska heitið höfuð vísar
ekki sérstaklega inn í höfuð-
kúpuna. Betra er að nota innan-
kúpuígerð eða innankúpu-
kýli. Heitin kúpuígerð og
kúpukýli, eru nothæf til stytt-
ingar, þegar ljóst er hvað við
er átt, en vísa þó ekki sérstak-
lega inn í kúpuna.
Mein, meinsemd
Latneska heitið laesio, sem
tekið hefur verið upp í ensku
sem lesion, merkir meiðsl,
sár, skemmd, skaði eða ögr-
un. Umfjöllun íðorðasafnsins
er afar formleg: löskun, vef-
skemmd. Formgerðar- eða
starfsumskipti afvöldum sjúk-
dóms. Oftast notað um mynd-
breytingar. Undirritaður hefur
leitast við að nota heitin mein
eða meinsemd þegar því verð-
ur við komið. Samkvæmt
þessu má nota íslenska heitið
innan-
kúpumein
til að þýða
enska heitið
intracranial
lesions. I formlegum texta
mætti einnig nota mein-
semdir innan höfuðkúpu
sem kaflaheiti.
Calvaria
Framanritað var ekki fyrr
komið á blað en undirritaður
varð áhorfandi að umfjöllun
um latneska heitið calvaria í
umræðuhópi á alnetinu.
Starfsbróðir vestan hafs hafði
leitað álits annarra barna-
meinafræðinga á greiningu á
fósturvanskapnaði, þar sem
hið sjaldgæfa fyrirbæri acalv-
aria, höfuðkúpuleysi, kom
fyrir. I einu svarinu kom fyrir
heitið calvarium og var það
þar notað sem eintöluorð, en
notandinn fékk að bragði
miklar skammir fyrir. Undir-
ritaður hefur nú flett upp í
öllum tiltækum orðabókum og
í líffærafræðiheitunum, Nom-
ina anatomica, og fengið stað-
fest að skammirnar áttu rétt á
sér. Heitið er komið úr latínu,
skylt lýsingarorðinu calvus,
sköllóttur, og eintalan er sem
sagt calvaria og fleirtalan
calvariae. í líffærafræðiheit-
unum er calvaria þýtt sem
kúpuhvolf og birtist þar í
beinafræðinni undir neuro-
cranium. Undir calvaria birt-
ast svo einungis hvirfilbein,
ennisbein og skeljarhlutar
hnakka- og gagnaugabeins.
(Framhald í nœsta blaði.)
Jóhann Heiðar Jóhannsson
(netfang: johannhj@rsp.is)