Læknablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 36
746
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Tafla II. Mat á stigi erfiðleika. Þrískiptflokkun talmeinafrœðinga
á athugasemdum foreldra eftir aldursflokkum (samhljóða og
meirihluti).
Stig erfiðleika
Aldursbil Eðlilegur málþroski Vægt frávik Alvarlegt frávik Samtals
2-4 12 6 4 22
5-7 0 6 12 18
Samtals 12 12 16 40*
• í 10 tilvikum varekki meirihluti.
töku, lítinn orðaforða, að milliorðum væri sleppt,
orðgleymsku, vitlausa orðaröð, heyrnarskerð-
ingu og tvö eða fleiri tungumál. Framburður
var því lang algengasta áhyggjuefni foreldra.
Gott samræmi var einnig í mati talmeina-
fræðinga þegar þeir flokkuðu athugasemdir
foreldra eftir alvarleika. I 80% tilvika voru tal-
meinafræðingarnir samhljóða eða í meirihluta
um mat á stigi erfiðleika samkvæmt athuga-
semdum foreldra. Sömuleiðis gaf innanflokka-
fylgni góðan áreiðanleika eða 0,94 miðað við
meðaltal fjögurra talmeinafræðinga. Stig erfið-
leika fór vaxandi með aldri samkvæmt flokkun
talmeinafræðinganna (%2(2, N=40)=15,8, p
<0,01) þegar gengið var út frá meirihlutamati
(tafla II). í um það bil fjórðungi tilvika töldu
talmeinafræðingar að athugasemdir foreldra
gæl'u til kynna eðlilegan málþroska og voru
þau öll hjá börnum á aldrinum tveggja til fjög-
urra ára. Engar athugasemdir foreldra voru
taldar benda til eðlilegs málþroska hjá fimm til
sjö ára börnum.
Umræða
Ahyggjur foreldra af málþroska barna sinna
eins og þær birtust í svörum við spurningum á
spurningalista yfir atferli barna og unglinga ná
til margs konar áhyggjuefna í tali og máli, þótt
áhyggjur af framburði séu algengastar. Tæp-
lega 13% foreldra bama á aldrinum tveggja til
sjö ára virðast hafa einhverjar áhyggjur af mál-
þroska og reyndist tíðni þeirra óháð aldri. Þá
virtist tilhneiging til þess að foreldrar hefðu
fremur áhyggjur af drengjum en stúlkum. For-
eldrar tilgreindu mun síður málörðugleika en
talörðugleika í svörum sínum þrátt fyrir að sér-
staklega væri spurt um málörðugleika. Ahyggj-
ur foreldra voru oftast taldar raunverulegar af
talmeinafræðingum. Þessir sérfræðingar mátu
* Viö útreikninga á kí-kvaðrati var nauösynlegt aö fella
saman svör 1 og 2.
alhugasemdir foreldra alvarlegri með hækk-
andi aldri barnanna.
Spurningalisti yfir atferli barna og unglinga
nær til tjölbreytilegra ástæðna fyrir áhyggjum
foreldra af málþroska. Hann getur gefið vís-
bendingar um hversu algengar slíkar áhyggjur
eru, en segir ekki mikið um alvarleika mál-
þroskavandamála eða hversu stór hópur þarfn-
ast meðferðar. Ef hann er notaður til skimunar
er fyllsta ástæða til þess að athuga betur hvað
býr að baki áhyggjum af málþroska. Það er til
dæmis hægt að gera með markvissum spurn-
ingum eða annarri skimunartækni áður en
ákvörðun er tekin um tilvísun.
Tíðni áhyggja foreldra í þessari rannsókn er
óháð aldri á aldursbilinu tveggja til sjö ára.
Ahyggjur íslenskra foreldra vakna snemma, en
ekki er vitað hvað ræður því hvenær leitað er til
sérfræðinga. Líklegt er að áhyggjur foreldra
breytist með hækkandi aldri barnanna enda
þótt það verði ekki ráðið beint af svörum þeirra
hér. Flokkun talmeinafræðinga á athugasemd-
um foreldra varðandi stig erfiðleika sýndi hins
vegar að þeir litu athugasemdir foreldra alvar-
legri augum eftir því sem börnin voru eldri.
Flokkun talmeinafræðinga á athugasemdun-
um leiddi ennfremur í Ijós að mikill meirihluti
vísaði til tals. Foreldrar svöruðu um talerfið-
leika þótt spurt væri um málörðugleika. Svör
hefðu vafalítið orðið önnur ef þeir hefðu sér-
staklega verið beðnir um að greina þarna á
milli. Þá er hugsanlegt að sú skipting sem kom
fram vísi til raunverulegs munar á algengi
þessara vandamála. Lítil hefð fyrir aðgreiningu
í tal og mál í íslensku er einnig hugsanleg skýr-
ing á því af hverju flestar athugasemda foreldra
voru um tal. Þetta þarf að kanna nánar, en gögn
þessarar rannsóknar gefa ekki kost á því.
Áhyggjur foreldra af málþroska bama sinna
eru oftast raunverulegar og eftir því sem barnið
er eldra ber að líta umkvartanir þeirra alvar-
legri augum. Þegar áhyggjur af tali eru látnar í
ljósi þarf að kanna frekar hvað býr að baki. í
því sambandi er mikilvægt að útiloka heymar-
skerðingu og kanna hvort erfiðleikar ná einnig
til máls. I þessari rannsókn fór engin greining
fram, en áhugavert er að rannsaka frekar tengsl
milli áhyggja sem látnar eru í ljósi og raun-
verulegra vandamála.
Rannsóknir Einars Guðmundssonar og Sig-
urðar J. Grétarssonar (19-21), hafa sýnt að ís-
lenskar mæður eru áreiðanlegir lýsendur
þroska þegar þær eru spurðar nákvæmlega um