Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 98

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 98
798 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 / Iðorðasafn lækna 104 Intracranial lesions Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræðingur, var að taka saman efni um eiginleika lyfs og kom þar að heitinu intra- cranial lesions, en fann ekki þýðingu sem honum líkaði. Forliðurinn intra- er kom- inn úr latínu og samkvæmt Ið- orðasafni lækna merkir hann fyrir innan, innan í, inn á við, inn í, en undirritaður vildi gjarnan bæta við inni í og í. Intra má þannig ýmist nota um staðsetningu eða stefnu og ýmist með eða án bandstriks. I þeim mörgu samsetningum, sem finna má í Iðorðasafninu, er algengast að vísað sé til staðsetningar. Farnar eru þrjár leiðir við íslensku þýðingarn- ar, í fyrsta lagi er notað inn- an-, í öðru lagi í og í þriðja lagi er oft notað eignarfall, þegar sjálfgefið virðist að fyrir- bærið, sem vísað er til, sé inni í öðru. Intravenous- mætti til dæmis í mismunandi samsetn- ingum þýða sem innanblá- æðar-, í bláæð eða bláæðar-. Höfuðkúpa Cranium er komið úr grísku og táknar þar höfuðkúpu eða hauskúpu, og finnst undirrit- uðum heitið höfuðkúpa fara ólíkt betur í virðulegum fræði- texta. Samkvæmt íslensku orðsifjabókinni merkir kúpa skálarlaga ílát; hauskúpa; hjálmur; e-ð hvolflaga og ætti því strangt tekið einungis að ná tii hins kúpta, efri hluta höfuðsins. Samkvæmt hinni miklu læknis- og líffræðiorða- bók Wileys nota sumir líf- færafræðingar heitið cranium sem sameiginlegt heiti á höf- uðbeinunum öllum. Aðrir undanskilja neðri kjálkann og enn aðrir greina á milli kúpu- beina, ossa cranii, og andlits- beina, ossa faciei. Rétt er einnig að minna á latneska heitið neurocranium, sem þýtt hefur verið sem heilakúpa í líffæraheitunum, og cavitas cranii, sem fær þýðinguna kúpuhol. Intracranial finnst bæði sem sjálfstætt uppflettiorð í Iðorðasafninu, og er þá ein- göngu tilgreind þýðingin inn- an hauskúpu, og sem hluti af ýmsum samsetningum, en þá eru ýmist tilgreindar þýðing- arnar innan höfuðkúpu eða innankúpu-. Rétt er að benda á að þýðing íðorðasafnsins á abscessus intracranialis er óheppileg, höfuðígerð, því að íslenska heitið höfuð vísar ekki sérstaklega inn í höfuð- kúpuna. Betra er að nota innan- kúpuígerð eða innankúpu- kýli. Heitin kúpuígerð og kúpukýli, eru nothæf til stytt- ingar, þegar ljóst er hvað við er átt, en vísa þó ekki sérstak- lega inn í kúpuna. Mein, meinsemd Latneska heitið laesio, sem tekið hefur verið upp í ensku sem lesion, merkir meiðsl, sár, skemmd, skaði eða ögr- un. Umfjöllun íðorðasafnsins er afar formleg: löskun, vef- skemmd. Formgerðar- eða starfsumskipti afvöldum sjúk- dóms. Oftast notað um mynd- breytingar. Undirritaður hefur leitast við að nota heitin mein eða meinsemd þegar því verð- ur við komið. Samkvæmt þessu má nota íslenska heitið innan- kúpumein til að þýða enska heitið intracranial lesions. I formlegum texta mætti einnig nota mein- semdir innan höfuðkúpu sem kaflaheiti. Calvaria Framanritað var ekki fyrr komið á blað en undirritaður varð áhorfandi að umfjöllun um latneska heitið calvaria í umræðuhópi á alnetinu. Starfsbróðir vestan hafs hafði leitað álits annarra barna- meinafræðinga á greiningu á fósturvanskapnaði, þar sem hið sjaldgæfa fyrirbæri acalv- aria, höfuðkúpuleysi, kom fyrir. I einu svarinu kom fyrir heitið calvarium og var það þar notað sem eintöluorð, en notandinn fékk að bragði miklar skammir fyrir. Undir- ritaður hefur nú flett upp í öllum tiltækum orðabókum og í líffærafræðiheitunum, Nom- ina anatomica, og fengið stað- fest að skammirnar áttu rétt á sér. Heitið er komið úr latínu, skylt lýsingarorðinu calvus, sköllóttur, og eintalan er sem sagt calvaria og fleirtalan calvariae. í líffærafræðiheit- unum er calvaria þýtt sem kúpuhvolf og birtist þar í beinafræðinni undir neuro- cranium. Undir calvaria birt- ast svo einungis hvirfilbein, ennisbein og skeljarhlutar hnakka- og gagnaugabeins. (Framhald í nœsta blaði.) Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.