Læknablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 44
752
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Sumt mjakast í rétta átt
en misrétti fer vaxandi
- segir Ólafur Ólafsson landlæknir eftir fund norrænna
landlækna í Reykjavík sem ræddu stööu heilbrigðismála
en þar var einnig kynnt afstaða landlæknisembættisins
til gagnagrunnsfrumvarps
Norrænir landlæknar
halda árlega sameiginlega
upplýsinga- og umræðu-
fundi. A þessum fundum
bera landlæknar saman
bækur sínar, fara yfir at-
burði liðins árs og það sem
hæst ber hverju sinni. Land-
læknar funduðu í Reykjavík
dagana 20. og 21. ágúst síð-
astliðinn og var fundurinn
sá sjötti sem haldinn er hér á
landi í tíð Olafs Olafssonar
landlæknis. Þeir eru ekki
margir kollegar Olafs sem
setið hafa svo lengi, því eins
og hann sagði í rabbi við
Læknablaðið þá hefur hann
þegar drepið af sér átta land-
lækna annarra Norður-
landa. En hver voru helstu
umfjöllunarefnin að þessu
sinni?
„Á þessum fundi ræddum
við forvarnir og ævilíkur, bar-
áttu gegn sjúkdómum og slys-
um, nýja sjúkdóma, álag á
sjúkrahúsum og biðlista, auk
þess sem við kynntum frum-
varp til laga um gagnagrunn á
heilbrigðissviði og lýstum af-
stöðu landlæknisembættisins
til þess.“
Karlar lifa lengur
Olafur sagði ævilíkur karla
hafa aukist mikið á Norður-
löndunum á síðustu árum.
Ævilíkur kvenna hafa á hinn
bóginn ekki breyst. „Við velt-
um fyrir okkur mögulegum
skýringum á þessu, sérstak-
lega út frá Danmörku en Dan-
mörk sker sig úr að því leyti
að þar hafa ævilíkur hvorki
karla né kvenna aukist. Danir
hafa dregist aftur úr hvað þetta
varðar. Þeir hafa ekki dregið
úr reykingum að neinu ráði og
áfengisneysla þeirra er meiri
en annarra Norðurlandabúa.
Um 80% kvenna á Norður-
löndum eru útivinnandi og
hefur vinnutími þeirra lengst
mjög mikið, það gildir hins
vegar ekki um karla, heimilið
hvílir þyngra á konum og að
auki hefur konan oft þriðja
starfið sem er þátttaka í fé-
lagsstarfi.
Við ræddum fleira sem snýr
sérstaklega að heilbrigði og
heilsufari kvenna og má þar
nefna fóstureyðingar. Hlutfall
fóstureyðinga er einna lægst á
Islandi en meðal ungra kvenna
á Islandi er það einna hæst.
Ástæður þessa eru meðal ann-
ars þær að getnaðarvamir eru
einna dýrastar á Islandi, á hin-
um Norðurlöndunum eru þær
víða niðurgreiddar. Ungar
stúlkur horfa mjög í peninginn
og eru viðkvæmar fyrir verð-
lagi. Bæði er að þær eru gjam-
an í skóla og eiga lítinn pening.
Margar þeirra reykja og verða